1007/2026
Reglugerð um (25.) breytingu á reglugerð nr. 1205/2021 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 um aukefni í fóðri.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætast tuttugu og sjö nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/154 frá 23. janúar 2026 um leyfi fyrir sepíólítkenndum leir sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir aðrar en jórturdýr til mjólkurframleiðslu eða til undaneldis, fráfærugrísi, tegundir svína til eldis, laxfiska og kjúklinga til eldis og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/263 að því er varðar skilmála leyfisins fyrir sepíólítkenndum leir sem fóðuraukefni fyrir laxfiska og eldiskjúklinga. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 160/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 232.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/155 frá 23. janúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með Saccharomyces cerevisiae NCYC R404 sem fóðuraukefni fyrir kýr (handhafi leyfis er Volac International Ltd) og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/502. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 160/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 241.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/164 frá 26. janúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir vatnslausn kólínklóríðs og blöndu með kólínklóríði sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 795/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 160/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 244.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/167 frá 26. janúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir klínoptílólíti sem er upprunnið úr seti sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 651/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 160/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 251.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/168 frá 26. janúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með Saccharomyces cerevisiae CBS 493.94 sem fóðuraukefni fyrir jórturdýr til mjólkurframleiðslu eða til undaneldis, ung jórturdýr til eldis, að undanskildum eldislömbum, og jórturdýr til eldis, að undanskildu sauðfé til eldis (leyfishafi er All-Technology (Ireland) Limited [Alltech Ireland]) og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1109/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 160/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 255.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/171 frá 26. janúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir fúmarsýru sem fóðuraukefni fyrir allar landdýrategundir, um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1078/2013 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/56. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 160/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 258.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/178 frá 23. janúar 2026 um leyfi fyrir gúmviðartinktúru úr Eucalyptus globulus Labill. sem fóðuraukefni fyrir tilteknar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 160/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 265.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/108 frá 16. janúar 2026 um leyfi fyrir ponseau 4R sem fóðuraukefni til notkunar í beitu fyrir ferskvatnsfiska sem gefa af sér afurðir til manneldis. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 271.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/119 frá 20. janúar 2026 að því er varðar synjun um leyfi fyrir blöndu með karvakróli sem fóðuraukefni í flokknum dýraræktaraukefni fyrir fráfærugrísi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 275
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/180 frá 19. janúar 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2021/1426, (ESB) 2024/221, (ESB) 2023/1333, (ESB) 2024/1058, (ESB) 2023/1342, (ESB) 2024/778, (ESB) 2024/2177, (ESB) 2019/805, (ESB) 2020/163, (ESB) 2021/1431 og (ESB) 2025/161 að því er varðar heiti leyfishafa fyrir fóðuraukefnum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 277.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/348 frá 17. febrúar 2026 um leyfi fyrir blöndu með Lacticaseibacillus huelsenbergensis DSM 115424 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 282.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/352 frá 18. febrúar 2026 um leyfi fyrir L-arginíni, sem er framleitt með Escherichia coli CCTCC M 20231961, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 286.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/353 frá 18. febrúar 2026 um leyfi fyrir L-histidíni og L-histidínmónóhýdróklóríðmónóhýdrati, sem eru framleidd með Corynebacterium glutamicum KCCM 80389, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 290.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/356 frá 18. febrúar 2026 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, sem er framleiddur með Bacillus subtilis LMG S-15136, sem fóðuraukefni fyrir gyltur á meðgöngu (leyfishafi er Puratos NV). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 298.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/548 frá 13. mars 2026 að því er varðar synjun um leyfi fyrir krókalöppuútdrætti úr Arctium lappa L. sem fóðuraukefni fyrir ketti og hunda. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 48.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/549 frá 13. mars 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með bakteríustofni DSM 11798 af ættinni Eggerthellaceae sem fóðuraukefni fyrir svín, alifugla og skrautfugla og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 1016/2013 og (ESB) 2017/930. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 50.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/553 frá 13. mars 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/1755 og (ESB) 2024/1054 að því er varðar skilmála leyfisins fyrir blöndu með Weizmannia faecalis DSM 32016 sem fóðuraukefni fyrir allar tegundir alifugla til eldis og sem eru aldir til undaneldis og til varps og skrautfugla (leyfishafi er Biochem Zusatzstoffe Handels- und Produktionsges. mbH). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 55.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/585 frá 13. mars 2026 að því er varðar synjun um leyfi fyrir ginsengútdrætti úr Panax ginseng C.A. Meyer sem fóðuraukefni fyrir ketti og hunda. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 65.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/516 frá 10. mars 2026 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2025/1403 að því er varðar styrk tújóna í spánarsalvíuilmkjarnaolíu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 66.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/528 frá 11. mars 2026 um leyfi fyrir ilmstjörnuilmkjarnaolíu úr Pogostemon cablin Benth. sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 68.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/532 frá 11. mars 2026 um endurnýjun á leyfi og um leyfi fyrir nýrri notkun á blöndu með mónensínnatríumi (Coxidin) sem fóðuraukefni fyrir eldiskjúklinga, kjúklinga sem eru aldir til að verða varphænur, eldiskalkúna og kalkúna sem eru aldir til undaneldis (leyfishafi er Huvepharma N.V.) og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 109/2007 og framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 140/2012. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 73.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/534 frá 11. mars 2026 um leyfi fyrir blöndu með Duddingtonia flagrans NCIMB 30336 sem fóðuraukefni fyrir dýr á beit af nautgripakyni, sauðfé og geitur, önnur en til mjólkurframleiðslu, og fyrir dýr á beit af úlfaldaætt, hjartardýr, dýr af hestaætt, svínategundir og kanínur (leyfishafi er International Animal Health Products Pty Ltd, fulltrúi hans hjá Sambandinu er SynTech Regulatory Europe GmbH). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 80.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/538 frá 11. mars 2026 um leyfi fyrir xantangúmmíi sem er framleitt með Xanthomonas campestris ATCC SD 7012 eða DSM 23730 eða CNCM I-4861 eða CIP 74.23 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir aðrar en ketti, hunda og lagartegundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 84.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/540 frá 11. mars 2026 um leyfi fyrir arabísku gúmmíi sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 91.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/402 frá 24. febrúar 2026 um leyfi fyrir L-systíni, sem er framleitt með Escherichia coli DSM 34232, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 97.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/404 frá 24. febrúar 2026 um leyfi fyrir blöndu með 6-fýtasa, sem er framleiddur með Komagataella phaffii CGMCC 7.370, sem fóðuraukefni fyrir svínategundir, alifugla og skrautfugla (leyfishafi er Victory Enzymes GmbH). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 101.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/460 frá 26. febrúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir þíamínvetnisklóríði og þíamínmónónítrati sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/897. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 104.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 2. september 2026.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026