1. gr.
Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu eins og nánar greinir í 2. gr., sbr. reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, nr. 612/2005.
2. gr.
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 104/2004 frá 22. janúar 2004 um setningu reglna um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2005 frá 8. febrúar 2008. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 22. október 2007.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)