Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

904/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 134/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1688/2005 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 að því er varðar sérstakar ábyrgðir varðandi salmonellu vegna sendinga af tilteknum tegundum kjöts og eggja til Finnlands og Svíþjóðar.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 137/2007, frá 27. október 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1223/2011 um breyt­ingu á reglugerð (EB) nr. 1688/2005 að því er varðar sýnatökur úr uppruna­hópum eggja og örverufræðilegar rannsóknir á slíkum sýnum og sýnum úr tilteknu kjöti sem á að flytja til Finnlands og Svíþjóðar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 27. september 2012, bls. 340.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2012.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica