Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki í grálúðu, ufsa, gulllaxi, keilu, gullkarfa og skarkola frá fiskveiðiárinu 2025/2026 yfir á fiskveiðiárið 2026/2027.
Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 16. gr., sbr. 3. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 8. september 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Hallveig Ólafsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 10. september 2026