Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

330/2017

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, 64., 65., 66. og 67. tölul. svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/576 frá 14. apríl 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið rafoxaníð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2017 frá 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 311.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/710 frá 12. maí 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið koparkarbónat. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2017 frá 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 314.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/885 frá 3. júní 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið eprínómektín. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2017 frá 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 317.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1444 frá 31. ágúst 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar efnið hýdrókortísónasepónat. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 24/2017 frá 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 320.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. mars 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.