Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

126/2015

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. bætist einn nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 492/2014 frá 7. mars 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 að því er varðar reglur varðandi endurnýjun leyfa fyrir sæfivörum sem falla undir gagnkvæma viðurkenningu sem vísað er til í tl. 12nna, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 266/2014, þann 12. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 5. febrúar 2015, bls. 526 til 531.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 492/2014 frá 7. mars 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 að því er varðar reglur varðandi endurnýjun leyfa fyrir sæfivörum sem falla undir gagnkvæma viðurkenningu.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. febrúar 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.