Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

623/2016

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar ráðsins (ESB), á sviði samkeppnismála, nr. 1269 frá 5. desember 2013, sem uppfærir reglugerð nr. 802/2004, um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 139/2004 um eftirlit með samfylkingum.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2014 frá 27. júní 2014 gildir eftirtalin ESB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1269/2013 frá 5. desember 2013 um breytingu á reglugerð nr. 802/2004 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 139/2004 um eftirlit með samfylkingum.

2. gr.

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 139/2004 hefur áður verið birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 654/2005 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2005, bls. 1452-1474.

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1269/2013 er birt EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, 25. september 2014, bls. 1165-1200.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júlí 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Sigrún Brynja Einarsdóttir.

Ólafur Egill Jónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.