Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1068/2015

Reglugerð um ótímabundið bann við veiðum skipa með dregin veiðarfæri á svæði út af Aðalvík. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 2. desember 2015 er öll veiði skipa með dregin veiðarfæri bönnuð ótímabundið út af Aðalvík á svæði sem afmarkast af:

1. 66°25,500´ N - 23°25,300´ V
2. 66°25,500´ N - 23°20,300´ V
3. 66°23,500´ N - 23°20,300´ V
4. 66°23,500´ N - 23°25,300´ V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. desember 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica