Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

167/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 423/2015 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 579/2014 um undanþágu frá tilteknum ákvæðum II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 að því er varðar flutning á fljótandi olíum og fitu á sjó.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 579/2014 frá 28. maí 2014 um undanþágu frá tilteknum ákvæðum II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 að því er varðar flutning á fljótandi olíum og fitu á sjó. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2014, frá 12. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 458.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/238 frá 19. febrúar 2016 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 579/2014 um undanþágu frá tilteknum ákvæðum II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 að því er varðar flutning á fljótandi olíum og fitu á sjó. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2016, frá 29. apríl 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27, frá 12. maí 2016, bls. 878.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. febrúar 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.