Atvinnuvegaráðuneyti

543/2025

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 16. tölul., svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2684 frá 2. febrúar 2024 um breyt­ingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/127 að því er varðar kröfur er varða prótín í ungbarnablöndum og stoðblöndum sem eru framleiddar úr vatnsrofsmyndefnum prótína. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 576.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica