525/2026
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 324/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/12 um snið og inntak umsókna og beiðna um ákvörðun á hámarksgildum leifa.
1. gr.
1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XIII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/12 frá 6. janúar 2017 um snið og inntak umsókna og beiðna um ákvörðun á hámarksgildum leifa í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 470/2009. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 223/2017 frá 15. desember 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 1. febrúar 2018, bls. 343.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1103 frá 3. júní 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/12 að því er varðar kröfur vegna umsókna og beiðna um að fastsetja flokkunina "hámarksgildis leifa ekki krafist" fyrir líffræðileg efni sem eru ólík íðefnum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 270/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 482.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um slátrun og sláturafurðir, nr. 96/1997, og lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026