Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

780/2015

Reglugerð um bann við dragnótaveiðum fyrir Norðurlandi. - Brottfallin

1. gr.

Til og með 31. ágúst 2017 eru allar dragnótaveiðar bannaðar á eftirgreindum svæðum:

  1. Húnafjörður innan svæðis sem markast af línum sem dregnar eru á milli Sölvabakka 65°42,5´N - 020°16,5´V, norðurenda Fáskrúðsskers 65°42,5´N - 020°42,8´V og þaðan í 180° réttvísandi til lands.
  2. Skagafjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er á milli Ásnefs 65°56,5´N - 019°53,0´V og Þórðarhöfða 65°58,4´N - 019°29,7´V.
  3. Hrútafjörður - Miðfjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er þvert yfir utanverðan Hrútafjörð og Miðfjörð eftir 65°26´N.
    Þrátt fyrir ákvæði 1. ml. er vesturhluti Hrútafjarðar opinn fyrir veiðum með dragnót vestan línu sem dregin er eftir 21°08´V, frá og með 1. júní til 1. mars utan línu sem dregin er eftir 65°23´N og frá og með 1. nóvember til og með 31. janúar utan línu sem dregin er eftir 65°21´50 N og vestan línu sem dregin er eftir 21°08´V. Miðfjörður er opinn fyrir veiðum með dragnót utan línu sem dregin er eftir 65°23´N á tímabilinu frá og með 1. júní til 1. mars.
  4. Húnaflói - veiðar eru bannaðar skipum lengri en 22 m að mestu lengd innan línu sem dregin er eftir 66°00´N þvert yfir Húnaflóa.
    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru skipum lengri en 22 metrar sem stundað hafa veiðar með dragnót í Húnaflóa á síðastliðnum þremur árum heimilar veiðar innan fyrrgreindrar línu.
  5. Úti fyrir Ströndum innan svæðis sem markast af línu sem dregin er milli Rana í Hornbjargi 66°27,3´N - 022°24,1´V í Selsker 66°07,5´N - 021°30,0´V og þaðan í Gjögurvita 65°59,3´N - 021°19,0´V.

2. gr.

Þá eru dragnótaveiðar bannaðar á eftirgreindum svæðum:

  1. Á Ólafsfirði innan línu, sem dregin er úr Bríkurskeri 66°07,26´N - 18°36,58´V og þaðan í Æðasker 66°05,62´N - 18°33,56´V, sunnan fjarðarins.
  2. Á Eyjafirði innan línu, sem dregin er réttvísandi austur/vestur um Hríseyjarvita, frá 66°01,09´N - 18°16,75´V til 66°01,09´N - 18°30,55´V.
  3. Á Skjálfandaflóa innan línu, sem dregin er milli Bríkur 66°06,39´N - 17°49,32´V og þaðan í Stórastakk (Stakka) 66°09,77´N - 17°16,54´V á tímabilinu frá 15. mars til 1. september.

3. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 1064/2013, um bann við dragnótaveiðum fyrir Norðvesturlandi og út af Ströndum, með síðari breytingum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. september 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Sigríður Norðmann.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica