Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

186/2016

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 907/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 18. tölul., svohljóðandi:

18. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/604 um breytingu á I. og II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar dýraheilbrigðiskröfur vegna berkla í nautgripum í fyrirmyndum að heilbrigðisvottorðum BOV-X og BOV-Y fyrir dýr og dýraafurðir og færslurnar fyrir Ísrael, Nýja-Sjáland og Paragvæ í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem aðflutningur til Sambandsins á lifandi dýrum og nýju kjöti er leyfður.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. febrúar 2016.

F.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.