Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

964/2012

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 258/2012 um rækjuveiðar innfjarða. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir orðinu "Ísafjarðardjúp" í 3. tölulið 2. mgr. 1. gr. bætist: fyrir utan línu sem dregin er á milli Kambsness og Vébjarnarnúps.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr., sbr. 1. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 7. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar til þess að öðlast gildi 19. nóvember 2012 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, 15. nóvember 2012.

F. h. r.

Hrefna Karlsdóttir.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica