Matvælaráðuneyti

378/2024

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 468/2013 um nýtingu afla og aukaafurða.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem kemur í stað núverandi ákvæðis til bráða­birgða, sem orðast svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. er heimilt að varpa hvelju af grásleppu fyrir borð á grásleppuvertíð 2024.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. gr. og 30. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytja­stofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. ágúst 2024.

 

Matvælaráðuneytinu, 18. mars 2024.

 

Katrín Jakobsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica