Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

47/2016

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 943/2015 um loðnuveiðar íslenskra skipa á haust- og vetrarvertíð 2015 til 2016. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. eru loðnuveiðar í flotvörpu heimilar frá gildistöku reglugerðar þessarar til og með 10. febrúar 2016 innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirfarandi punkta:

          1. 67° 11´ N – 014° 30´ V
          2. 67° 20´ N – 018° 00´ V
          3. 68° 00´ N – 018° 00´ V
          4. 68° 00´ N – 014° 30´ V

Hafrannsóknastofnun og Fiskistofa skulu fylgjast náið með hlutfalli ungloðnu og meðafla í loðnuafla á framangreindu svæði. Eftirlitsmenn Fiskistofu skulu vera um borð í skipum á meðan á veiðum stendur skv. nánari ákvörðun Fiskistofu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. janúar 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica