Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

593/2016

Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 258/2012 um rækjuveiðar innfjarða. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Rækjuveiðar á Eldeyjarsvæðinu eru heimilar frá gildistöku reglugerðar þessarar og til og með 31. desember 2016. Taka skal 3 sýni, a.m.k. 1 kg hvert, úr rækjuafla vikulega þann tíma sem veiðar eru stundaðar skv. þessari reglugerð. Sýni skal afhenda útibúi Hafrannsóknarstofnunar á Ísafirði.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. júlí 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Baldur P. Erlingsson.

Hinrik Greipsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica