Fara beint í efnið

Prentað þann 10. maí 2024

Breytingareglugerð

557/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, töluliður 8, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/410 frá 19. desember 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Lýðveldinu Kongó, Gíbraltar, Mósambík, Tansaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum í töflu 1 í viðaukanum við framselda reglugerð (ESB) 2016/1675 og fella Níkaragva, Pakistan og Zimbabwe brott úr þeirri töflu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, 11. maí 2023, bls. 631.

2. gr.

Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal við reglugerð þessa þannig breyttur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 24. maí 2023.

Jón Gunnarsson.

Haukur Guðmundsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.