Matvælaráðuneyti

1237/2023

Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1698 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar kröfur um málsmeðferð er varða viðurkenningu á eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum sem eru til þess bær að annast eftirlit með lífrænt vottuðum rekstraraðilum og hópum rekstraraðila og með lífrænt ræktuðum vörum í þriðju löndum og að því er varðar reglur um eftirlit með þeim og eftirlit og aðrar aðgerðir sem þessi eftirlitsyfirvöld og

Breytingareglugerðir:

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftir­talin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1698 frá 13. júlí 2021 um við­bætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar kröfur um málsmeðferð er varða viðurkenningu á eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum sem eru til þess bær að annast eftirlit með lífrænt vottuðum rekstraraðilum og hópum rekstraraðila og með lífrænt ræktuðum vörum í þriðju löndum og að því er varðar reglur um eftirlit með þeim og eftirlit og aðrar aðgerðir sem þessi eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðilar eiga að annast. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 39/2022, frá 4. febrúar 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 18, frá 17. mars 2022, bls. 758.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica