REGLUGERÐ
um skotvopn, skotfæri o.fl.
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Orðskýringar.
Í reglugerð þessari er merking
hugtaka sem hér greinir:
1. "Sjálfvirkt" er það
skotvopn sem skjóta má úr röð skota með því að taka aðeins einu sinni í
gikkinn.
2. "Hálfsjálfvirkt" er það
skotvopn sem skjóta má úr einu skoti á eftir öðru þar til skotgeymir er tæmdur,
með því að taka aðeins í gikkinn í hvert skipti sem skoti er hleypt af.
3. "Handhlaðin fjölskota
haglabyssa eða riffill" er skotvopn þar sem skothylki er fært handvirkt úr
skotgeymi í hlaup.
4. "Skammbyssa" er stutt
skotvopn með hlauplengd allt að 30 sm og ekki meira en 60 sm að heildarlengd.
II. KAFLI
Veiting skotvopnaleyfa.
2. gr.
Almenn skilyrði.
Veita má leyfi fyrir skotvopnum
til veiða, íþróttaiðkunar, starfa og til sýninga og söfnunar, samkvæmt nánari
ákvæðum reglugerðar þessarar og vopnalaga nr. 16/1998. Umsækjandi skal gera
grein fyrir því í hverju skyni sótt sé um leyfi. Skilyrði fyrir veitingu
skotvopnaleyfis eru:
1. Að hafa náð 20 ára aldri og
hafa ekki verið sviptur sjálfræði.
2. Að hafa ekki gerst brotlegur
við ákvæði almennra hegningarlaga, áfengislaga, laga um ávana- og fíkniefni,
vopnalaga eða laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
3. Að hafa nægilega kunnáttu til
þess að fara með skotvopn, vera andlega heilbrigður og vera að öðru leyti hæfur
til þess að fara með og eiga skotvopn.
Lögreglustjóri getur veitt leyfi
fyrir skotvopni þó umsækjandi hafi brotið ákvæði laga þeirra, sem tilgreind eru
í 2. tölul. 1. mgr., ef brot er smávægilegt eða langt um liðið frá því að brot
var framið. Að liðnum tveimur árum frá því brot var framið getur þó
lögreglustjóri veitt umsækjanda leyfi, enda hafi refsing ekki farið fram úr
sektum eða varðhaldi og ekki hafi verið um að ræða árásar- eða ofbeldisbrot,
brot á lögum um ávana- og fíkniefni, ítrekuð ölvunarbrot, brot á vopnalögum eða
lögum um veiðar á villtum fulgum og villtum spendýrum.
3. gr.
Leyfð skotvopn.
Lögreglustjóra er heimilt að
veita þeim er fullnægir skilyrðum 2. gr. leyfi fyrir eftirgreindum skotvopnum:
Flokkur A:
1. Haglabyssum nr. 12 og minni,
þó eigi sjálfvirkum eða hálfsjálfvirkum.
2. Rifflum cal. 22 (long rifle og
minni), þ.m.t. loftrifflum, þó eigi sjálfvirkum eða hálfsjálfvirkum.
Flokkur B:
Leyfi fyrir rifflum með hlaupvídd
allt að cal. 30 og hálfsjálfvirkum haglabyssum skal ekki veitt nema sérstakar
ástæður mæli með því, enda hafi umsækjandi haft skotvopnaleyfi í a.m.k. eitt
ár.
Flokkur C:
Leyfi fyrir skotvopnum sem sérstaklega
eru ætluð til minkaveiða eða meindýraeyðingar (t.d. skammbyssur fyrir
haglaskot) má aðeins veita að fenginni umsögn veiðistjóra. Áskilið er að
umsækjandi hafi haft aukin skotvopnaréttindi (B flokkur) í eitt ár. Slík leyfi
vegna þeirra sem stunda minkaveiðar skal ekki veita til að eignast skotvopn
heldur einungis til láns eða leigu. Lögreglustjóri skal senda slíkar umsóknir
með umsögn sinni ríkislögreglustjóra til ákvörðunar.
Flokkur D:
Leyfi sem sérstaklega er veitt
einstaklingi eða skotfélagi fyrir skammbyssum vegna íþróttaskotfimi sbr. 11.
gr. Lögreglustjóri skal senda slíkar umsóknir með umsögn sinni
ríkislögreglustjóra til ákvörðunar.
4. gr.
Skotvopn til íþróttaiðkunar.
Einstaklingur sem hefur verið
virkur meðlimur í viðurkenndu skotfélagi, samkvæmt staðfestingu stjórnar
félagsins, og uppfyllir skilyrði 2. gr. getur fengið leyfi til að eignast
skotvopn samkvæmt ákvæðum III. kafla.
Heimilt er að veita viðurkenndu
skotfélagi heimild til að eignast skotvopn samkvæmt III. kafla reglugerðarinnar
til notkunar við æfingar, leiðbeiningar eða keppni, enda tilnefni félagið mann,
sem uppfyllir ákvæði 1. mgr., er beri ábyrgð á vörslu og ráðstöfun skotvopnanna
ásamt stjórnendum félagsins.
5. gr.
Erfðir á skotvopnum.
Nú andast maður er hefur leyfi
fyrir skotvopni og skal því þá innan 12 mánaða ráðstafað til aðila sem hefur
leyfi til að eiga sambærilegt skotvopn. Hafi svo ekki verið gert skal
skotvopnið afhent lögreglu til geymslu þar til endanleg ráðstöfun þess verður
ákveðin.
Maki, sem hefur fengið leyfi til
setu í óskiptu búi, þarf leyfi lögreglustjóra fyrir skotvopni eða skotvopnum,
sem hinn látni maki hafði leyfi fyrir.
Sé um að ræða skotvopn sem hefur
ótvírætt minja- og tilfinningagildi fyrir erfingja hins látna er lögreglustjóra
heimilt að víkja frá skilyrðum 2. gr. reglugerðarinnar, enda verði skotvopnið
gert óvirkt.
6. gr.
Söfnun skotvopna.
Heimilt er að veita
einstaklingum, samtökum og opinberum söfnum heimild til að eiga og varðveita
skotvopn í söfnunarskyni samkvæmt V. kafla.
7. gr.
Skotvopn vegna atvinnu.
Lögreglustjóra er heimilt, að
fengnu samþykki ríkislögreglustjóra, að veita bændum, sem eru ábúendur á
lögbýlum, og dýralæknum leyfi til að eiga hentugar hlaupstuttar einskota byssur
(fjárbyssur) þó eigi stærri en cal. 22 til aflífunar búfjár, enda uppfylli þeir
skilyrði 2. gr.
Leyfi fyrir skotvopnum samkvæmt
1. mgr. skal gefið út með þeim fyrirvara að það verði fellt niður, þegar
þargreind skilyrði eru ekki lengur fyrir hendi.
III. KAFLI
Íþróttaskotfimi.
8. gr.
Viðurkenning skotfélags.
Félag sem hefur iðkun skotfimi að
markmiði skal leita leyfis ríkislögreglustjóra.
Til að öðlast leyfi samkvæmt 1.
mgr. skal félag uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. vera stofnað á sérstökum
stofnfundi,
2. hafa skipulagsbundna stjórn,
3. hafa félagslög,
4. hafa að lágmarki 20 félagsmenn
sem hafi skotvopnaleyfi,
5. vera aðili að Íþróttasambandi
Íslands og
6. hafa kennitölu.
Í umsókn skal greina þá
keppnisflokka sem fyrirhugað er að iðka innan félagsins.
Áður en umsókn um leyfi er
endanlega afgreidd skal leita umsagnar lögreglustjóra í viðkomandi umdæmi.
Uppfylli félag framangreind
skilyrði gefur ríkislögreglustjóri út leyfi því til handa. Í þeirri
viðurkenningu skulu koma fram þeir keppnisflokkar sem heimilt er að iðka innan
félagsins.
9. gr.
Leyfð skotvopn.
Heimilt er að veita viðurkenndum
skotfélögum og félagsmönnum þeirra leyfi fyrir skotvopnum til keppni í
viðurkenndum keppnisflokkum samkvæmt I. viðauka reglugerðarinnar.
Skilyrði leyfis skv. 1. mgr. er
að viðkomandi félag hafi tilkynnt að keppni í viðurkenndum keppnisflokki sé
stunduð í félaginu.
10. gr.
Heimilir keppnisflokkar.
Skilyrði þess að keppnisflokkur
hljóti viðurkenningu hér á landi er að hann sé meðal keppnisgreina Alþjóða
skotsambandsins. Ríkislögreglustjóra er heimilt að viðurkenna aðra
keppnisflokka hafi þeir verið iðkaðir hér á landi fyrir gildistöku
reglugerðarinnar.
Sé óskað eftir viðurkenningu á
nýjum keppnisflokki skal Skotsamband Íslands sækja um það til
ríkislögreglustjóra.
Í umsókn um viðurkenningu skal
koma fram:
1. Lýsing á keppnisflokkum.
2. Hvort um alþjóðlega
keppnisgrein sé að ræða.
3. Lýsing á skotvopnum sem notuð
eru innan flokksins.
11. gr.
Leyfi fyrir skammbyssu.
Einstaklingur sem óskar eftir
leyfi til að eignast skammbyssu til iðkunar skotfimi (flokkur D) skal:
1. Hafa haft aukin skotvopnaréttindi
skv. 3. gr. (flokkur B) í eitt ár,
2. vera virkur meðlimur í
viðurkenndu skotfélagi og hafa stundað reglulegar æfingar í viðurkenndum
keppnisflokki í tvö ár og tekið þátt í landsmótum og/eða opnum mótum og ekki
gerst brotlegur við umgengnis- og öryggisreglur félagsins. Framangreindar
upplýsingar skulu staðfestar af stjórn félagsins þar sem fram komi upplýsingar
um æfingar, keppni og ástundun umsækjanda.
Leyfi fyrir skammbyssu, þ.m.t.
loftskammbyssu, skal gefið út með eftirfarandi skilyrðum:
1. Að skotvopnið verði
einvörðungu notað við æfingar og keppni í viðurkenndum keppnisflokkum á
viðurkenndum skotsvæðum skotfélaga.
2. Að skotvopnið sé annars geymt
í traustum hirslum.
3. Að hætti umsækjandi iðkun
skotíþrótta megi afturkalla leyfi.
Lögreglustjóri skal framsenda
slíkar umsóknir með umsögn sinni til ríkislögreglustjóra til ákvörðunar.
12. gr.
Skotfimi yngri flokka.
Lögreglustjóra er heimilt að
veita viðurkenndu skotfélagi leyfi til æfinga og keppni í yngri flokki (16-20
ára), enda tilnefni félagið sérstaka leiðbeinendur sem ábyrgð beri ásamt stjórn
félagsins á viðkomandi flokki. Leiðbeinandi skal vera handhafi leyfis fyrir
samskonar vopni og hann leiðbeinir um notkun á.
Leyfi samkvæmt 1. mgr. er bundið
við eftirtalda flokka og vopn:
1. Riffill: markloftriffill, cal.
4,5.
2. Haglabyssa: tvíhleypt markhaglabyssa, nr. 12 eða minni.
3. Skammbyssa:
markloftskammbyssa, cal. 4,5.
Leyfi samkvæmt grein þessari er
bundið við æfingar og keppni á viðurkenndum skot-svæðum. Skotvopn samkvæmt
ákvæði þessu skulu vera í eigu viðkomandi félags.
13. gr.
Varsla skotvopna og skotfæra.
Varsla skotvopna og skotfæra sem
eru í eigu skotfélaga eða varðveitt í húsnæði þeirra skal vera með eftirfarandi
hætti:
1. Skotvopn og skotfæri skulu
vera í aðskildum læstum hirslum.
2. Húsnæði skal búið þjófavörn og
vera beintengt efirlitsstöð.
Lögreglustjóra er heimilt að
samþykkja vörslu með öðrum hætti enda telji hann öryggi fullnægjandi.
14. gr.
Leyfi til sölu boga.
Engum má selja boga, sbr. f. lið
2. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998 nema með leyfi lögreglustjóra. Áður en
lögreglustjóri veitir slíkt leyfi skal hann ganga úr skugga um að kaupandi
stundi æfingar eða keppni í bogfimi hjá íþróttafélagi sem er aðili að
Íþróttasambandi Íslands.
IV. KAFLI
Skotsvæði.
15. gr.
Æfingarsvæði.
Svæði sem fyrirhugað er að nota
til æfinga eða keppni í skotíþróttum skal viðurkennt af lögreglustjóra áður en
það er tekið í notkun. Gildir það bæði um skotsvæði utanhúss og skotvelli
innanhúss.
16. gr.
Umsókn.
Sá sem óskar að taka í notkun
svæði skv. 15. gr. skal sækja um leyfi til lögreglustjóra í því umdæmi þar sem
svæðið er staðsett.
Í umsókninni um leyfi skal gefa
nákvæmar upplýsingar um:
1. legu skotsvæðisins,
2. eignarhald á svæðinu og ef við
á skal fylgja samþykki eiganda þess. Ef sveitarfélag er ekki eigandi svæðisins
skal samþykki þess fylgja umsókn,
3. fyrirhugað skipulag svæðisins
sem eftir atvikum skal sýnt með viðeigandi teikningum,
4. fyrirhugaða notkun svæðisins
t.d. skotgreinar, skotvopn o.s.frv.,
5. öryggisráðstafanir sem
fyrirhugað er að viðhafa á svæðinu. Ef um er að ræða skotsvæði innanhúss skal
sérstaklega gera grein fyrir loftræstingu.
17. gr.
Athugun á skotsvæði.
Lögreglustjóri kannar að fengnum
nauðsynlegum gögnum skv. 16. gr. hvort fyrirkomulag skotsvæðisins og þær
öryggisráðstafanir sem þar eru gerðar eru fullnægjandi. Óheimilt er að taka
svæði í notkun fyrr en könnunin hefur farið fram.
Ríkislögreglustjóri getur
tilnefnt þrjá menn sem lögreglustjórum er heimilt að kalla sér til aðstoðar við
viðurkenningu og úttekt á skotsvæðum.
Ríkislögreglustjóri getur sett
frekari reglur um hvaða lágmarkskröfur skotsvæði skuli uppfylla.
18. gr.
Eftirlit með skotsvæðum.
Lögreglustjóri skal árlega gera
úttekt á viðurkenndum skotsvæðum í umdæmi sínu til að ganga úr skugga um að þau
fullnægi settum skilyrðum. Ef svæði uppfyllir ekki sett skilyrði skal
lögreglustjóri banna notkun þess þar til úr hefur verið bætt og ný úttekt farið
fram.
19. gr.
Tryggingar.
Áður en viðurkenning á skotsvæði
er gefin út skal ábyrgðarmaður svæðisins leggja fram staðfestingu þess að
ábyrgðartrygging hafi verið keypt vegna svæðisins.
V. KAFLI
Söfnun skotvopna.
20. gr.
Söfnunarleyfi.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að
veita einstaklingum, samtökum og opinberum söfnum leyfi til að eiga og
varðveita skotvopn er hafa ótvírætt söfnunargildi vegna aldurs þeirra, tengsla
þeirra við sögu landsins eða af öðrum sérstökum ástæðum.
Ef umsækjandi er lögaðili skal
tilnefndur maður sem fullnægir skilyrðum 2. gr. sem ber ábyrgð á vörslu
safnsins ásamt forsvarsmönnum þess.
21. gr.
Umsókn um söfnunarleyfi.
Í umsókn um söfnunarleyfi skal
greina eftirfarandi:
1. Nafn, kennitölu og heimili
umsækjanda og eftir atvikum ábyrgðarmanns skv. 20. gr.
2. Upplýsingar um skotvopnaleyfi
umsækjanda.
3. Nákvæm tilgreining á
skotvopnum sem fyrirhugað er að safna og hvernig þau uppfylli skilyrði 20. gr.
Með umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn:
1. Ljósrit skotvopnaleyfis
umsækjanda eða eftir atvikum ábyrgðarmanns.
2. Listi yfir skotvopn sem
umsækjandi áætlar að safna. Skulu koma fram upplýsingar um tegund, hlaupvídd,
verksmiðjuheiti, módelheiti, lásgerð, hlauplengd, heildarlengd, skotgeymi,
skotafjölda o.s.frv.
3. Áætlun um geymslu
skotvopnasafnsins.
22. gr.
Meðferð umsóknar.
Sækja skal um leyfi til
viðkomandi lögreglustjóra sem skal ásamt slökkviliðsstjóra gera úttekt á
aðstöðu umsækjanda til geymslu og söfnunar skotvopnanna. Lögreglustjóri skal
senda slíkar umsóknir með umsögn sinni til ríkislögreglustjóra til ákvörðunar.
23. gr.
Skilyrði söfnunarleyfis.
Umsækjandi um söfnunarleyfi skal fullnægja
eftirfarandi skilyrðum:
1. Hafa verið handhafi
skotvopnaleyfis í a.m.k. fimm ár.
2. Hafa yfir að ráða fullnægjandi
aðstöðu til varðveislu skotvopnanna.
3. Sækja fyrirfram um leyfi fyrir
kaupum á skotvopnum í safnið og fá útgefna kaupheimild, sbr. 30. gr.
24. gr.
Varsla skotvopnasafns.
Skotvopnasafn skal varðveitt í
læstum hirslum viðurkenndum af lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra. Skulu
skotfæri varðveitt í aðskildum hirslum.
VI. KAFLI
Skotvopnaleyfi og skráning skotvopna.
25. gr.
Umsókn um skotvopnaleyfi.
Í umsókn um skotvopnaleyfi skal
greina:
1. Fullt nafn, kennitölu og
heimili umsækjanda.
2. Til hvaða nota skotvopnið er
ætlað (veiðar, söfnun, skotfimi, meindýraeyðing, starf).
3. Hvort umsækjandi hafi hlotið
refsidóm eða gengist undir sátt fyrir refsiverðan verknað sem varðað gæti
synjun umsóknar.
4. Hvort fyrirhugað sé að nota
skotvopnið við íþróttaskotfimi og skal þá tilgreina skotfélag það sem
umsækjandi er félagsmaður í.
5. Aðrar upplýsingar samkvæmt ósk
lögreglustjóra.
Í umsókn um að eignast skotvopn
skal auk þeirra upplýsinga er getur í 1. mgr. tilgreina:
1. Tegund þess skotvopns sem
umsækjandi hyggst eignast, svo og aðrar upplýsingar um það, þ.á m. hlaupvídd,
verksmiðjuheiti, módelheiti, eintaksnúmer, lásgerð, hlauplengd, heildarlengd,
skotgeymi og skotafjölda.
2. Hafi umsækjandi áður fengið
leyfi fyrir skotvopni skal hann tilgreina hvar og hvenær það var útgefið og
hvort það er í gildi.
3. Af hverjum umsækjandi hyggst kaupa skotvopnið.
Með umsókn skulu fylgja
eftirtalin gögn:
1. Sakavottorð.
2. Læknisvottorð.
3. Skotvopnaleyfi umsækjanda hafi
hann slíkt leyfi.
4. Önnur gögn er lögreglustjóri
óskar eftir.
5. Ef um er að ræða skotvopn til
iðkunar íþróttaskotfimi skal fylgja staðfesting stjórnar viðkomandi skotfélags
á því að umsækjandi fullnægi skilyrðum III. kafla.
Ef umsækjandi er einstaklingur
skal umsókn send lögreglustjóra í því umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili.
Ef umsækjandi er stofnun eða
félag skal umsókn send lögreglustjóra í umdæmi þar sem félagið er skráð eða þar
sem stofnunin hefur starfsstöð. Í umsókn skal tilgreina notanda eða notendur og
ábyrgðarmann skotvopnsins. Sé umsækjandi skotfélag skal umsókn undirrituð af
stjórn félagsins og skal í henni tilgreina þá viðurkenndu skotgrein sem ætlunin
er að nota skotvopnið í.
26. gr.
Meðferð umsóknar.
Lögreglustjóri skal leita allra
nauðsynlegra upplýsinga um umsækjanda, svo sem með því að kanna annan sakaferil
hans en samkvæmt sakaskrá.
Hyggist umsækjandi kaupa notað
skotvopn skal lögreglustjóri ganga úr skugga um að skráning þess skotvopns sé í
skotvopnaskrá og bera hana saman við skráningu á umsókn.
27. gr.
Námskeið og próf.
Ef lögreglustjóri telur, eftir að
hafa kannað umsókn og fylgigögn og önnur þau atriði sem hann telur nauðsynleg,
að til greina komi að veita umbeðið leyfi skal umsækjandi sækja námskeið í
notkun og meðferð skotvopna og standast próf að námskeiði loknu.
Ríkislögreglustjóri annast
framkvæmd námskeiða og prófa, setur jafnframt reglur um framkvæmd námskeiða og
annast gerð kennsluefnis. Ríkislögreglustjóra er heimilt að fela öðrum
framkvæmd námskeiða.
28. gr.
Útgáfa skotvopnaleyfa.
Uppfylli umsækjandi um
skotvopnaleyfi skilyrði 2. gr. og standist próf skv. 26. gr. skal
lögreglustjóri gefa út skotvopnaleyfi. Skotvopnaleyfi skal vera skriflegt. Í
því skal tilgreina nafn, kennitölu og heimilisfang leyfishafa. Þar skal vera
nýleg mynd af leyfishafa. Einnig skal tilgreina nákvæmlega hvers konar skotvopn
leyfishafa er heimilt að nota. Í skotvopnaleyfi skal skrá öll skotvopn í eigu
leyfishafa, sbr. 31. gr.
29. gr.
Kaup á skotvopni.
Fallist lögreglustjóri á að veita
skotvopnaleyfishafa leyfi til að eignast skotvopn gefur hann út heimild
(kaupheimild) til umsækjanda. Í kaupheimild skal nákvæmlega tilgreina hvaða
skotvopn umsækjandi megi kaupa og af hverjum.
30. gr.
Sala á skotvopni.
Seljanda er óheimilt að selja
öðrum skotvopn eða selja önnur skotvopn en greinir í kaupheimild. Seljanda ber
að árita þrjú eintök kaupheimildar sem staðfestingu á því að hann hafi selt
kaupanda tilgreint skotvopn.
Frumrit kaupheimildar ber
kaupanda að senda til lögreglustjóra sem skráir söluna þá þegar í skotvopnaskrá
og gefur út skotvopnaleyfi. Selji einstaklingur sem hefur skotvopnaleyfi
skotvopn, skal seljandi senda lögreglustjóra skotvopnaleyfi sitt og skal hann
eyðileggja það og gefa út nýtt, án sérstaks endurgjalds.
Öðru eintaki kaupheimildar heldur
kaupandi og gildir það eintak sem leyfi fyrir tilgreindu skotvopni til
bráðabirgða í allt að fjórar vikur frá útgáfu heimildar. Þriðja eintaki heldur
seljandi.
Ef kaupandi er verslun sem hefur
heimild til að versla með skotvopn skal sótt um kaupheimild til viðkomandi
lögreglustjóra með sama hætti og ef um einstakling er að ræða en kaupaheimild
skal vera án endurgjalds. Ber seljanda að senda skotvopnaleyfi sitt til
lögreglustjóra til ógildingar og endurútgáfu skv. 2. mgr.
Ákvæði þessa kafla eiga við þótt
eigandaskipti verði á skotvopni með öðrum hætti en sölu.
31. gr.
Skráning í skotvopnaleyfi.
Lögreglustjóri gefur út
skotvopnaleyfi í samræmi við kaupheimild jafnskjótt og hann hefur móttekið hana
áritaða af seljanda.
Í skotvopnaleyfi skal þá
tilgreina:
1. Nafn, kennitölu og lögheimili
leyfishafa. Einnig skal greina nafn, kennitölu og heimili ábyrgðarmanns ef við
á.
2. Tegund, hlaupvídd,
verksmiðjuheiti, módelheiti, eintaksnúmer, lásgerð, hlauplengd, heildarlengd,
skotgeymi og skotafjölda.
3. Notkun skotvopnsins (veiðar,
skotfimi, söfnun, atvinna o.s.frv.).
4. Útgefanda.
5. Útgáfudag og síðasta
endurútgáfudag ef við á.
6. Númer leyfis í töluröð á
landsvísu.
Lögreglustjóri getur sett sérstök
skilyrði fyrir útgáfu leyfis telji hann þess þörf.
Gildistími skotvopnaleyfis skal
vera 10 ár frá útgáfudegi. Lögreglustjóra er heimilt ef sérstaklega stendur á
að gefa leyfi út til skemmri tíma.
32. gr.
Endurnýjun skotvopnaleyfis.
Sá sem óskar endurnýjunar
skotvopnaleyfis skal senda umsókn þess efnis til lögreglustjóra. Við endurnýjun
skal lögreglustjóri ganga úr skugga um að umsækjandi fullnægi skilyrðum laga
til að fá útgefið skotvopnaleyfi.
Skotvopnaleyfi skal endurútgefa í
hvert sinn sem skotvopnaeign leyfishafa breytist.
Hafi skotvopnaleyfi glatast er
heimilt að gefa út samrit þess til jafnlangs tíma.
VII. KAFLI
Meðferð og vörslur skotvopna og skotfæra.
33. gr.
Meðferð og vörslur.
Eigendur eða umráðahafar
skotvopna og skotfæra skulu ábyrgjast vörslur þeirra og sjá svo um, að
óviðkomandi nái ekki til þeirra. Í því skyni skal húsnæði sem geymir skotvopn
og skotfæri ávallt læst ef íbúar eru fjarverandi. Við lengri fjarveru skal auk
þess sem að framan greinir gera skotvopn óvirkt t.d. með því að fjarlægja af
því nauðsynlega hluta aðra en láshús.
Þegar skotvopn og skotfæri eru
ekki í notkun skulu skotvopn og skotfæri geymd í aðskildum, læstum hirslum.
Lögreglustjóra er heimilt að
setja skotvopnaleyfishafa sérstök skilyrði um geymslu og varðveislu skotvopna
og skotfæra.
Hámarksmagn skotfæra sem
einstaklingi er heimilt að kaupa og geyma hverju sinni er 500 skot.
Lögreglustjóra er heimilt að veita undanþágu frá þessu hámarki ef viðkomandi
hefur yfir að ráða sérútbúinni geymslu eða skáp.
Ef einstaklingur á fleiri en þrjú
skotvopn er honum skylt að geyma þau í sérútbúnum vopnaskáp sem samþykktur er
af lögreglustjóra.
34. gr.
Notkun skotvopna.
Skráður eigandi skotvopns hefur
einn heimild til að nota það með þeim undantekningum sem greinir í þessum
kafla.
35. gr.
Lánsheimild leyfishafa.
Skráður eigandi skotvopns hefur
heimild til að lána það hverjum sem hefur leyfi til að nota sams konar
skotvopn.
Lánsheimild skal vera skrifleg og
með undirskrift beggja aðila. Í lánsheimild skal greina eftirfarandi:
1. Nafn, kennitölu og heimili
lántaka og eiganda skotvopnsins.
2. Númer skotvopnaleyfis eiganda
skotvopnsins.
3. Tegund, hlaupvídd,
verksmiðjuheiti, módelheiti, eintaksnúmer, lásgerð, hlauplengd, heildarlengd,
skotgeymi og skotafjölda viðkomandi skotvopns.
4. Fyrirhugaða notkun
skotvopnsins.
5. Útgáfudag og gildistíma
lánsheimildar.
Ef skotvopn er lánað um lengri
tíma en fjórar vikur skal það tilkynnt lögreglustjóra. Skal í þeirri
tilkynningu tilgreina sömu upplýsingar og fram koma í 2. mgr. Skal það skráð í
skotvopnaskrá. Er lögreglustjóra heimilt að gefa út nýtt skotvopnaleyfi til
eiganda skotvopns og lánþega sem kemur í stað lánsheimildar skv. 2. mgr. Í
slíku leyfi til eiganda skotvopns skal geta lánþega en í skotvopnaleyfi lánþega
skal geta eiganda skotvopnsins.
Sé skotvopn afhent til viðgerðar
eða sölu skal það gert skriflega samkvæmt 2. mgr. Viðgerðar- eða söluaðili skal
senda lögreglustjóra tilkynningu um móttöku og afhendingu vopna.
Sá sem fær skotvopn að láni
ábyrgist vörslu þess meðan skotvopnið er í umsjá hans. Skal hann ávallt bera
skriflega lánsheimild samkvæmt ákvæði þessu og sýna hana sé þess óskað.
36. gr.
Lánsheimild skotfélags.
Heimilt er viðurkenndum
skotfélögum sem fengið hafa leyfi til að eiga skotvopn skv. 8. gr. að lána
skotvopn til afnota við æfingar og keppni í viðurkenndum keppnisflokkum á
viðurkenndum skotsvæðum.
Hafi viðkomandi ekki
skotvopnaleyfi er heimilt að lána honum skotvopn enda noti hann það undir
eftirliti ábyrgðarmanns sem skotfélag hefur tilnefnt.
Lán samkvæmt ákvæði þessu verða
einungis veitt vegna tiltekinnar æfingar eða keppni.
Lán samkvæmt ákvæði þessu skulu
skráð í sérstaka bók. Í bók þessari skal greina eftirfarandi upplýsingar:
1. Nafn og kennitölu lántakanda.
2. Tegund, hlaupvídd,
verksmiðjuheiti, módelheiti, eintaksnúmer, lásgerð, hlauplengd, heildarlengd,
skotgeymi og skotafjölda hins lánaða skotvopns.
3. Dagsetningu láns skotvopns og
hvenær því var skilað.
4. Kvittun ábyrgðarmanns og
lántakanda.
VIII. KAFLI
Framleiðsla skotvopna, skotfæra o.fl.
37. gr.
Leyfi til framleiðslu.
Enginn má framleiða skotvopn eða
skotfæri í atvinnuskyni nema með leyfi ríkislögreglustjóra. Með framleiðslu er
átt við tilbúning, samsetningu, endurbætur og viðgerðir á skotvopnum.
Ef umsækjandi er einstaklingur
sem hyggst framleiða vopn til eigin nota skal hann sækja um leyfi á eyðublaði
fyrir skotvopnaleyfi. Skal umsækjandi vera handhafi skotvopnaleyfis.
Lögreglustjóri skal framsenda slíkar umsóknir með umsögn sinni til
ríkislögreglustjóra til ákvörðunar.
38. gr.
Skilyrði framleiðsluleyfis.
Leyfi samkvæmt þessum kafla má
aðeins veita þeim einstaklingum sem hafa skotvopnaleyfi og uppfylla kröfur
reglugerðarinnar um hæfni til framleiðslunnar og aðbúnað á framleiðslustað.
Sé umsækjandi félag eða firma
skal það vera skráð og tilnefna einn mann eða fleiri er uppfylla skilyrði 1.
mgr. til að annast framleiðsluna.
39. gr.
Umsóknin og meðferð hennar.
Umsókn skal undirrituð af
umsækjanda og eftir atvikum ábyrgðarmanni. Í henni skal greina eftirfarandi:
1. Fullt nafn, kennitölu og
heimili umsækjanda.
2. Fullt nafn, kennitölu og
heimilisfang ábyrgðarmanns framleiðslunnar.
3. Hvað fyrirhugað er að
framleiða.
4. Þeim faglegu kröfum sem
umsækjandi, ábyrgðarmaður eða starfsmenn búa yfir vegna fyrirhugaðrar
framleiðslu.
5. Aðstæður á framleiðslustað.
Gera skal grein fyrir öryggisráðstöfunum á framleiðslustað til að fyrirbyggja
þjófnað, eldsvoða, sprengingar og önnur óhöpp.
40. gr.
Meðferð umsóknar og útgáfa leyfis.
Ríkislögreglustjóri sendir
umsóknina lögreglustjóra í viðkomandi umdæmi, sem aflar umsagnar Vinnueftirlits
ríkisins, slökkviliðsstjóra eða annarra þeirra aðila er með brunamál fara og
annarra yfirvalda telji hann þess þörf.
Að fengnum umsögnum sendir
lögreglustjóri umsóknina á ný til ríkislögreglustjóra ásamt umsögn sinni og
tillögum um hvort leyfi skuli gefið út. Skal lögreglustjóri sérstaklega gera
grein fyrir hæfni ábyrgðarmanns framleiðslunnar.
Ríkislögreglustjóri ákveður á
grundvelli framangreindra umsagna hvort leyfi skuli gefið út. Í leyfi skal
greina eftirfarandi:
1. Nafn, kennitölu og heimili
leyfishafa og eftir atvikum ábyrgðarmanns framleiðslunnar.
2. Staðsetningu framleiðslunnar.
3. Hvað fyrirhugað er að
framleiða.
4. Skilyrði sem sett eru fyrir
framleiðslunni.
41. gr.
Skyldur framleiðanda.
Framleiðanda ber að fylgja
fyrirmælum lögreglu um framleiðslu.
Framleiðanda samkvæmt reglugerð
þessari er heimilt að ráðstafa framleiðslu sinni með eftirfarandi hætti:
1. Til þeirra er hafa leyfi til
verslunar með skotvopn, skotfæri, sprengiefni eða skotelda, enda verði
framvísað gildu leyfi.
2. Til þeirra er framvísa gildri
kaupheimild skv. 27. gr. með áritun lögreglustjóra um samþykki fyrir kaupunum.
Framleiðandi skal halda skrá
samkvæmt ákvörðun ríkislögreglustjóra yfir framleiðsluvörur sínar og ráðstöfun
þeirra. Sé um að ræða skotvopn skal frumskrá þau í skotvopnaskrá sem eign
framleiðanda. Tilkynna skal ríkislögreglustjóranum þegar sala fer fram til
þeirra er hafa leyfi til verslunar með skotvopn og skotfæri.
Framleiðandi skal geyma
framleiðslu og hráefni við fullnægjandi aðstæður að mati lögreglustjóra að því
er varðar öryggi s.s. gegn þjófnaði, innbrotum, eldsvoða o.s.frv. Skal
framleiðandi m.a. vera tengdur eftirlitsmiðstöð eftir því sem unnt er.
Framleiðanda er heimilt að taka
sýnishorn framleiðslu úr geymslum sínum til prófunar eða sýningar, enda sé þess
getið í skrá skv. 3. mgr.
42. gr.
Framleiðsla til eigin nota.
Handhafa skotvopnaleyfis er
heimilt með leyfi lögreglustjóra að hlaða skothylki til eigin nota í þau
skotvopn sem viðkomandi hefur leyfi fyrir, enda sé að öðru leyti heimilt að
nota slík skotfæri hér á landi. Aðeins má veita þeim leyfi, sem að mati
lögreglustjóra hefur nægilega þekkingu til þess að hlaða skothylki og fara með
hleðslubúnað, enda hafi hann haft aukin skotvopnaréttindi skv. 3. gr. (flokkur
B) og gengist undir námskeið í hleðslu skotfæra samkvæmt ákvörðun
ríkislögreglustjóra.
Leyfi skv. 1. mgr. (flokkur E)
gefur jafnframt heimild til kaupa á púðri, hvellhettum og skothylkjum samkvæmt
nánari ákvörðun lögreglustjóra.
Um varðveislu á sprengjanlegum
efnum svo sem púðri fer samkvæmt ákvæðum reglugerðar um sprengiefni.
IX. KAFLI
Inn- og útflutningur skotvopna og skotfæra.
43. gr.
Innflutningsleyfi.
Enginn má flytja til landsins
skotvopn eða skotfæri nema með leyfi ríkislögreglustjóra. Hið sama gildir um
einstaka hluta skotvopna og skotfæra.
Sé umsækjandi einstaklingur, sem
hyggst flytja inn skotvopn til eigin nota, skal hann sækja um innflutningsleyfi
á eyðublaði fyrir skotvopnaleyfi til lögreglustjóra. Skal umsækjandi vera
handhafi skotvopnaleyfis. Heimilt er að veita sama einstaklingi slíkt leyfi
fyrir mest tveimur vopnum á ári. Að öðru leyti gilda um innflutninginn ákvæði
reglugerðarinnar um leyfi fyrir viðkomandi skotvopni, þ.m.t. um skráningu
skotvopns og útgáfu skotvopnaleyfis. Lögreglustjóri skal framsenda umsóknina til
ríkislögreglustjóra til ákvörðunar ásamt umsögn sinni um hana.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að
ákveða hámarksmagn skotfæra sem einstaklingi er heimilt að flytja til landsins.
Sé umsækjandi handhafi leyfis til
innflutnings eða verslunar með skotvopn og skotfæri skal leyfi bundið við
tiltekið magn og gerðir skotvopna og skotfæra. Í umsókn til
ríkislögreglustjórans skal greina:
1. Nafn, kennitölu og heimili
umsækjanda.
2. Gerð, tegund og stærð þess sem
fyrirhugað er að flytja inn.
3. Magn þess sem fyrirhugað er að
flytja inn.
4. Nafn og heimili seljanda.
5. Áætlun um fyrirhugaðan
flutning (flutningsleið, brottfarar- og komudag).
Leyfi til innflutnings á
skotvopnum og skotfærum gildir í sex mánuði. Afrit leyfis skal sent
lögreglustjóra.
44. gr.
Tollafgreiðsla.
Óheimilt er að tollafgreiða
eftirtaldar vörur nema innflytjandi leggi fram við tollafgreiðslu
innflutningsleyfi ríkislögreglustjóra, vörureikning sem lögreglustjóri hefur
samþykkt til innflutnings og eftir atvikum tilflutningsleyfi skv. 10. gr.
tilskipunar ráðsins nr. 93/15/EBE frá 15. apríl 1993 um samhæfingu ákvæða um
markaðssetningu og eftirlit með sprengiefnum til almennra nota:
1. Skotvopn og hluta þeirra, sbr.
93. kafla tollskrár.
2. Skotfæri og hluta til þeirra
eða efni til skotfæragerðar, sbr. tollskrárnúmer 3601.0000 (púður til
skotfæragerðar) og 93. kafla tollskrár (tóm skothylki).
3. Vopn er falla undir
tollskrárnúmer 9307.0000.
4. Örvarboga og örvar, sbr.
tollskrárnúmer 9506.0000.
Innflytjandi skal sækja um áritun
vörureiknings til lögreglustjóra. Skal með umsókninni fylgja innflutningsleyfi
ríkislögreglustjóra. Skal í umsókninni tilgreina tegund, hlaupvídd,
verksmiðjuheiti, módelheiti, eintaksnúmer, lásgerð, hlauplengd, heildarlengd,
skotgeymi og skotafjölda þeirra skotvopna sem fyrirhugað er að tollafgreiða.
Lögreglustjóri skal á grundvelli þess frumskrá skotvopnin í skotvopnaskrá sem
eign innflytjanda.
45. gr.
Innflutningur á skammbyssum.
Innflutningur skammbyssa er
óheimill án leyfis ríkislögreglustjóra.
Hyggist einstaklingur eða lögaðili
flytja inn skammbyssur skal sótt um leyfi ríkislögreglustjóra áður en pöntun er
gerð og skal í umsókn tilgreina nákvæmlega um hvers konar skammbyssur er að
ræða og í hvaða skyni fyrirhugað er að flytja þær inn.
Óheimilt að leyfa innflutning á
öðrum skammbyssum en þeim er nota má í viðurkenndum flokki skotíþrótta eða til
atvinnu samkvæmt 14. gr. vopnalaga.
46. gr.
Skammtímadvöl.
Heimilt er að veita einstaklingum
búsettum erlendis, sem dveljast hér á landi í allt að þremur mánuðum leyfi til
að flytja til landsins skotvopn til eigin nota með eftirgreindum skilyrðum:
1. Að viðkomandi fullnægi skilyrðum íslenskra laga til að
mega eiga skotvopn.
2. Að hann hafi skotvopnaleyfi
útgefið í heimalandi sínu.
3. Að hann leggi fram meðmæli
tveggja manna búsettra hér á landi.
4. Að einvörðungu verði um að
ræða skotvopn sem heimilt er að flytja inn skv. íslenskum lögum.
Í umsókn skal umsækjandi
tilgreina eftirfarandi:
1. Fullt nafn, fæðingardag,
fæðingarár, ríkisfang og heimilisfang í heimalandi og hérlendis meðan á dvöl
stendur.
2. Hvar og í hvaða skyni hann
hyggst nota skotvopnið.
3. Tegund, hlaupvídd,
verksmiðjuheiti, modelheiti, eintaksnúmer, lásgerð, hlauplengd, heildarlengd,
skotgeymi og skotafjölda þeirra skotvopna er hann hyggst flytja með sér til
landsins.
4. Tegund og magn skotfæra ef við
á.
5. Áætlaðan komudag og
brottfarardag.
Með umsókn skal umsækjandi senda
staðfest endurrit eða ljósrit af skotvopnaleyfi sínu. Sé um að ræða skotvopn
til nota í skotkeppni skal umsækjandi framvísa keppnisboði viðurkennds íslensks
skotfélags.
Ríkislögreglustjóri gefur út
leyfi samkvæmt þessari grein. Leyfin skulu vera skrifleg og tilgreina þær
upplýsingar er fram koma í 2. mgr. Ríkislögreglustjóri tilkynnir
tollayfirvöldum um útgáfu leyfa.
Leyfishafa er skylt að framvísa
vopnum þessum til skráningar hjá tollayfirvöldum við komu til landsins og við
brottför frá landinu. Tollayfirvöld skulu tilkynna ríkislögreglustjóra um
skráninguna hverju sinni.
47. gr.
Útflutningur skotvopna og skotfæra.
Enginn má flytja úr landi
skotvopn eða skotfæri nema með leyfi ríkislögreglustjóra.
Í umsókn um leyfi til útflutnings
skal greina:
1. Nafn, kennitölu og
heimilisfang umsækjanda,
2. nafn og heimili kaupanda eða
viðtakanda (ákvörðunarstaður sendingar),
3. gerð, tegund og stærð þess sem
fyrirhugað er að flytja út,
4. magn þess sem fyrirhugað er að
flytja út,
5. flutningsmáta og
6. brottfarardag og áætlaðan
komudag.
Í leyfi til útflutnings skal
greina sömu upplýsingar og greinir í 2. mgr. Útflutningsleyfi skal sent
tollayfirvöldum.
Sé um að ræða útflutning í
atvinnuskyni til vopnasala/vopnaframleiðanda á Evrópska efnahagssvæðinu er
heimilt að gefa leyfið út til þriggja ára og gildir það sem leyfi skv. 10. gr.
tilskipunar ráðsins nr. 93/15/EBE frá 15. apríl 1993 um samhæfingu ákvæða um
markaðssetningu og eftirlit með sprengiefnum til almennra nota. Áður en
útflutningur á sér stað hverju sinni skal leyfishafi gefa ríkislögreglustjóra
upplýsingar um þau atriði er greinir í 2. mgr.
48. gr.
Skammtímadvöl erlendis.
Einstaklingur sem hyggst dveljast
erlendis í skemmri tíma en þrjá mánuði getur með leyfi ríkislögreglustjóra
flutt með sér skráð skotvopn til persónulegra nota við veiðar eða skotkeppni
ásamt hæfilegu magni skotfæra.
Í leyfi skv. 1. mgr. skal greina:
1. nafn, heimili og kennitölu
viðkomandi auk fyrirhugaðs dvalarstaðar og brottfarardag og áætlaðan komudag
aftur til landsins,
2. tegund, hlaupvídd,
verksmiðjuheiti, modelheiti, eintaksnúmer, lásgerð, hlauplengd, heildarlengd,
skotgeymi og skotafjölda skotvopna,
3. magn skotvopna og skotfæra.
Með sama hætti er heimilt að
veita forsvarsmönnum viðurkennds skotfélags heimild til útflutnings á
skotvopnum til keppni.
Útgefið leyfi skal sent
tollayfirvöldum sem skulu tilkynna ríkislögreglustjóra um að útflutningur hafi
farið fram og eins þegar vopnið kemur aftur til landsins.
49. gr.
Skyldur inn- og útflytjanda.
Leyfishafi skal halda skrá
samkvæmt ákvörðun ríkislögreglustjóra yfir vörur sínar og ráðstöfun þeirra.
Leyfishafi skal geyma vörur sínar
við fullnægjandi aðstæður að mati lögreglustjóra að því er varðar öryggi s.s.
gegn þjófnaði, innbrotum, eldsvoða o.s.frv. Skal húsnæði leyfishafa m.a. vera
tengt eftirlitsmiðstöð eftir því sem unnt er.
X. KAFLI
Verslun og leiga með skotvopn og skotfæri.
50. gr.
Skilyrði leyfis.
Umsækjandi um leyfi til verslunar
með skotvopn og skotfæri skal uppfylla eftirtalin skilyrði:
1. Hafa verslunarleyfi,
2. hafa skotvopnaleyfi eða
sérþekkingu á þeim vörum sem hér um ræðir.
Sé umsækjandi fyrirtæki eða félag
skal það einnig uppfylla eftirtalin skilyrði:
1. Vera skrásett í
fyrirtækjaskrá,
2. tilnefna ábyrgðarmann sem
uppfyllir skilyrði 2. tölul. 1. mgr.
Umsækjandi skal hafa yfir að ráða
húsnæði sem uppfyllir skilyrði brunamálayfirvalda um öryggi. Jafnframt skal
húsnæðið þannig úr garði gert að það, að mati lögreglustjóra, sé svo tryggt
gegn innbrotum sem unnt er s.s. með tengingu við eftirlitsmiðstöð.
51. gr.
Leyfisumsókn.
Leyfi til verslunar með skotvopn
og skotfæri er gefið út af ríkislögreglustjóra.
Með umsókn um leyfi til verslunar
með skotvopn og skotfæri skulu fylgja eftirtalin gögn:
1. verslunarleyfi á nafni
umsækjanda,
2. staðfesting á skráningu
umsækjanda í fyrirtækjaskrá ef við á,
3. samþykki ábyrgðarmanns ef við
á og
4. skotvopnaleyfi umsækjanda eða
ábyrgðarmanns eða eftir atvikum staðfesting á sérþekkingu hans.
Ríkislögreglustjóri leitar
umsagnar lögreglustjóra í því umdæmi sem fyrirhugað er að reka verslunina. Skal
hann leggja mat á umsækjanda og húsnæði hans m.t.t. öryggis gagnvart innbrotum.
Lögreglustjóri aflar umsagnar slökkviliðsstjóra eða annarra þeirra er með
brunamál fara og skulu þeir leggja sérstakt mat á öryggi húsnæðis m.t.t.
brunavarna og sprengihættu.
52. gr.
Skyldur leyfishafa.
Leyfishafi skal halda skrá
samkvæmt ákvörðun ríkislögreglustjóra yfir vörur sínar og ráðstöfun þeirra. Kaupandi
skotfæra skal kvitta fyrir móttöku þeirra.
Skotvopn sem verslun kaupir af
innlendum framleiðanda skal skrá í skotvopnaskrá sem eign verslunaraðila.
Kaupandi skal tilkynna ríkislögreglustjóra um að kaupin hafi farið fram.
Leyfishafi skal geyma vörur sínar
við fullnægjandi aðstæður að mati lögreglustjóra að því er varðar öryggi s.s.
gegn þjófnaði, innbrotum, eldsvoða o.s.frv. Húsnæði leyfishafa skal m.a. vera
tengt eftirlitsmiðstöð eftir því sem unnt er.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að
banna ákveðnar tegundir skotfæra.
53. gr.
Skotvopnaleiga.
Um rekstur skotvopnaleigu gilda
ákvæði þessa kafla eftir því sem við á.
Beiðni um lán á skotvopni skal
vera skrifleg og berast skotvopnaleigu a.m.k. einni viku áður en vopn er afhent
leigutaka. Með beiðni skal fylgja skotvopnaleyfi leigutaka. Leigusali skal
leita heimildar lögreglustjóra til þess að leigja viðkomandi einstaklingi
tilgreint vopn.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að
setja frekari reglur um leigu á skotvopnum.
Ákvæði þetta gildir ekki um lán
viðurkenndra skotfélaga á skotvopnum til félagsmanna til notkunar á
viðurkenndum skotsvæðum.
XI. KAFLI
Skráning upplýsinga.
54. gr.
Landsskrá skotvopna.
Haldin skal skotvopnaskrá er nær
til landsins alls.
Í skotvopnaskrá skulu skráðar
upplýsingar um:
1. Skotvopnaleyfishafa þar sem
fram komi nafn, kennitala og heimilisfang,
2. skotvopn hvers leyfishafa
tilgreind með tegund, hlaupvídd, verksmiðjuheiti, módelheiti, eintaksnúmer,
lásgerð, hlauplengd, heildarlengd, skotgeymi, skotafjölda o.fl.,
3. útgáfudag hvers
skotvopnaleyfis og dagsetningu endurútgáfu,
4. afturköllun skotvopnaleyfis,
5. leyfðar breytingar á
skotvopni,
6. skotvopn sem flutt eru inn og
út frá Íslandi skv. IX. kafla og
7. leyfi til hleðslu skotfæra.
55. gr.
Skrá yfir inn-, útflytjendur og framleiðendur.
Ríkislögreglustjóri skal halda
skrá um inn-, útflytjendur og framleiðendur skotvopna og skotfæra.
Ríkislögreglustjóri skal halda
skrá yfir útgefin leyfi til skammtíma inn- og útflutnings skotvopna og skotfæra
samkvæmt reglugerð þessari.
XII. KAFLI
Ýmis ákvæði.
56. gr.
Synjun umsókna.
Komi til greina að synja umsókn
samkvæmt reglugerð þessari skal gefa umsækjanda kost á að koma á framfæri
sjónarmiðum sínum, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Sé umsókn samkvæmt reglugerð
þessari synjað skal það gert skriflega og skal synjunin rökstudd. Gera skal
grein fyrir því að kæra megi synjunina til æðra stjórnvalds innan þriggja
mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Skal viðkomandi tilkynnt
í hverju tilviki hvert æðra stjórnvald er.
57. gr.
Eftirlit lögreglu.
Lögregla hefur eftirlit með
framkvæmd reglugerðarinnar. Í því skyni er henni m.a. heimilt eftirfarandi:
1. Skoða skrár leyfishafa
samkvæmt reglugerð þessari um ráðstöfun skotvopna og skotfæra.
2. Að skoða húsnæði þar sem
skotvopn eða skotfæri eru varðveitt.
58. gr.
Afturköllun leyfis.
Leyfi samkvæmt reglugerð þessari
getur leyfisveitandi afturkallað ef ekki teljast lengur vera fyrir hendi
nauðsynleg skilyrði fyrir leyfinu, leyfishafi hefur ekki farið eftir settum
fyrirmælum eða ætla má að leyfishafi muni fara óforsvaranlega með efni eða tæki
sem leyfið tekur til.
Þegar um er að ræða
skotvopnaleyfi skal lögreglustjóri í því umdæmi þar sem leyfishafi á lögheimili
taka ákvörðun um leyfissviptingu, án tillits til þess hvar leyfið var upphaflega
gefið út.
Leyfisveitanda er heimilt að
afturkalla leyfi til bráðabirgða án þess að með mál sé farið samkvæmt reglum
stjórnsýslulaga enda sé hætta á tjóni fyrir menn eða muni.
59. gr.
Refsingar.
Brot á reglum þessum varða
sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að fjórum árum, nema þyngri refsing liggi
við eftir öðrum lögum.
60. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi sem sett er
samkvæmt heimild í vopnalögum nr. 16 25. mars 1998 og með hliðsjón af XXIX.
kafla II. viðauka EES-samningsins (tilskipun 93/15/EBE) öðlast gildi 1. janúar
1999.
Með reglugerð þessari er felld úr
gildi reglugerð um skotvopn og skotfæri nr. 16 20. janúar 1978 með síðari
breytingum.
EB gerðin sem vísað er til er
birt í EES viðbæti við Stjórnartíðindi EB, sérstakri útgáfu, bók 3, bls.
663-679.
Ákvæði til bráðabirgða
Þrátt fyrir 2. tölul. viðauka
reglugerðarinnar er heimilt að keppa í þeim greinum skotfimi er þar greinir
fyrir skammbyssur allt að cal. 45, enda sé um að ræða skráð skotvopn sem flutt
hafa verið til landsins fyrir gildistöku reglugerðarinnar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 21. desember 1998.
Þorsteinn Pálsson.
Björg Thorarensen.
VIÐAUKI.
Viðurkenndar keppnisgreinar í skotfimi.
Í viðauka þessum greinir þær
skotíþróttagreinar sem viðurkenndar eru á Íslandi og þau skotvopn sem notuð eru
í hverri grein.
1.Skotgreinar Alþjóða skotsambandsins.
|
Skotgrein
|
Tegund skotvopns
|
Hlaupvídd
|
Fjöldi skota
|
|
300 m: þríþraut
|
riffill
|
allt að 8 mm
|
1
|
|
300 m: liggjandi
|
riffill
|
allt að 8 mm
|
1
|
|
300 m,
staðlaður:þríþraut
|
riffill
|
allt að 8 mm
|
1
|
|
50 m: þríþraut
|
riffill
|
cal. 22
|
1
|
|
50 m: liggjandi
|
riffill
|
cal. 22
|
1
|
|
50 m running
target
|
riffill
|
cal. 22
|
1
|
|
10 m: loftriffill
|
loftriffill
|
4.5 mm
|
1
|
|
10 m running
target
|
loftriffill
|
4.5 mm
|
1
|
|
50 m frjáls
|
skammbyssa
|
cal. 22
|
5
|
|
25 m rapid fire
|
skammbyssa
|
cal. 22
|
5
|
|
25 m gróf
|
skammbyssa
|
7.62 mm-9.65 mm
|
5
|
|
25 m stöðluð
|
skammbyssa
|
cal. 22
|
5
|
|
25 m sport
|
skammbyssa
|
cal. 22
|
5
|
|
10 m loftskotvopn
|
skammbyssa
|
4.5 mm
|
1
|
|
Gildra (trap)
|
haglabyssa
|
nr. 12
|
2
|
|
Sjálfvirk gildra
(trap)
|
haglabyssa
|
nr. 12
|
2
|
|
Tvöföld gildra
(trap)
|
haglabyssa
|
nr. 12
|
2
|
|
Skeet
|
haglabyssa
|
nr. 12
|
2
|
1.Aðrar viðurkenndar keppnisgreinar.
|
Silhouette
|
riffill
|
allt að cal. 30
|
5
|
|
Silhouette
|
skammbyssa
|
allt að cal. 22
|
5
|
|
Bench rest
|
riffill
|
allt að cal. 30
|
1
|
Word útgáfa af reglugerð