REGLUGERÐ
um Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.
I. KAFLI
Stjórn safnsins.
1. gr.
Landsbókasafn
Íslands - Háskólabókasafn er sjálfstæð háskólastofnun sem hóf starfsemi 1.
desember 1994 og tók þá við hlutverki hins fyrra Landsbóksafns sem stofnað var
1818, og Háskólabókasafns, sem stofnað var 1940.
2. gr.
Bókasafnið
heyrir stjórnarfarslega undir menntamálaráðherra. Hann skipar því fimm manna
stjórn, til fjögurra ára í senn, svo sem hér segir: Tvo að tilnefningu
háskólaráðs Háskóla Íslands, einn að tilnefningu Rannsóknarráðs Íslands, einn
að tilnefningu Bókavarðafélags Íslands og einn án tilnefningar. Varamenn eru
skipaðir með sama hætti, þó þannig að um varamenn sem háskólaráð tilnefnir skal
greint frá hvor er 1. varamaður og hvor 2. varamaður, og skulu þeir kallaðir
til í þeirri röð, óháð því hvor stjórnarmannanna forfallast.
Ráðherra skipar
einn stjórnarmanna formann og annan varaformann.
3. gr.
Landsbókavörður
situr fundi stjórnar með málfrelsi og tillögurétt, svo og einn fulltrúi
starfsmanna bókasafnsins. Kjósa starfsmenn safnsins fulltrúa sinn til tveggja
ára í senn og annan til vara.
Stjórnin getur
ákveðið að aðstoðarlandsbókavörður og fjármálastjóri bókasafnsins skuli boðaðir
á stjórnarfundi.
Stjórnarfundi
skal að jafnaði halda eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði. Landsbókavörður
boðar til þeirra í umboði formanns stjórnar með skriflegri dagskrá og þriggja
daga fyrirvara. Boða skal til stjórnarfundar ef formaður, landsbókavörður eða
tveir stjórnarmenn óska þess. Við atkvæðagreiðslur ræður einfaldur meirihluti,
nema atkvæði falli jöfn, þá ræður atkvæði formanns.
Ritaðar skulu
fundargerðir um stjórnarfundi.
4. gr.
Stjórnin markar
bókasafninu stefnu, hefur umsjón með gerð starfs- og fjárhagsáætlana þess,
samþykkir gjaldskrá safnsins og hefur eftirlit með starfsemi þess. Stjórnin
veitir enn fremur umsögn við skipun í embætti landsbókavarðar og við ráðningu í
starf aðstoðarlandsbókavarðar.
5. gr.
Menntamálaráðherra
skipar landsbókavörð til fimm ára í senn úr hópi þeirra umsækjenda sem stjórn
bókasafnsins telur hæfa. Heimilt er að endurskipa landsbókavörð einu sinni án
þess að staðan sé auglýst, að fenginni umsögn stjórnar.
Landsbókavörður
ræður aðstoðarlandsbókavörð úr hópi þeirra umsækjenda sem stjórn bókasafnsins
telur hæfa. Aðstoðarlandsbókavörður er staðgengill landsbókavarðar.
Landsbókavörður
ræður jafnframt aðra starfsmenn bókasafnsins.
6. gr.
Stjórn safnsins
gerir tillögu til menntamálaráðuneytis um auglýsingu á embætti landsbókavarðar.
Landsbókavörður auglýsir starf aðstoðarlandsbókavarðar að höfðu samráði við
stjórn safnsins.
Stjórnin fjallar
um umsóknir um embætti landsbókavarðar og lætur menntamálaráðherra í té álit um
hverjir umsækjenda teljast hæfir til að gegna embættinu. Stjórninni ber að skila
rökstuddu áliti um hæfi hvers umsækjanda fyrir sig.
Stjórn safnsins
fjallar einnig um umsóknir um starf aðstoðarlandsbókavarðar og lætur
landsbókaverði í té álit um hverjir umsæjenda teljist hæfir. Í álitinu skal
felast rökstudd umsögn um hæfi hvers umsækjanda fyrir sig.
7. gr.
Landsbókavörður
annast daglegan rekstur og stjórn bókasafnsins, ræður að því starfsfólk, sbr.
5. gr., sér um útfærslu og framkvæmd kjarasamninga að því leyti sem þeir koma
til kasta stofnunarinnar og kemur fram fyrir hönd hennar út á við. Hann semur
og tillögu að starfsáætlun og fjárhagsáætlun bókasafnsins og leggur fyrir
stjórn þess ásamt ársskýrslu fyrra árs.
8. gr.
Stjórn
bókasafnsins setur, að fengnum tillögum landsbókavarðar, reglur um umgengni í
safninu og notkun safnkostsins.
II. KAFLI
Skipulag.
9. gr.
Auk skrifstofu
landsbókavarðar eru í bókasafninu þessar megindeildir sem hafa hver sinn
forstöðumann: Aðfangadeild, handritadeild, skráningardeild, upplýsingadeild,
útlánadeild og þjóðdeild.
Einnig eru í
safninu stoðdeildir og starfseiningar samkvæmt nánari ákvörðun landsbókavarðar
að höfðu samráði við stjórn safnsins, svo sem bókbandsstofa, viðgerðarstofa og
myndastofa. Skal jafnan vandlega metið hvort hagfelldara sé að safnið annist
sjálft tiltekna þjónustu eða skipti við aðila utan stofnunarinnar, sbr. 3.
málsgr. 30. gr. laga nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins.
Kvennasögusafn
Íslands er sérstök starfseining í safninu, sbr. samning þar um, dagsettan 26.
mars 1996.
Unnið skal að
því að byggja upp öfluga tón- og mynddeild í safninu.
10. gr.
Safnráð er
samráðsvettvangur yfirmanna bókasafnsins og forstöðumanna deilda. Í safnráði
eiga sæti landsbókavörður, sem er formaður ráðsins, aðstoðarlandsbókavörður,
fjármálastjóri, forstöðumenn þeirra deilda sem greindar eru í 1. mgr. 9. gr. og
allt að tveir aðrir forstöðumenn einstakra starfsþátta samkvæmt ákvörðun
stjórnar safnsins að fengnum tillögum landsbókavarðar.
III. KAFLI
Þjónusta við Háskóla Íslands.
11. gr.
Sem bókasafn
Háskóla Íslands leitast safnið við að veita sérhæfða þjónustu á helstu
fræðasviðum sem stunduð eru við Háskóla Íslands. Bókasafnið og háskólinn gera
með sér samkomulag um fjárhagsmál, þjónustu safnins við háskólann og um
samskipti stofnananna að öðru leyti. Í samkomulaginu skal m.a. kveðið á um þann
tíma sem lestraraðstaða í safninu skal vera opin nemendum háskólans.
IV. KAFLI
Almenn þjónusta og samstarf við önnur söfn.
12. gr.
Sem þjóðbókasafn
þjónar safnið ekki einungis vísindastarfsemi, heldur sinnir það einnig þörfum
atvinnulífs og hins almenna borgara sem til þess leitar vegna fræðiiðkana eða
til þekkingaröflunar.
13. gr.
Bókasafnið
stuðlar að samstarfi þeirra safna í landinu sem viða að sér handritum, skjölum
og öðrum sambærilegum menningarverðmætum. Samstarfið miðar m.a. að eðlilegri
verkaskiptingu um viðtöku gagna, samráði um varðveislu þeirra og viðgerðir,
færslu þeirra á nýja miðla, sýningu þeirra og kynningu innan lands og utan.
14. gr.
Landsbókasafn
stuðlar að samvinnu bókasafna í landinu og að samræmingu starfshátta, sbr. 11.
gr. laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997. Meðal annars er um að ræða
ráðgjafarstarf og útgáfu handbóka, þróun og útgáfu bókfræðilegra staðla,
viðhald samskrár í tölvukerfi safnsins og starfrækslu millisafnalána.
Bókasafninu er
heimilt, eftir því sem stjórn þess ákveður, að veita viðtöku víkjandi efni í
öðrum bókasöfnum og varðveita það í geymslusafni sínu, sbr. 20. gr.
V. KAFLI
Almenn starfsemi.
15. gr.
Bókasafnið sér
um úthlutun alþjóðabóknúmera og alþjóðatímaritanúmera og um samsvarandi
merkingu annarra safngagna eftir því sem stjórn þess ákveður.
16. gr.
Bókasafnið
veitir viðtöku skilaskyldum gögnum í samræmi við lög sem gilda um það efni á
hverjum tíma. Safnið tekur frá eitt eintak þeirra gagna sem berast í
skylduskilum, eftir því sem við á, og kemur þannig upp safni varaeintaka sem
undanþegin eru venjulegri notkun og geymd tryggilega. Með varaeintakasafni er
stefnt að því að koma upp sem heillegustu safni eldra og yngra efnis sem
varðveita ber til framtíðar við bestu skilyrði.
17. gr.
Safnið
starfrækir bókminjasafn. Um er að ræða rit, íslensk og erlend, sem eru mjög
verðmæt eða hafa sérstakt minjagildi, svo sem vegna aldurs, ferils, afbrigða,
áritunar eða markverðs bókbands. Þeim er hlíft við óþarfri og ógætilegri
notkun, en ekki er krafa um að ritum sem teljast til bókminja sé öllum haldið á
einum stað í safninu. Einnig er heimilt að koma bókminjasafni fyrir að hluta
til á tryggum stað utan safns.
18. gr.
Bókasafnið
heldur uppi rannsóknum á vettvangi íslenskrar bókfræði, bóksögu og bókaútgáfu,
svo og á öðrum sviðum sem tengjast starfsemi eða efni bókasafnsins. Til
stuðnings þessum viðfangsefnum stendur bókasafnið fyrir bókaútgáfu, útgáfu
fræðilegs ársrits og birtingu efnis í rafrænu formi. Safnið leitast m.a. við að
gefa út merk rit í eigu þess, ljósprentuð eða með öðrum hætti.
Safnið gefur út
með reglubundnum hætti þjóðbókaskrá þar sem tilgreind eru rit prentuð á
Íslandi, svo og hljóðrit og eftir atvikum gögn á öðrum miðlum.
19. gr.
Bókasafnið
starfrækir bókasafnskerfi sem hýsir skrá um rit safnsins og styður fleiri þætti
í rekstri þess. Safnið veitir einnig öðrum bókasöfnum fulla aðild að kerfinu
samkvæmt nánara samkomulagi, auk þess sem einstök söfn eiga að því
samskráraðild, þannig að unnt er að ganga á einum stað að upplýsingum um
ritaeign þátttökusafnanna.
20. gr.
Þeim hluta
efniskosts safnsins sem einna minnst er notaður er komið fyrir í geymsluhúsnæði
utan safns. Þá er einnig heimilt, samkvæmt reglum sem landsbókavörður setur að
fengnu samþykki stjórnar, að grisja efniskostinn, selja eða gefa það sem frá er
tekið, eða farga því á annan hátt.
21. gr.
Bókasafnið sér
notendum fyrir aðgengi að rafrænum gögnum eftir því sem tök eru á. Það kostar
einnig kapps um að nýta nýjustu upplýsingatækni til að færa gögn safnsins á
stafrænt form og gera þau þannig aðgengileg umheiminum.
VI. KAFLI
Heimild og gildistaka.
22. gr.
Reglugerð þessi
er sett samkvæmt heimild í 5. og 12. gr. laga nr. 71/1994 um Landsbókasafn
Íslands - Háskólabókasafn, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi
reglugerð nr. 504/1994, sbr. reglugerð nr. 558/1994.
Menntamálaráðuneytinu, 30. nóvember 1998.
Björn Bjarnason.
Guðríður Sigurðardóttir.
Word útgáfa af reglugerð