Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1079/2010

REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

1. gr.
Í stað orðanna „félags- og tryggingamálaráðherra“ í 2. gr. kemur: velferðarráðherra.


2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:

Í stað orðanna „heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skv. 44. gr.“ í 2. mgr. kemur: ráðherra skv. 5. mgr. 48. gr.

2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Reglugerð nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, með síðari breytingu, gildir um framkvæmd Tryggingastofnunar ríkisins.


3. gr.
4. málsl. 7. gr. orðast svo: Nú tekst stofnun ekki að innheimta hlut vistmanns í dvalarkostnaði og er Tryggingastofnun ríkisins þá heimilt að halda eftir samsvarandi hluta af mánaðarlegum greiðslum vistunarframlags til viðkomandi stofnunar.


4. gr.
4. málsl. 11. gr. orðast svo: Nú tekst stofnun ekki að innheimta hlut vistmanns í dvalarkostnaði og er Tryggingastofnun ríkisins þá heimilt að halda eftir samsvarandi hluta af mánaðarlegum greiðslum vistunarframlags til viðkomandi stofnunar.


5. gr.
Í stað orðanna „heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti“ í 15. gr. kemur: velferðarráðuneyti.


6. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2011.


Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 15. desember 2010.

Guðbjartur Hannesson.
Ágúst Þór Sigurðsson.

B_nr_1079_2010.docx

Stofnreglugerð:
1112/2006 - Reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt