Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

125/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 79/2017 um loðnuveiðar íslenskra skipa á haust- og vetrarvertíð 2016 til 2017. - Brottfallin

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Aðeins skipum sem hafa aflamark í loðnu er heimilt að stunda loðnuveiðar. Veiðar umfram aflamark í loðnu varða gjaldtöku samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólöglegs sjávarafla.

Leyfilegur hámarksafli íslenskra loðnuveiðiskipa á loðnuvertíðinni er sem hér segir:

A B C
Lestir Lestir Lestir
196.075 10.392 185.683

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. febrúar 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica