Atvinnuvegaráðuneyti

1067/2026

Reglugerð um (72.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, 184.-186. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/2104 frá 17. september 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/2149 frá 21. september 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/2227 frá 1. október 2026 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 25/2026.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 7. október 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 8. október 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica