Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

114/2015

Reglugerð um heimild færeyskra skipa til síldveiða við Ísland á árinu 2015. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi lýtur að framkvæmd samninga sem íslensk stjórnvöld hafa gert við færeysk stjórnvöld og um heimildir skipa frá Færeyjum til veiða á síld úr norsk-íslenska síldar­stofninum í efnahagslögsögu Íslands á árinu 2015.

2. gr.

Veiðar, sbr. 1. gr., innan íslenskrar efnahagslögsögu eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu. Um borð í veiðiskipi skal vera staðfesting þess að viðkomandi skip hafi leyfi til síldveiða í efnahagslögsögu Íslands og ennfremur reglur, sem um síldveiðarnar gilda.

Færeysk stjórnvöld skulu sækja um leyfi fyrir skip til síldveiða til Fiskistofu. Í umsókn skal tilgreina nafn skips, skrásetningarnúmer, stærð, tegund fjarskiptabúnaðar og kallmerki.

3. gr.

Færeyskum skipum er óheimilt að stunda síldveiðar á svæði sunnan 67°00´N og vestan 011°30´V. Þó er færeyskum skipum heimilt, fyrir sunnan 67°00´N, að stunda síldveiðar upp að eftirfarandi línu:

  1. 67°00,00´N - 013°19,00´V
  2. 66°42,00´N - 012°50,00´V
  3. 66°06,00´N - 011°33,00´V
  4. 65°27,00´N - 011°24,00´V
  5. 65°00,00´N - 011°28,00´V
  6. 64°32,30´N - 011°41,00´V
  7. 64°21,70´N - 012°17,30´V
  8. 64°00,00´N - 013°07,00´V
  9. 63°43,00´N - 014°00,00´V

og þaðan réttvísandi í 180° að mörkum efnahagslögsögunnar.

Færeysk veiðiskip skulu hlíta þeim takmörkunum sem síldveiðum eru settar í sérstökum reglugerðum eða skyndilokunum.

Stundi færeysk skip síldveiðar fyrir sunnan 67°00´N og vestan 011°30´V skal skipstjóri taka sýni úr afla. Sýni skulu tekin úr hverju kasti eða togi og skal sýnatakan framkvæmd fyrir stærðarflokkun afla og framkvæmd þannig að tekið skal eitt 50 sílda sýni úr hverju kasti eða togi. Hvert sýni skal aðgreint til tegunda svo unnt sé að greina íslenska sumar­gots­síld frá norsk-íslenskri síld í samræmi við kynþroskastig. Skipstjóri skal skrá hlut­fall síldartegunda í afladagbók.

4. gr.

Fiskiskipum sem leyfi hafa fengið skv. 2. gr. til veiða í efnahagslögsögu Íslands, er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar sem uppfylla ákvæði um afladagbækur samkvæmt kafla III og viðauka IV í reglum Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). Skulu Fiski­stofu sendar staðfestar löndunartölur og afrit af afladagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót.

Veiðarfæri, sem ætluð eru til annarra veiða en leyfi miðast við, skulu geymd í sérstakri veiðarfærageymslu.

5. gr.

Skip sem leyfi hafa fengið til síldveiða, sbr. 2. gr., skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða með sjálfvirkum hætti á klukkustundar fresti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu og Fiskistofu hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin.

6. gr.

Um siglingu skips, á leið til veiðisvæðis áður en veiðar í efnahagslögsögu Íslands hefjast og á leið út úr efnahagslögsögu Íslands, gilda ákvæði reglugerðar um eftirlitsstaði erlendra skipa vegna veiða og siglinga í íslenskri fiskveiðilögsögu nr. 1133/2013, þar sem fram kemur staðsetning athugunarstaðanna.

7. gr.

Tilkynna skal Landhelgisgæslunni siglingu skipsins inn í íslenska efnahagslögsögu með minnst 2 klukkustunda fyrirvara og mest 6 klukkustunda fyrirvara.

Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "komutilkynning" (catch on entry report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Haldi skip til veiða úr íslenskri höfn skal það tilkynnt Landhelgisgæslunni á sama hátt og greint er í 1. mgr.

8. gr.

Skip sem stundar veiðar í efnahagslögsögu Íslands skal á hverjum degi á tímabilinu frá kl. 06.00 til 08.00 að íslenskum tíma, senda Landhelgisgæslunni tilkynningu þar sem eftir­far­andi kemur fram í þessari röð:

Orðið "aflatilkynning" (catch report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.
Afli síðasta sólarhrings, miðað við kl. 24.00, eða afli frá því skipið kom inn í efna­hags­lögsögu Íslands sé um skemmri tíma að ræða, sundurliðaður eftir teg­undum.

9. gr.

Þegar skip lýkur veiðum í efnahagslögsögu Íslands skal það tilkynnt Landhelgisgæslunni. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "lokatilkynning" (catch on exit report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.
Afli síðan síðasta aflatilkynning var send, sundurliðaður eftir tegundum.

10. gr.

Áður en skip heldur út úr efnahagslögsögu Íslands skal senda Eftirlitsstöðinni tilkynningu um það og komutíma í athugunarstað með minnst 2 klukkustunda fyrirvara og mest 6 klukku­stunda fyrirvara. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "athugunartilkynning" (CON report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Athugunarstaður sem siglt verður um, sbr. 6. gr. og fyrirhugaður komutími á staðinn.

Landi skip afla sínum í íslenskri höfn skal tilkynna það Eftirlitsstöðinni á sama hátt og greint er frá í 1. mgr. en í stað athugunarstaðar í síðasta lið verði greint frá löndunarhöfn.

Heimilt er að senda saman tilkynningu um lok veiða, sbr. 9. gr. og um komu á athug­unar­stað. Við sendingu slíkrar tilkynningar eiga við ákvæði þessarar greinar að öðru leyti en því að í stað orðsins: "athugunartilkynning" (CON report) koma orðin: "loka- og athugunar­tilkynning" (COX og CON report).

11. gr.

Tilkynningar samkvæmt 6.-10. gr. skal senda á íslensku eða ensku og skulu tímasetningar vera samkvæmt íslenskum tíma (UTC).

12. gr.

Skip sem stunda veiðar í efnahagslögsögu Íslands samkvæmt reglugerð þessari skulu hlíta ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, nema annað sé sérstaklega ákveðið í reglugerð þessari og sömu reglum og íslensk skip við sams konar veiðar, m.a. um veiðibönn, friðunarsvæði og aðra lokun svæða.

13. gr.

Eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar er í höndum Landhelgisgæslu Íslands, Fiski­stofu og eftirlitsmanna í hennar þjónustu. Heimilt er ráðuneytinu að ákveða að skipin skuli sigla inn og út úr efnahagslögsögunni á tilteknum athugunarstöðvum og að þeim beri að tilkynna komu sína á þá með ákveðnum fyrirvara.

Fiskistofu er heimilt að setja veiðieftirlitsmenn um borð í veiðiskip sem leyfi hafa til veiða innan íslenskrar efnahagslögsögu. Skal útgerð skips sjá eftirlitsmönnum fyrir fæði og aðstöðu meðan þeir eru um borð í veiðiskipi og ennfremur greiða allan kostnað af veru þeirra um borð í skipinu.

Telji Landhelgisgæslan eða Fiskistofa að eftirlit samkvæmt reglugerð þessari geti ekki farið fram á sjó, skal hlutaðeigandi skipi skylt að hlíta fyrirmælum um að halda til nálægrar hafnar þar sem eftirlit getur farið fram.

14. gr.

Fiskistofa getur svipt skip leyfi til veiða innan efnahagslögsögunnar brjóti útgerð, áhöfn skipsins eða aðrir þeir er í þágu útgerðar starfa gegn lögum sem um hlutaðeigandi veiðar gilda, reglugerð þessari eða ákvæðum milliríkjasamninga.

15. gr.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála.

16. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. febrúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica