Atvinnuvegaráðuneyti

543/2026

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 402/2013 um leyfi eða synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu (gildistaka reglugerða (ESB) nr. 378/2012, 379/2012 og 432/2012).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 264/2025 frá 5. desember 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/882 frá 14. maí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1378 að því er varðar viðurkenningu á tilteknum eftirlitsaðilum, í samræmi við 46. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848, sem til þess bærum til að inna af hendi eftirlit og gefa út vottorð um lífræna framleiðslu í þriðju löndum vegna innflutnings á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 248.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. maí 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 22. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica