Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

796/2006

Reglugerð um þátttöku ríkisins í kostnaði við samskiptahjálpartæki fyrir þá sem eru alvarlega heyrnarskertir og daufblindir.

1. gr. Styrkur til alvarlegra heyrnarskertra og daufblindra.

Heyrnar- og talmeinastöð veitir styrk til kaupa á samskiptahjálpartækjum sbr. fylgiskjal I fyrir alvarlega heyrnarskerta og daufblinda sem hér segir:

  1. Fyrir þá sem eru eldri en átta ára og hafa tónmeðalgildi > 70 dB og/eða talgreiningu undir 30% greiðast kr. 30.000. Þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.
  2. Fyrir þá sem eru eldri en átta ára og hafa verið greindir daufblindir greiðast kr. 45.000. Þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.

Einstaklingur getur mest notið greiðsluþátttöku fyrir hvert samskiptahjálpartæki skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. á tveggja ára fresti.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr., sbr. 4. mgr., 37. gr. a. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 887/2003 um þátttöku ríkisins í kostnaði við hjálpartæki á árinu 2003 fyrir þá sem eru alvarlega heyrnarskertir og daufblindir.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 21. september 2006.

Siv Friðleifsdóttir.

Ragnheiður Haraldsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.