Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1151/2016

Reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt. - Brottfallin

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um stuðningsgreiðslur í sauðfjárrækt, svo sem beingreiðslur, greiðslur vegna ullarnýtingar og svæðisbundinn stuðning, samkvæmt samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar sem dags. er 19. febrúar 2016.

2. gr.

Orðskýringar.

Í reglugerð þessari hafa eftirtalin orð þá merkingu sem hér segir:

Bústofn: Miðlægur gagnagrunnur Matvælastofnunar til að halda utan um dýraeftirlit og forðagæslu í samræmi við lög um búfjárhald nr. 38/2013.

Fjárvís: Tölvukerfi og gagnagrunnur í eigu Bændasamtaka Íslands, sem heldur utan um afurða­skýrslu­hald í sauðfjárrækt. Gögn sem verða til vegna skylduskráninga í samræmi við reglu­gerð þessa eru í umsjón og á ábyrgð Matvælastofnunar (MAST).

Nýliði: Einstaklingur á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi, sem er að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hefur leigt búrekstur skemur en fimm ár og hefur ekki verið skráður handhafi beingreiðslna í sauðfé, mjólk eða garðyrkju síðastliðin 8 ár frá 1. janúar á umsóknarári.

3. gr.

Handhafar greiðslna.

Greiðslur samkvæmt reglugerð þessari fá þeir framleiðendur einir sem uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. eru skráðir eigendur eða leigjendur lögbýlis og
  2. stunda sauðfjárrækt og reka sauðfjárbú á lögbýlinu með virkt virðisaukaskattsnúmer og starfsemi þeirra fellur undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.

Hjón og einstaklingar í óvígðri sambúð, samkvæmt skráningu í þjóðskrá, sem standa saman að búrekstri geta óskað eftir því við Matvælastofnun að greiðslum samkvæmt reglugerð þessari sé skipt jafnt á milli aðila. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða með aðskilinn búrekstur getur hver og einn þeirra verið handhafi greiðslna.

Skilyrði fyrir greiðslum eru einnig:

  a) þátttaka í afurðaskýrsluhaldi Bændasamtaka Íslands með fullnægjandi skilum í samræmi við 4. gr. og
  b) fullnægjandi skil á haustskýrslu í Bústofn skv. 10. gr. laga nr. 38/2013 um búfjárhald.

Framleiðendur sem eru ekki skráðir þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi eða hafa fallið út úr því vegna skilyrða í 4. gr. skulu sækja um þátttöku til Matvælastofnunar á þar til gerðu eyðublaði í rafrænu umsóknarkerfi stofnunarinnar. Umsóknum skal skila eigi síðar en 10. desember fyrir næsta almanaksár sem stuðningsgreiðslur eiga að hefjast.

4. gr.

Afurðaskýrsluhald.

Til að þátttaka í afurðaskýrsluhaldi í sauðfjárrækt sé metin fullnægjandi skulu eftirfarandi skilyrði vera uppfyllt, en miðað er við að unnt sé að rekja uppruna og afdrif allra gripa í hjörðinni á ein­faldan og öruggan hátt:

  1. Fullnægjandi skil á hjarðbók og heilsukorti, og rétt framkvæmd á merkingum sauðfjár, í samræmi við reglugerð um merkingar búfjár nr. 916/2012 með síðari breytingum.
  2. Allur fjárstofn bús framleiðanda skal skráður í Fjárvís. Eftirfarandi skal skrá eða vera til staðar (lágmarkskröfur):
    a) Afdrif fangs allra áa, þar með talið veturgamalla.
    b) Burðardagsetning og fjöldi fæddra lamba hjá hverri á, þar með talið veturgömlum.
    c) Öll lifandi fædd lömb með lambanúmeri.
    d) Afdrif allra lamba að hausti og fullorðinsnúmer (einstaklingsnúmer) ásettra lamba, líf­þungi og litarnúmer þeirra.
    e) Fallþungi allra sláturgripa, sem byggir á innlesnum sláturgögnum frá sláturhúsum.
    f) Upplýsingar um förgun og vanhöld allra fullorðinna gripa á búinu.
  3. Framleiðandi ber ábyrgð á að fullnægjandi afurðaskýrsluhaldi sé skilað á réttum tíma. Vorbók skal skila eigi síðar en 20. júní á skýrsluhaldsári og haustbók eigi síðar en 12. desember á skýrsluhaldsári.

Matvælastofnun er skylt að tilkynna framleiðanda fyrir 31. desember ár hvert vegna haustbókar og 1. ágúst ár hvert vegna vorbókar, hvort hann standist kröfur um fullnægjandi skýrsluhald. Fram­leiðanda skal veittur að hámarki fjögurra vikna frestur til að ganga frá fullnægjandi skýrslu­halds­skilum eða koma á framfæri andmælum.

Matvælastofnun skal tryggður fullnægjandi aðgangur að Fjárvísi og undirliggjandi gagnagrunni til að tryggja m.a. að Fjárvís uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til fullnægjandi afurðaskýrsluhalds í samræmi við ofangreint.

5. gr.

Fyrirkomulag stuðningsgreiðslna.

Matvælastofnun skal gera ársáætlun fyrir 15. febrúar um heildargreiðslur allra framleiðenda, sem eiga rétt á greiðslum skv. 3. gr. Heildargreiðslur hvers framleiðanda samkvæmt reglugerð þessari skulu áætlaðar miðað við:

  1. framleiðslu fyrra árs,
  2. fjölda vetrarfóðraðra kinda á haustskýrslu í Bústofni,
  3. skráð greiðslumark í ærgildum í upphafi árs og
  4. fjárlög hvers árs.

Heildargreiðslur taka til beingreiðslna, gæðastýringargreiðslna skv. reglugerð nr. 1160/2013 um gæða­stýrða sauðfjárframleiðslu með síðari breytingum, greiðslna fyrir ullarnýtingu og greiðslna vegna svæðisbundins stuðnings. Heildargreiðslu ársins verður deilt í 12 jafna hluta. Fyrstu tveir hlutar eru greiddir í febrúar og síðan mánaðarlega til og með desember.

Heildargreiðslur til nýliða skal áætla út frá ærgildum og fjölda vetrarfóðraðra kinda samkvæmt haustskýrslu í Bústofni. Miða skal við að hver vetrarfóðruð ær tveggja vetra og eldri skili 20 kg af lambakjöti og hver veturgömul ær 10 kg. Jafnframt skal miða við að sérhver vetrarfóðruð kind skili 1,6 kg af hreinni ull. Skiptingu framleiðslu í flokka skal miða við framleiðslu á landsvísu árið á undan. Ef nýliði tekur við búi í fullum rekstri er Matvælastofnun heimilt að áætla greiðslur miðað við síðasta framleiðsluár fyrri eiganda.

Ársáætlun um heildargreiðslur skal kynnt framleiðanda eigi síðar en 15. febrúar ár hvert. Athuga­semdir við áætlunina skulu berast stofnuninni innan 20 daga frá dagsetningu þeirra. Matvæla­stofnun skal svara öllum athugasemdum eigi síðar en 15. apríl ár hvert.

Matvælastofnun er heimilt að leiðrétta áætlun um heildargreiðslur til framleiðenda ef forsendur greiðslna breytast. Stuðningsgreiðslur eru inntar af hendi með fyrirvara um að framleiðandi fullnægi skilyrðum um stuðningsgreiðslur samkvæmt reglugerð þessari.

Uppgjör á heildargreiðslum fyrra árs skal fara fram í febrúar árið eftir. Þá verða greiðslur til fram­leiðenda leiðréttar í samræmi við raunverulega framleiðslu ársins og vegna annarra breytinga á for­sendum heildargreiðslna, svo sem ef þeir standast ekki skilyrði fyrir álagsgreiðslu í gæðastýrðri sauðfjár­framleiðslu. Framleiðanda er skylt að endurgreiða stuðningsgreiðslur ef þær reynast byggðar á röngum eða brostnum forsendum að hluta til eða að öllu leyti.

Ef bú uppfyllir ekki skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum samkvæmt reglugerð þessari er Matvæla­stofnun heimilt að endurkrefja nýjan framleiðanda um allar ofgreiddar stuðningsgreiðslur fyrir búið ef skipt hefur verið um handhafa á árinu.

Ef handhafaskipti eru ekki tilkynnt til Matvælastofnunar með réttum hætti áður en lokauppgjör fer fram þá ber Matvælastofnun ekki að endurkrefja fyrri handhafa um ofgreiddar stuðningsgreiðslur fyrir búið.

Matvælastofnun er heimilt að skuldajafna endurgreiðslukröfu vegna greiðslna af öðrum stuðn­ings­greiðslum skv. samningi um starfsskilyrði í sauðfjárrækt.

Hver framleiðandi getur ekki fengið framlög samkvæmt reglugerð þessari sem nema hærra hlutfalli en 0,4% af árlegum heildarframlögum samkvæmt samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar.

6. gr.

Frestun eða niðurfelling stuðningsgreiðslna.

Ef framleiðandi uppfyllir ekki skilyrði um greiðslur skv. 3. og 4. gr. er Matvælastofnun heimilt að fresta eða fella niður stuðningsgreiðslur sem hér segir:

  a) Stuðningsgreiðslur frestast frá og með 1. september ef vorbók í Fjárvís hefur ekki verið skilað fyrir 20. ágúst á skýrsluhaldsári.
  b) Uppgjör vegna ársáætlunar frestast ef haustbók hefur ekki verið skilað í Fjárvís fyrir 12. desember á skýrsluhaldsári sem uppgjör nær til.
  c) Ef framleiðandi sem greiðslum var frestað hjá skv. a- og b-lið stendur síðan skil á skýrslu­haldi með fullnægjandi hætti í Fjárvís, vor- og haustbók, eigi síðar en 15. janúar árið á eftir skal Matvælastofnun greiða þær stuðningsgreiðslur sem frestað hefur verið til fram­leiðanda.

Matvælastofnun skal endurkrefja framleiðanda um stuðningsgreiðslur fyrir það tímabil sem hann þáði greiðslur fyrir ef hann stendur ekki skil á afurðaskýrsluhaldi.

Matvælastofnun er heimilt að fella niður stuðningsgreiðslur þeirra framleiðenda sem stóðust ekki skilyrði greiðslna skv. 3. og 4. gr. vegna skýrsluhaldsársins á undan, þegar frestur hefur runnið út í samræmi við c-lið. Matvælastofnun skal greiða öðrum framleiðendum sem stóðust skilyrði fyrir greiðslum þá fjármuni sem þannig verða til í samræmi við hlut þeirra í greiðslum ársins á undan.

7. gr.

Opinbert eftirlit.

Ráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt reglugerð þessari. Matvælastofnun fer með fram­kvæmd reglugerðarinnar og hefur eftirlit með að ákvæðum hennar sé fylgt.

8. gr.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga er samráðsvettvangur samningsaðila samnings um starfs­skilyrði sauðfjárræktar.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga aflar upplýsinga um þróun framleiðslu og sölu á sauð­fjár­afurðum, afurðaverð, inn- og útflutning afurða, afkomuþróun í sauðfjárrækt auk annarra upp­lýsinga sem hafa þýðingu fyrir framkvæmd samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar.

Á grundvelli upplýsinga skv. 2. mgr. getur framkvæmdanefnd búvörusamninga ákveðið að færa fjármuni á milli einstakra verkefna sem falla undir samning um starfsskilyrði sauðfjárræktar, sbr. töflu í viðauka I við samninginn. Heimilt er að færa árlega allt að 20% þeirrar fjárhæðar sem ætluð er til hvers verkefnis. Nefndin skal tilkynna Matvælastofnun um tilfærslur sem taka eiga gildi um áramót eigi síðar en 1. desember árið á undan.

Matvælastofnun skal ráðstafa framlögum samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar búvöru­samn­inga.

II. KAFLI

Greiðslumark og beingreiðslur.

9. gr.

Greiðslumark lögbýla.

Greiðslumark lögbýla við gildistöku reglugerðar þessarar skal miðast við greiðslumark eins og það er skráð hjá Matvælastofnun eftir að búið er að skrá tilkynningar um framsal sem skilað verður inn fyrir 15. janúar 2017.

Greiðslumark sem er óvirkt frá gildistöku reglugerðar þessarar í þrjú ár samfellt skal fellt úr gildi.

10. gr.

Beingreiðslur.

Beingreiðslur til lögbýla taka breytingum í samræmi við ákvæði IX. kafla búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum.

Matvælastofnun heldur skrá yfir greiðslumark lögbýla og handhafa beingreiðslna samkvæmt því.

Réttur til beingreiðslna flyst milli aðila innan lögbýlis við handhafaskipti og við breytingu skráningar ef um hjón eða einstaklinga í óvígðri sambúð er að ræða.

Fjármunum sem ekki er ráðstafað vegna skertra beingreiðslna eða óvirks greiðslumarks skal ráð­stafað til annarra verkefna samkvæmt reglugerð þessari í samræmi við ákvörðun framkvæmda­nefndar búvörusamninga.

11. gr.

Aðilaskipti.

Heimilt er að flytja greiðslumark milli lögbýla til 31. desember 2020. Aðilaskipti skulu staðfest af Matvælastofnun og tilkynna skal stofnuninni um þau fyrir 15. janúar ár hvert. Aðilaskipti taka gildi 1. janúar ár hvert og beingreiðslur greiðast nýjum handhafa frá sama tíma. Síðasti dagur til að tilkynna um framsal er 15. janúar 2021.

Með tilkynningu um flutning greiðslumarks sem bundið er við lögbýli skal fylgja staðfesting um eignarhald að lögbýli og samþykki ábúanda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu.

Leiguliða er heimilt að kaupa greiðslumark á lögbýli til 31. desember 2020 og skal það sérstaklega skráð á nafn hans.

Með tilkynningu um aðilaskipti að sérskráðu greiðslumarki í eigu ábúanda eða leiguliða við lok ábúðar eða leigu, sbr. 4. mgr. 38. gr. búvörulaga, skal fylgja staðfesting á eignarhaldi lögbýlis og því að eiganda jarðar hafi verið boðinn forkaupsréttur.

12. gr.

Innlausn.

Matvælastofnun annast innlausn greiðslumarks. Handhafi greiðslumarks getur óskað eftir innlausn á greiðslumarki sínu á þar til gerðu eyðublaði sem Matvælastofnun útvegar. Tilkynningu um innlausn skal skila eigi síðar en 20. janúar á því ári sem innlausn á að fara fram. Matvælastofnun skal aug­lýsa innlausnarvirði greiðslumarks skv. 3. mgr. a.m.k. tveimur vikum áður en skilafrestur til­kynninga um innlausn rennur út.

Með beiðni um innlausn á greiðslumarki skal fylgja staðfesting um eignarhald að lögbýli og sam­þykki ábúanda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu.

Fyrir innleyst greiðslumark greiðir ríkissjóður núvirt andvirði beingreiðslna tveggja næstu alman­aks­ára eftir að innlausnar er óskað. Núvirt andvirði beingreiðslna skal reiknast miðað við stýri­vexti Seðlabankans þann 1. janúar ár hvert. Matvælastofnun skal greiða innleyst greiðslumark til hand­hafa þess eigi síðar en 15. febrúar á innlausnarári.

13. gr.

Ásetningshlutfall.

Til að fá óskertar beingreiðslur þarf framleiðandi að eiga að lágmarki 0,7 vetrarfóðraðar kindur fyrir hvert ærgildi greiðslumarks.

Nái ásetningur ekki því lágmarki skerðast beingreiðslur hlutfallslega. Ef greiðslumarki lögbýlisins er skipt á fleiri en einn rekstraraðila, þá skal miðað við greiðslumark og ásetning hvers rekstraraðila fyrir sig.

Ásetningshlutfall hjá framleiðendum sem hafa skorið niður fé til útrýmingar bótaskyldum sjúk­dómum skal á fyrsta almanaksári eftir fjártöku aðeins nema 1/3 af því sem ákveðið er sam­kvæmt 1. mgr. og á öðru ári 2/3, til að þeir haldi fullum beingreiðslum.

III. KAFLI

Ullarnýting.

14. gr.

Ráðstöfun fjármuna til ullarnýtingar.

Fjármunum til ullarnýtingar skal ráðstafað á eftirgreindan hátt:

  1. Að minnsta kosti 85% skulu greiðast til framleiðenda ullar skv. 3. gr. Fjárhæðinni skal deilt niður hlutfallslega eftir gæðum á hvert kíló hreinnar ullar miðað við alla innlagða ull á tímabilinu 1. nóvember - 31. október samkvæmt verðskrá sem Matvælastofnun útbýr sam­kvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga. Skilyrði fyrir greiðslu fjármuna til fram­leiðenda er að ullin hafi verið flokkuð og metin í samræmi við lög nr. 57/1990, um flokkun og mat á gærum og ull, og reglugerð nr. 856/2003, um ullarmat.
  2. Allt að 15% skulu greiðast til kaupenda ullar sem uppfylla skilyrði skv. 2. mgr. 15. gr. Fjárhæðin skal þó eigi vera hærri en sem nemur kostnaði við söfnun ullarinnar. Gangi af fjárhæðinni skal mismuni ráðstafað skv. 1. tölul.

Verði fjármunum skv. 1. og 2. tölul. ekki ráðstafað innan almanaksársins er Matvælastofnun heimilt að færa þá á milli ára.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga ákveður notkun stuðla til að greiða mishátt álag á einstaka gæðaflokka ullar samkvæmt tillögu Landssamtaka sauðfjárbænda.

15. gr.

Auglýsing.

Í september ár hvert auglýsir Matvælastofnun, eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar, sbr. 2. tölul. 14. gr. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Matvælastofnunar á sérstökum eyðublöðum sem stofnunin lætur í té eigi síðar en tveimur vikum eftir birtingu auglýsingar.

Stuðningur til söfnunar ullar er háður því að umsækjandi uppfylli eftirfarandi skilyrði:

  1. Aðili skal vera reiðubúinn að taka við allri vinnsluhæfri ull af öllum framleiðendum sem þess óska.
  2. Aðili þarf að sækja ull heim til bænda eða taka á móti ullinni á móttökustöð sem ekki er lengra frá hverjum einstökum seljanda ullar en 100 km.
  3. 30% allrar ullar sem aðili móttekur skal þvegin hér á landi og jafnframt unnið úr þessari sömu ull band, lopi eða samsvarandi vara hérlendis.

16. gr.

Upplýsingaskylda.

Ullarkaupendur sem þiggja stuðning til söfnunar ullar skulu skila Matvælastofnun upplýsingum um móttekna ull fyrir 5. hvers mánaðar. Upplýsingar skulu veittar um magn, flokka og þvott sundur­liðaðar niður á hvern seljanda. Upplýsingarnar skal veita með sendingu afreikninga eða sölu­nótna en ef upplýsingar eru sendar á rafrænu formi er ekki skylt að afreikningar eða sölunótur fylgi, aðeins að gögnin séu til staðar og aðgengileg verði eftir þeim leitað. Þá skulu ullarkaupendur skila Matvæla­stofnun ársskýrslu um ullarnýtingu fyrir 1. febrúar ár hvert, þ.m.t. um atriði sem talin eru upp í 1.-3. tölul. 2. mgr. 15. gr.

17. gr.

Greiðslur.

Matvælastofnun ráðstafar greiðslum til framleiðenda ullar. Til að framleiðandi hljóti greiðslur skv. 1. tölul. 13. gr. þurfa að liggja fyrir staðfestar upplýsingar frá aðila sem hlýtur stuðning til söfnunar um móttekna ull skv. 15. og 16. gr.

Til að framleiðandi fái greiðslur fyrir innlagða ull sem hann selur til annarra en þeirra sem hljóta stuðning til söfnunar, sbr. 15. og 16. gr., þarf hann að sjá til þess að upplýsingar, staðfestar af ullar­kaupanda, um þau atriði sem koma fram í 16. gr. berist Matvælastofnun. Framleiðandi og ullar­kaupandi geta samið um að hinn síðarnefndi skili upplýsingunum.

Heimilt er að beita stuðlum þannig að mishátt álag er greitt á einstaka gæðaflokka ullar skv. ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga.

18. gr.

Uppgjör.

Matvælastofnun skal gera samning við þá ullarkaupendur sem hljóta stuðning til söfnunar ullar, sbr. 15. og 16. gr. Í slíkum samningi skal ullarkaupandi skuldbinda sig til þess að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í 1.-3. tölul. 2. mgr. 15. gr. sem og 16. gr.

Matvælastofnun er heimilt að halda eftir 15% af framlögum við gerð ársáætlunar sem verða greidd þegar heildarframleiðsla liggur fyrir. Matvælastofnun skal fyrir 1. mars ár hvert ljúka uppgjöri gagn­vart þeim sem hljóta stuðning til söfnun ullar og seljendum ullar.

IV. KAFLI

Svæðisbundinn stuðningur.

19. gr.

Markmið.

Markmið svæðisbundins stuðnings er að styðja þá framleiðendur sem eru á landsvæðum sem eru háðust sauðfjárrækt og framleiðendur hafa takmarkaða möguleika á annarri tekjuöflun.

20. gr.

Sauðfjársvæði.

Framleiðendur sem eiga rétt á svæðisbundnum stuðningi skulu uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:

  1. Lögbýli sé í 40 km akstursfjarlægð eða lengra frá þéttbýlisstöðum sem eru með yfir 1.000 íbúa.
  2. Lögbýli sé í 75 km akstursfjarlægð eða lengra frá þéttbýlisstöðum sem eru með yfir 10.000 íbúa.
  3. Lögbýli sé í 150 km akstursfjarlægð eða lengra frá Reykjavík.

Matvælastofnun skal byggja á gögnum frá Byggðastofnun hvað varðar lista yfir þau sauðfjárbú sem standast ofangreind skilyrði.

Matvælastofnun er heimilt að víkja frá skilyrðum 1. mgr. ef framleiðandi sýnir fram á með gögnum að þjóðvegur að lögbýli þar sem hann stundar sauðfjárrækt hafi lokast vegna snjóa, skriðufalla og vatnavaxta í meira en fimm daga á ári síðastliðin tvö ár.

21. gr.

Rétthafar greiðslna.

Rétthafar greiðslna skulu uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. Vera handhafi greiðslna samkvæmt reglugerð þessari, sbr. 3. gr.
  2. Hafa átt 250 ær eða fleiri samkvæmt haustskýrslu næstliðið haust.

Framleiðendur í Árneshreppi teljast þó uppfylla b-lið 1. mgr. ef þeir eiga 100 ær eða fleiri sam­kvæmt haustskýrslu næstliðið haust.

22. gr.

Framlög.

Framlög til svæðisbundins stuðnings skulu skiptast á milli rétthafa á hverjum tíma og taka breyt­ingum miðað við breytingar á fjölda rétthafa.

Framleiðendur í Árneshreppi skulu fá greitt 25% álag á framlög skv. 1. mgr.

VI. KAFLI

Gildistaka og fleira.

23. gr.

Kæruheimild.

Ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu á greiðslumarki lögbýla og rétt til beinna greiðslna er heimilt að skjóta til úrskurðar ráðherra innan þriggja mánaða, sbr. VII. kafla stjórnsýslulaga.

24. gr.

Endurgreiðsla ofgreiddra greiðslna.

Ef greiðslur samkvæmt reglugerð þessari hafa verið ofgreiddar ber handhafa greiðslna að endur­greiða ríkinu hið ofgreidda fé. Beri að endurgreiða greiðslur skal handhafi endurgreiða greiðslur með vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá þeim tíma er greiðslan átti sér stað og þar til endur­greiðsla fer fram. Auk almennra vaxta skal handhafi greiða dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001. Vextir skulu þó ekki greiddir ef endur­greiðsla fer fram innan 30 daga frá því að greiðsla fór fram.

25. gr.

Skerðing og niðurfelling stuðningsgreiðslna.

Matvælastofnun er heimilt að skerða eða fella niður stuðningsgreiðslur skv. 5. gr. og einnig ef fram­leiðandi í sauðfjárrækt gefur vísvitandi rangar upplýsingar eða brýtur á annan hátt skilyrði í reglu­gerð þessari.

26. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið skv. lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

27. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum og búnaðarlögum nr. 70/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 1221/2015 um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2016. Þá eru við gildis­tökuna felldar úr gildi reglur nr. 522/2005 um úthlutun andvirðis beingreiðslna af 7500 ærgild­um á árunum 2005-2007, með síðari breytingum og reglur nr. 490/2014 um áframhaldandi úthlutun andvirðis beingreiðslna af 7500 ærgildum á árunum 2014-2017.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir 4. mgr. 4. gr. skulu framleiðendur sem ekki eru skráðir þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi sækja um þátttöku til Matvælastofnunar á þar til gerðu eyðublaði í rafrænu umsóknarkerfi stofn­unarinnar. Umsóknum skal skila eigi síðar en 27. desember 2016 fyrir árið 2017.

Þrátt fyrir 27. gr. skal verðskrá Matvælastofnunar vegna ullarnýtingar halda gildi sínu til 31. október 2017 skv. 1. tl. 2. gr. verklagsreglna um ráðstöfun fjár í viðauka I við reglugerð nr. 1221/2015 um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2016.

Þrátt fyrir 27. gr. skulu verklagsreglur í viðauka IV við reglugerð nr. 1221/2015 um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2016 halda gildi sínu gagnvart þeim aðilum sem fengið hafa bústofns­kaupa­styrki til frumbýlinga til og með 31. desember 2016. Einnig er þeim aðilum heimilt að leggja fram framhaldsumsóknir á árinu 2017 samkvæmt ákvæðum þeirra reglna.

Þrátt fyrir 27. gr. skal uppgjör ársins 2016 fara fram í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1221/2015 um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. desember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Rebekka Hilmarsdóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica