Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

115/2015

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 927/2014, um loðnuveiðar grænlenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2014/2015. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Grænlenskum skipum er heimilt að veiða samtals 53.740 lestir af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands. Eftir 15. febrúar og sunnan 64°30´N er grænlenskum skipum þó einungis heimilt að veiða 23.000 lestir.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. febrúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica