Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

855/2014

Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á nautakjöti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á nautakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Verðtollur

Magntollur

%

kr./kg

Tollskrárnr.:

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst:

Sneitt á annan hátt með beini:

0202.2001

Hryggir og hryggsneiðar

01.10.14 - 30.11.14

0

316

0202.2002

Læri og lærisneiðar

01.10.14 - 30.11.14

0

225

Beinlaust:

0202.3002

Lundir

01.10.14 - 30.11.14

0

658

0202.3003

Hryggvöðvar

01.10.14 - 30.11.14

0

489

0202.3004

Vöðvar af læri

01.10.14 - 30.11.14

0

456

0202.3009

Annað (hakkefni)

01.10.14 - 31.12.14

0

270

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. desember 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. september 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica