Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

758/2012

Reglugerð um friðun rannsóknasvæðis á hrygningartíma steinbíts. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 15. september til og með 15. nóvember eru allar veiðar bannaðar á svæði á Látragrunni sem markast af línum sem dregnar eru á milli eftirgreindra punkta:

  1. 65°25,34´N - 26°26,94´V
  2. 65°25,34´N - 26°24,53´V
  3. 65°17,00´N - 26°24,53´V
  4. 65°17,00´N - 26°26,94´V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opin­berra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. september 2012.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica