Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

553/2015

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 532/2015 um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2015. - Brottfallin

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

 

a)

Í stað orðsins "og" á eftir "reglugerðar nr. 327/2013" í 2. tl. 1. mgr. kemur: eða.

 

b)

2. mgr. verður svohljóðandi: Fiskistofa skal, heimila tilfærslu á viðmiðun aflareynslu, annarra réttinda og úthlutaðra aflaheimilda á milli fiskiskipa, að hluta til eða öllu leyti, þegar um er að ræða breytingu á skipastól. Það er skilyrði þessa að fyrir liggi samþykki eigenda beggja skipa fyrir tilfærslunni sé ekki um skip í eigu sömu útgerðar að ræða.

 

c)

Í stað "50%" í 3. mgr. kemur: 40%.



2. gr.

4. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

 

a)

Í stað "2.-4. tl. 2. gr." í 1. málsl. 4. tl. 4. gr. kemur: 1.-4. tl. 1. mgr. 2. gr.

 

b)

Við 1. tl. 4. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hafi aflaheimildir verið færðar milli skipa í eigu sömu útgerðar, gilda ákvæði 1. málsl. 3. mgr. 2. gr. einnig um þær aflaheimildir og fellur leyfi þess skips til makrílveiða niður, sem aflaheimildir eru fluttar til, hafi 40% af samanlögðum aflaheimildum þess ekki verið landað 20. ágúst 2015.



3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breyt­ingum og lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breyt­ingum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. júní 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica