Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

398/2016

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2113 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla, IAS-staðla 16 og 41.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2016, frá 29. apríl 2016, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2113 frá 23. nóvember 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla, IAS-staðla 16 og 41.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2015/2113 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 27/2016, 12. maí 2016, bls. 1405.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. maí 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Harpa Theodórsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.