Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. jan. 2023

923/2001

Reglugerð um happdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga.

1. gr.

Heimilt er Sambandi íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (skammstafað SÍBS) að reka vöruhappdrætti. Ágóða af happdrættinu skal varið til að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir vinnuheimilisins að Reykjalundi, til byggingar og rekstrar vinnustofu fyrir öryrkja og til annarrar félagsmálastarfsemi SÍBS, sem viðurkennd er af ríkisstjórninni.

Eignum happdrættisins skal, ef það verður lagt niður, verja á sama hátt.

2. gr.

Stjórn SÍBS fer með yfirstjórn happdrættisins og hefur á hendi reikningshald þess eða felur það framkvæmdastjóra. Hún skal færa ákvarðanir, er happdrættið varða, í gerðabók sína. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra happdrættisins.

3. gr.

Reikningsár happdrættisins er almanaksárið. Dómsmálaráðuneytið skipar tvo skoðunarmenn reikninganna. Þóknun til þeirra greiðist af fé happdrættisins.

4. gr.

Dómsmálaráðherra skipar þriggja manna happdrættisráð til þriggja ára í senn og varamenn þeirra og ákveður formann þess. Dómsmálaráðuneytið ákveður þóknun happdrættisráðsmanna, er greiðist af fé happdrættisins.

Happdrættisráð skal hafa aðgang að bókum og skjölum happdrættisins og skal því veitt sú vitneskja um starfsemina sem það óskar. Það skal tafarlaust tilkynna dómsmálaráðuneytinu ef það telur ákvæði laga eða reglugerða um happdrættið brotin.

Happdrættisráð hefur eftirlit með og úrskurðarvald um drætti, svo sem síðar segir.

5. gr.

Happdrættið gefur árlega út 75.000 - sjötíu og fimm þúsund - hluti í 12 flokkum.

Við kaup á hlutanúmeri í happdrættinu er gerð skráning í tölvuskrá happdrættisins um seld númer. Kaupanda númers er afhent kvittun til staðfestingar á keyptu númeri. Kvittunin ber áritað keypt númer, svo og verð hlutanúmers (miðans) og það tímabil sem greitt er fyrir. Á hverja kvittun skal prenta nafn og merki happdrættisins, svo og eiginhandarundirskrift framkvæmdastjóra happdrættisins. Ef númer er selt annars staðar en hjá aðalumboði skal stimpla á kvittunina umboðsnúmer og sölustað.

6. gr.

Vinningar í happdrættinu skulu eigi vera færri en svo, að að minnsta kosti fjórða hvert hlutanúmer hljóti vinning árlega að meðaltali, og skal heildarverðmæti vinninga nema að minnsta kosti 50% af söluverði í öllum 12 flokkum.

Stjórn happdrættisins ákveður, að fengnu samþykki happdrættisráðs, vinningatölu og verðmæti vinninga í hverjum flokki. Skal vinningaskrá samin fyrirfram fyrir ár hvert.

Stjórn happdrættisins er heimilt að kveða svo á í vinningaskrá að falli hæsti vinningur í flokki á óselt hlutanúmer leggist hann við fyrsta vinning í næsta flokki og þannig áfram uns fyrsti vinningur í flokki fellur á selt númer. Gildir slíkur flutningur fyrsta vinnings einnig í 12. flokki þannig að hann flyst til 1. flokks á næsta happdrættisári.

7. gr.

Verð ársmiða er 24.000 kr. en endurnýjunarverð í hverjum flokki 2.000 kr.

Ef keypt er nýtt hlutanúmer eftir að drættir eru byrjaðir á árinu, skal greiða fyrir það andvirði hlutanúmers í þeim flokki sem næst á að draga í. Ef ekki hefur verið greitt fyrir hlutanúmer í einum eða fleiri flokkum sem liðnir eru innan happdrættisársins en kaupandi vill gera númerið gilt í næsta útdrætti, skal greiða fyrir númerið 100 kr. fyrir hvern flokk sem liðinn er frá því það var síðast gilt auk verðs þess í þeim flokki sem næst á að draga í.

8. gr.

Hlutanúmer eru seld á skrifstofu SÍBS í Reykjavík og hjá umboðsmönnum happdrættisins víðs vegar um landið.

Endurnýjun hlutanúmers hefst að 15 dögum liðnum frá síðasta drætti og varir til starfsloka síðasta endurnýjunardags. Endurnýjun skal fara fram hjá þeim umboðsmanni sem hefur selt númerið.

9. gr.

Um vinninga í 1. flokki skal dregið 14. janúar ár hvert, en í öðrum flokkum 5. hvers mánaðar. Ekki skal þó dregið á helgidögum, laugardögum eða almennum frídögum eða fyrsta virkan dag eftir helgidag eða almennan frídag. Fer dráttur þá fram næsta virkan dag þar á eftir. Happdrættisráð getur veitt undanþágu frá ákvæði þessarar greinar ef því þykir ástæða til.

10. gr.

Útdráttur vinninga fer fram opinberlega í Reykjavík þar sem happdrættisráð samþykkir.

Útdráttur fer fram undir eftirliti happdrættisráðs og að viðstöddum fulltrúa happdrættisins.

11. gr.

Við útdrátt vinninga skal nota eftirfarandi gögn og tæki:

a) Tölvu sem samþykkt er af happdrættisráði og stjórnað af sérfróðum manni.
b) Dráttarforrit og annan hugbúnað sem stýrir tölvunni við útdráttinn.
c) Stokk til útdráttar á lykiltölu fyrir dráttarforritið. Stokkurinn skal vera með 8 hólfum og í hverju hólfi skal vera reglulegur tvítugflötungur, en á hvern flöt hans skal skráð ein talnanna frá 0 til 9, þannig að sérhver tala er á tveimur flötum.
d) Nauðsynlegan tölvupappír og annan búnað í samræmi við þarfir forritsins.

12. gr.

Dráttarforrit skal gert samkvæmt viðurkenndum aðferðum. Dráttarforrit skal þannig gert, að fyrst er dreginn út hæsti (hæstu) vinningur, síðan næsthæsti (næsthæstu) o.s.frv. Happdrættisráð fær tvo sérfróða menn til að yfirfara dráttarforritið í upphafi, svo og í hvert sinn sem breytingar eru gerðar á því. Skulu hinir sérfróðu menn leggja skriflega greinargerð um gerð forritsins fyrir happdrættisráðið, sem síðan staðfestir það.

Dráttarforritið og annar hugbúnaður skal varðveittur í þar til gerðri tölvu sem innsigluð er með innsigli happdrættisráðs.

13. gr.

Útdráttur vinninga í happdrættinu fer fram með eftirfarandi hætti:

a. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með þeim hætti að stokknum er snúið en að því búnu er skráð sú 8 stafa tala sem fram kemur. Er þetta síðan endurtekið þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
b. Tölvan með útdráttarforriti er tekin undan innsigli af fulltrúum happdrættisráðsins.
c. Tölvan ræst, sett í upphafsstöðu og afritunardisklingur settur í hana.
d. Upplýsingar um útdráttinn og vinninga eru færðar í tölvuna og að því búnu lykiltalan.
e. Tölvan dregur og færir útdrátt á diskling, en síðan er prentuð vinningaskrá sem happdrættisráðið staðfestir með undirskrift sinni.
f. Afritunardisklingur tekinn úr útdráttartölvu og honum læst.
g. Útdráttartölvan innsigluð með innsigli happdrættisráðsins og varðveitt í aðalumboði happdrættisins. Happdrættisráðið færir skýrslu um framkvæmd útdráttarins.
h. Gögn um útdráttinn eru flutt í tölvukerfi happdrættisins af útdráttardisklingi.

Ákveða má að við útdrátt vinninga í hverjum flokki skuli draga sérstaklega út tiltekinn fjölda vinninga sem dregnir skulu eingöngu úr seldum númerum. Drátturinn fer fram með þeim hætti að stokknum er snúið. Ef fimm fyrstu stafir sem þá koma upp mynda tölu á bilinu 1 - 75.000 skal sú tala skráð. Telst hún vinningsnúmer ef það hlutanúmer er selt. Valið skal endurtekið þar til slík tala hefur komið upp úr seldum númerum svo oft sem velja á.

Stjórn happdrættisins er heimilt að ákveða að í hverjum flokki sé dreginn sérstaklega út tiltekinn fjöldi vinninga samkvæmt vinningaskrá með vali tveggja stafa talna. Valið fer fram með notkun átta hólfa stokks og er sú tala, sem fram kemur og síðustu tveir stafir mynda, skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Val er endurtekið þar til tilskilinn fjöldi talna hefur fengist. Tölurnar verða hluti af vinningaskrá, en þær vísa til síðustu tveggja tölustafa í hverju hlutanúmeri. Þau númer sem þannig er vísað til eru vinningsnúmer.

14. gr.

Bili tölvan eða útdráttur stöðvast af öðrum óviðráðanlegum ástæðum, tekur happdrættisráð öll gögn vegna útdráttarins til varðveislu. Þessi sömu gögn, þ. á m. lykiltalan, skulu notuð við endurtekningu útdráttarins.

15. gr.

Ef ágreiningur rís um lögmæti eða gildi dráttar meðan dráttur fer fram eða eftir að honum er lokið, skal skjóta honum til happdrættisráðs, sem leggur fullnaðarúrskurð á ágreininginn.

16. gr.

Vinningaskrá skal gefin út að loknum hverjum drætti og skal hún fást ókeypis hjá öllum umboðsmönnum happdrættisins.

17. gr.

Eigandi númers, sem hlotið hefur vinning, skal snúa sér til þess umboðsmanns, er seldi númerið. Umboðsmaðurinn stimplar þá vinningsmerki á kvittun fyrir kaupumá hlutanúmeri, ritar á hana hver vinningurinn er, dagsetningu og skrifar nafn sitt undir.

Í upphafi hvers árs á eigandi hlutanúmers kost á því að kaupa sama hlutanúmer og hann hafði næsta ár á undan, ef hann snýr sér til umboðsmanns happdrættisins á þeim tíma, sem stjórn happdrættisins auglýsir. Þetta gildir þó því aðeins að umboðsmaðurinn hafi fengið umrætt númer aftur frá skrifstofu happdrættisins.

18. gr.

Allir vinningar skulu greiddir í vörum, og er happdrættinu óheimilt að greiða andvirði þeirra í peningum.

Umboðsmenn afhenda vinninga gegn framvísun stimplaðrar og áritaðrar kvittunar samkvæmt 17. gr. og kvittunar um vörukaup.

19. gr.

Á vinningaskrá skal auglýst hvenær afhending vinninga hefst. Ef mótmæli koma fram gegn afhendingu vinninga til skráðs kaupanda hlutanúmers, áður en afhending hefst samkvæmt auglýsingunni, skal vinningur ekki afhentur fyrr en 8 vikur eru liðnar frá því að afhending átti að hefjast og skal hann þá afhentur skráðumkaupanda númersins nema sannað sé, að mál sé þingfest til úrskurðar um eignarrétt vinningsins og skal þá vinningurinn ekki afhentur fyrr en dómsúrskurður er fallinn.

Ef kvittun fyrir hlutanúmeri, sem vinning hlýtur, hefur glatast, getur eigandi hennar snúið sér til stjórnar happdrættisins með beiðni um að fá vinninginn afhentan, en fylgja skal vottorð umboðsmanns, sem seldi númerið, um að samkvæmt bókum hans hafi umsækjandi keypt hlutanúmerið. Slík beiðni þarf að komast í hendur stjórnarinnar innan 6 mánaða frá drætti, en hafi vinningur samkvæmt númerinu þegar verið afhentur er beiðnin kom fram, er happdrættið laust allra mála.

20. gr.

Vinningar, sem enginn hefur vitjað innan eins árs frá drætti, verða eign happdrættisins.

21. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 18 22. apríl 1959, sbr. lög nr. 52 25. maí 1976, lög nr. 115 31. desember 1984 og lög nr. 94 10. desember 1999, öðlast þegar gildi.

Jafnframt er úr gildi felld reglugerð um vöruhappdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga nr. 372 25. október 1976 með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.