Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

978/2011

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008
um aukefni í matvælum.

1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2011, frá 21. maí 2011, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
    Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.

2. gr.
Birting.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1333/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55, frá 7. október 2011, bls. 105.


3. gr.
Viðbætur.
Eftirfarandi viðbætur verða á efnisákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008:

a) Þrátt fyrir ákvæði vii, a-liðar, 2. tl., 3. gr. telst ammóníumklóríð til matvælaaukefna.


4. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


5. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


6. gr.
Lagastoð.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.


7. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.


Ákvæði til bráðabrigða.
Í samræmi við bráðabirgðaákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um skrá bandalagsins yfir matvælaaukefni sem samþykkt hafa verið til notkunar í matvæli og skilyrði fyrir notkun þeirra gilda ákvæði reglugerðar nr. 285/2002 um aukefni í matvælum, með síðari breytingum varðandi notkun og hámarksgildi aukefna í matvælum, aukefni í bragðefnum og hreinleika aukaefna.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. október 2011.

Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.

B_nr_978_2011.docx

Breytingar:
1117/2011 - Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.
398/2013 - Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.
921/2012 - Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt