Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

364/2015

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

1. gr.

Við upptalningu á skaðvöldum í viðauka I með reglugerðinni bætist eftirfarandi:

Phytophthora ramorum lyngrós, lerki, eik o.fl.

2. gr.

Við viðauka III bætist eftirfarandi: trjáættkvísl sem bannað er að flytja til landsins (fræ eru undanskilin).

12) Þinur (Abies spp.) til áframhaldandi ræktunar.

3. gr.

Við viðauka IV bætist nýr liður í plöntur til áframhaldandi ræktunar eða fjölgunar:

f) Lyngrósir (Rhododendron spp.) að undanskilinni Rhododendron simsii, má eingöngu flytja inn ef plöntur koma frá vaxtarstað þar sem Phytophthora ramorum finnst ekki.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum og öðlast gildi 1. júní 2015.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. mars 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Baldur Arnar Sigmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.