Atvinnuvegaráðuneyti

521/2026

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 17. tölul., svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1735 frá 4. júní 2025 um breytingu á viðaukanum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 609/2013 til að heimila notkun á mónónatríumsalti af L-5-metýltetrahýdrófólínsýru sem fólatgjafa í ungbarnablöndur og stoðblöndur, unnin matvæli með korn sem uppistöðu og barnamat, þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis og matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 359.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica