Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1024/2016

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III B og IV B við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.:     stk. % kr./stk.
0602.2000 Tré, runnar og búskar, einnig ágrætt sem ber æta ávexti eða hnetur. 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0602.3000 Alparósir og glóðarrósir, einnig ágræddar 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
  Rósir, einnig ágræddar:        
0602.4010 Í smásöluumbúðum 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0602.4090 Aðrar 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0602.9030 Matjurta- og jarðarberjaplöntur 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
  Annað: Útiplöntur: - Tré, runnar og búskar:        
0602.9041 Skógartré 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
  Annað:        
0602.9045 Græðlingar með rót og ungplöntur 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0602.9049 Annars 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
  Aðrar útiplöntur:        
0602.9051 Fjölærar jurtkenndar plöntur 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
  Græðlingar með rót og ungplöntur, þó ekki kaktusar:        
0602.9071 Til framhaldsræktunar í garðyrkjustöðvum í a.m.k. tvo mánuði: 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0602.9079 Annars 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
  Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:        
0602.9091 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.01.-30.06.17 2.200 30 0
0602.9091 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.07.- 31.12.17 1.650 30 0
0602.9092 Aðrar 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
  Aðrar:        
0602.9093 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.01.-30.06.17 3.000 30 0
0602.9093 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.07.-31.12.17 2.160 30 0
0602.9099 Annars 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
  Lifandi:        
0603.1100 Rósir 01.01.-30.06.17 2.000 30 0
0603.1300 Brönugrös (orchids) 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.01.-30.06.17 9.000 30 0
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.07.-31.12.17 6.500 30 0
0603.1901 Ættkvíslirnar Protea, Banksia, Leucadendron og Brunia 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0603.1902 Afskornar greinar með berjum og ávöxtum, óætum af ættkvíslunum: Ligustrum, Callicarpa, Gossypium, Hypericum, Ilex og Symphoricarpos 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0603.1903 Forsythia (páskagreinar) 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0603.1909 Annars (afskorin blóm) 01.01.-30.06.17 166.250 30 0
0603.1909 Annars (afskorin blóm) 01.07.-31.12.17 118.750 30 0
  Annað:        
0604.2030 Jólatré, án rótar 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0604.2040 Jólatrésgreinar 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0604.2090 Annað 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0
0604.9090 Annars 01.01.-31.12.17 ótilgr. 30 0

Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ekki tilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil. Fyrir þau tollskrár­númer sem vörumagn er tilgreint gildir tiltekinn verð- og/eða magntollur samkvæmt útgefnum tollkvótum.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Við úthlutun á tollkvótum sem fellur undir tollskrárnúmer þar sem vörumagn er tilgreint skal aug­lýsa eftir umsóknum um tollkvóta.

4. gr.

Verði umsóknir um tollkvóta í þeim tollskrárnúmerum þar sem magn er tilgreint meiri en það magn sem auglýst er skal leita tilboða í tollkvóta. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 189/1990, um inn­flutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum, með síðari breytingum.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 65. gr. og 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. og 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. nóvember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Baldur Sigmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica