Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

541/2001

REGLUGERÐ
um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna sölu hópferðabifreiða úr landi.

Gildissvið.
1. gr.
Eftir ákvæðum reglugerðar þessarar skal endurgreiða rekstraraðilum hópferðabifreiða, sem leyfi hafa samkvæmt lögum nr. 13/1999 um skipulag á fólksflutningum með hópferðabifreiðum, 19,68% af söluverði hópferðabifreiða sem þeir sannanlega selja úr landi, sbr. þó 2. mgr.

Endurgreiða skal rekstraraðilum hópferðabifreiða, sem nýskráðar eru á tímabilinu 1. september 2000 til 31. desember 2003 og notið hafa endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. lögum nr. 57/2001, um breyting á lögum um virðisaukaskatt nr. 50/1988, 6,56% af söluverði hópferðabifreiða sem þeir sannanlega selja úr landi.


Endurgreiðslubeiðni.
2. gr.
Sækja skal um endurgreiðslu á sérstöku eyðublaði í því formi sem tollstjórinn í Reykjavík ákveður.


Afgreiðsla á umsóknum og skilyrði endurgreiðslu.
3. gr.
Tollstjórinn í Reykjavík afgreiðir beiðnir um endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari og annast endurgreiðslu.

Skilyrði endurgreiðslu er að í beiðni um endurgreiðslu sé sýnt fram á með fullnægjandi hætti að mati tollstjóra að hópferðabifreiðin hafi verið seld úr landi.

Tollstjórinn í Reykjavík skal rannsaka endurgreiðslubeiðni og getur hann í því sambandi krafið umsækjanda nánari skýringa á viðskiptunum. Með beiðni um endurgreiðslu skal fylgja frumrit sölureiknings eða greiðsluskjal frá tollyfirvöldum þar sem fram kemur söluverð hópferðabifreiðar með áritaðri staðfestingu tollgæslunnar á því að hópferðabifreið samkvæmt reikningnum hafi verið seld úr landi.


4. gr.
Röng skýrslugjöf eða framlagning rangra eða villandi gagna, svo og röng upplýsingagjöf látin í té í því skyni að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar, varðar við 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.


5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 6. gr. laga nr. 105/2000, um breyting á lögum um virðisaukaskatt nr. 50/1988, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Fjármálaráðuneytinu, 3. júlí 2001.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Ingvi Már Pálsson.

    nr 541 2001.doc
Breytingar:
556/2002 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 541/2001, um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna sölu hópferðabifreiða úr landi.
1070/2009 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 541/2001, um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna sölu hópferðabifreiða úr landi.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt