Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

976/2013

Reglugerð um sérstök línu- og netasvæði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 4. nóvember 2013 til og með 31. desember 2013, eru allar veiðar með fiski­botnvörpu bannaðar á svæði suður af Reykjanesskaga sem markast af eftirfarandi punktum:

  1. 63°49,30´ N - 021°39,10´ V
  2. 63°30,00´ N - 021°39,00´ V
  3. 63°40,00´ N - 022°32,00´ V
  4. 63°48,70´ N - 022°32,00´ V
  5. 63°49,80´ N - 022°04,20´ V

2. gr.

Frá og með 4. nóvember 2013 til og með 30. apríl 2014, eru allar veiðar með fiski­botn­vörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem markast af eftirfarandi punktum:

  1. 64°20,00´ N - 023°08,00´ V
  2. 64°04,90´ N - 022°43,60´ V
  3. 64°02,00´ N - 022°44,40´ V
  4. 64°02,00´ N - 023°42,00´ V
  5. 64°20,00´ N - 023°42,00´ V

3. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftir­breytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. nóvember 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Hrefna Karlsdóttir.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica