Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

128/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 81/2017 um loðnuveiðar grænlenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2016/2017. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Grænlenskum skipum er heimilt að veiða samtals 28.501 lest af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. febrúar 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica