Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

761/2015

Reglugerð um heimild til flutnings á allt að 25% aflamarks í úthafsrækju frá fiskveiðiárinu 2014/2015 yfir á fiskveiðiárið 2015/2016. - Brottfallin

1. gr.

Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki í úthafsrækju frá fiskveiðiárinu 2014/2015 yfir á fiskveiðiárið 2015/2016.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. ágúst 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Brynhildur Benediktsdóttir.

Erna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica