Á eftir orðunum "tilheyrandi tækjabúnaði" í 2. málsl. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: auk þreskivéla sem ætlaðar eru til að uppskera þroskað korn frá axi sem ætlað er til þurrkunar.
Á eftir "flutningstækjum fyrir korn" í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: auk þreskivéla sem ætlaðar eru til að uppskera þroskað korn frá axi sem ætlað er til þurrkunar. Hver umsækjandi getur aðeins einu sinni hlotið styrk til kaupa á þreskivél.
Á eftir orðunum "fjárfestingu í flutningstækjum" í e-lið 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: og þreskivélum sem ætlaðar eru til að uppskera þroskað korn frá axi sem ætlað er til þurrkunar.
Á eftir orðunum "útgefið af fagaðila" í c-lið 8. gr. reglugerðarinnar kemur: sem ráðuneytið viðurkennir.
Á eftir orðunum "vottorði frá fagaðila" í 1. málsl. 2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar kemur: sem ráðuneytið viðurkennir.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 19. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998, og 81. gr. búvörulaga, nr. 99/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 24. júní 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Elísabet Anna Jónsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 8. júlí 2026