Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 9. júní 2023

320/2013

Reglugerð um ábyrgðartryggingu verðbréfamiðlana.

1. gr. Gildissvið og markmið.

Verðbréfamiðlun er skylt að hafa í gildi ábyrgðartryggingu fyrir tjóni sem það kann að baka viðskiptavinum sínum í starfsemi sinni, sbr. 3. mgr. 26. gr. laga nr. 161/2002.

Með verðbréfamiðlun er átt við fjármálafyrirtæki með starfsleyfi skv. 6. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Verðbréfamiðlun stundar viðskipti og þjónustu með fjármálagerninga sem felur í sér móttöku og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga og/eða fjárfestingarráðgjöf.

2. gr. Skilgreiningar.

Um skilgreiningar á hugtökum fer eftir ákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og laga um vátryggingasamninga nr. 56/2010 eftir því sem við á.

3. gr. Efnd tryggingarskyldu.

Verðbréfamiðlun uppfyllir tryggingarskyldu sína með því að kaupa vátryggingu hjá vátryggingafélagi sem hefur starfsleyfi hér á landi eða í öðru aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu eða tryggingu hjá viðskiptabanka, sparisjóði eða annarri lánastofnun sem hefur starfsleyfi hér á landi eða í öðru aðildarríki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Ábyrgðartrygging verðbréfamiðlunar skal taka til starfsemi hennar hvar sem er innan Evrópska efnahagssvæðisins.

4. gr. Fjárhæð tryggingar.

Ábyrgðartrygging verðbréfamiðlunar skal bæta viðskiptavinum almennt fjártjón sem leitt verður af gáleysi í störfum starfsmanna hennar. Ábyrgðartrygging skal tekin til eins árs í senn og nema minnst 22.224.123 kr. vegna hvers einstaks tjónsatviks sem verður á tryggingartímabilinu. Heildarfjárhæð tryggingabóta innan hvers tryggingartímabils getur þó ekki orðið hærri en 66.676.317 kr. Fjárhæðir þessar skulu taka mið af breytingu á vísitölu neysluverðs í janúarmánuði ár hvert og miðast fyrrgreindar upphæðir við vísitölu neysluverðs í janúar 2012.

Vátryggingafélagi eða öðrum aðila sem hafa starfsleyfi hér á landi á grundvelli 21. gr. laga nr. 56/2010 er heimilt að endurkrefja hvern þann sem veldur tjóni af stórkostlegu gáleysi.

5. gr. Brottfall tryggingar.

Falli ábyrgðartrygging úr gildi skal hlutaðeigandi vátryggingafélag eða aðili sem hefur starfsleyfi á grundvelli 21. gr. laga nr. 56/2010 tilkynna það tryggingataka og Fjármálaeftirlitinu þegar í stað. Niðurfelling ábyrgðartryggingar hefur ekki áhrif á tjónþola fyrr en átta vikur eru liðnar frá því að vátryggingafélag eða annar aðili sem hefur starfsleyfi á grundvelli 21. gr. laga nr. 56/2010 tilkynnti tryggingataka og Fjármálaeftirlitinu sannanlega um tryggingarslit.

Falli vátrygging úr gildi og fullnægjandi ábyrgðartrygging hefur ekki verið sett, getur Fjármálaeftirlitið beitt vátryggingartaka þeim viðurlögum sem lög heimila.

6. gr. Eigin áhætta.

Heimilt er að áskilja sjálfsáhættu verðbréfamiðlunar í tryggingarskilmálum en slíkt má ekki skerða réttarstöðu þriðja manns til bóta. Tilhögunar eigin áhættu skal getið í skilmálum tryggingar. Sé trygging í formi vátryggingar er jafnframt heimilt að geta eigin áhættu í vátryggingaskírteini eða iðgjaldskvittun.

7. gr. Skilmálar.

Skilmálar ábyrgðatrygginga skv. reglugerð þessari skulu látnir Fjármálaeftirliti í té áður en þeir eru boðnir verðbréfamiðlunum.

8. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 3. mgr. 26. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki með áorðnum breytingum og öðlast þegar gildi.

Með reglugerð þessari fellur úr gildi reglugerð nr. 508/2000 um ábyrgðartryggingu verðbréfamiðlara.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. mars 2013.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.