REGLUGERÐ
fyrir vatnsveitur
sveitarfélaga.
I. KAFLI
Stjórn
vatnsveitna.
1. gr.
Sveitarstjórn fer með stjórn vatnsveitu í sveitarfélaginu.
2. gr.
Sveitarstjórn getur kosið sérstaka stjórn til að hafa
umsjón með framkvæmd vatnsveitumála sveitarfélagsins í umboði sveitarstjórnar.
Ákveði sveitarstjórn að kjósa sérstaka stjórn skal það gert
á fyrsta eða öðrum fundi sveitarstjórnar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
Kjörtímabilið skal vera hið sama og sveitarstjórnar, nema sveitarstjórn ákveði
annað.
Sveitarstjórn skal ákveða fjölda stjórnarmanna. Um
fundarsköp gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 svo og ákvæði í samþykkt
um stjórn og fundarsköp hlutaðeigandi sveitarfélags. Sveitarstjórn skipar
formann stjórnar nema samþykktir sveitarstjórnar kveði á um annað.
3. gr.
Helstu verkefni stjórnar vatnsveitu eru þessi:
Að ákveða framkvæmd vatnsveitumála á veitusvæði
vatnsveitunnar í samræmi við samþykktir sveitarstjórnar, sbr.
sveitarstjórnarlög nr. 8/1986, lög nr. 81/1991 um vatnsveitur sveitarfélaga og
vatnalög nr. 15/1923 eftir því sem við á hverju sinni. Að gera tillögu að
gjaldskrá vatnsveitunnar varðandi fjárhæðir gjalda, skv. 6., 7. og 8. grein
laga nr. 81/1991 og III. kafla reglugerðar þessarar og leggja fyrir
sveitarstjórn til ákvörðunar.
Að semja drög að fjárhagsáætlun fyrir vatnsveituna og
leggja fyrir sveitarstjórn.
Að gera tillögu um ráðningu vatnsveitustjóra til
sveitarstjórnar. Um ráðningu annarra starfsmanna vatnsveitunnar skal fara eftir
ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 og samþykkt um stjórn og fundarsköp
sveitarfélags.
Að afgreiða beiðnir frá húseigendum, skv. 6. grein laga nr.
81/1991 svo og önnur þau erindi sem berast og varða vatnsveituna. Að setja
nánari reglur um einstök framkvæmdaratriði reglugerðar þessarar eftir því sem
þörf gerist og leggja fyrir sveitarstjórn.
4. gr.
Sveitarstjórn ræður vatnsveitustjóra að fengnum tillögum
stjórnar vatnsveitunnar. Gera skal sérstakan ráðningarsamning við
vatnsveitustjóra þar sem meðal annars er kveðið á um starfskjör hans.
Vatnsveitustjóri skal annast daglegan rekstur vatnsveitunnar í umboði stjórnar
vatnsveitunnar. Stjórn vatnsveitunnar skal setja honum erindisbréf, í samráði
við sveitarstjórn, þar sem nánar er kveðið á um verksvið hans. Vatnsveitustjóri
skal sitja fundi stjórnar vatnsveitunnar með málfrelsi og tillögurétt.
5. gr.
Sveitarstjórnum er heimilt að hafa samvinnu sín á milli um
lagningu og rekstur vatnsveitu m.a. á vettvangi byggðasamlaga og skulu þá
ákvæði IX. kafla sveitarstjórnarlaga gilda.
Í stofnsamningi sveitarstjórna um samvinnu í
vatnsveitumálum skal m.a. kveða á um stjórn og kjör fulltrúa, fjölda þeirra,
kjörtímabil o.fl., sbr. nánar 98. grein sveitarstjórnarlaga.
II. KAFLI
Skilgreining
hugtaka.
6. gr.
Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi orð og hugtök þessa
merkingu:
a) Vatnsgjald: Gjald, sem
sveitarstjórn leggur á fasteignaeigendur, er geta notið vatns frá vatnsveitu
sveitarfélagsins, í samræmi við 7. grein laga nr. 81/1991, og ætlað er að
standa straum af stofnkostnaði og rekstri vatnsveitu.
b) Aukavatnsgjald: Gjald,
sem sveitarstjórn leggur á þá notendur vatns, er kaupa vatn til annarra þarfa
en heimilis, samkvæmt mældri notkun í rúmmetrum.
c) Heimæðargjald: Gjald, sem
felur í sér greiðslu fasteignareiganda til sveitarsjóðs/ vatnsveitu fyrir
lagningu einnar heimæðar og uppsetningu á stofnkrana.
d) Vatnsæð: Samheiti yfir
heimæð, götuæð og aðalæð.
e) Aðalæð: Vatnslögn, sem
liggur frá vatnsbóli að miðlunarstað, þaðan sem stofnæðar dreifast til
einstakra hverfa og götuæðar eru lagðar frá.
f) Götuæð: Vatnslögn, sem
liggur frá stofnæð og ætlað er að flytja vatn um einstakar götur.
g) Heimæð: Vatnslögn, sem
liggur frá götuæð og er ætlað að sjá einstökum notendum fyrir vatni.
h) Stofnkrani: Sá hluti
heimæðar, sem vatnslagnir innan húss eru tengdar við.
i) Tengiloki: Loki, sem
settur er á enda heimæðar við lóðarmörk.
j) Ídráttarrör: Hlífðarrör,
sem heimæð er dregin inn í, þegar heimæð er lögð frá lóðarmörkum í hús.
III. KAFLI
Fjármál
vatnsveitna.
7. gr.
Þar sem vatnsveitur hafa sjálfstæðan fjárhag skal halda
bókhald í samræmi við lög um bókhald nr. 51/1968 og reglugerð nr. 280/1989, um
bókhald og ársreikninga sveitarfélaga o.fl., eftir því sem við á. Semja skal
ársreikning fyrir vatnsveituna, sbr. 82. grein sveitarstjórnarlaga. Endurskoðun
ársreiknings skal framkvæmd með sama hætti og endurskoðun ársreiknings
sveitarsjóðs.
Þar sem vatnsveitur eru deild innan ársreiknings
sveitarsjóðs skal gert sérgreint yfirlit um tekjur og gjöld, sem tengjast
rekstri og framkvæmdum á vegum vatnsveitunnar.
8. gr.
Fjárhagsáætlun fyrir vatnsveitu skal afgreidd af
sveitarstjórn með sama hætti og fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, sbr. 75. grein og
78. grein - 80. grein sveitarstjórnarlaga.
Þar sem sérstök stjórn vatnsveitu hefur verið kosin skal
hún gera tillögu til sveitarstjórnar um áætlaðar tekjur, rekstrargjöld og
framkvæmdir á vegum vatnsveitunnar. Einnig skal stjórn vatnsveitu leggja fyrir
sveitarstjórn drög að þriggja ára áætlun, um rekstur, framkvæmdir og fjármál
vatnsveitu, sbr. 76. grein sveitarstjórnarlaga. Að öðrum kosti ákveður
sveitarstjórn þetta alfarið.
9. gr.
Sveitarstjórn er heimilt að heimta vatnsgjald af öllum
fasteignum er vatnsins geta notið og skal við það miðað að gjaldið standi
straum af stofnkostnaði og rekstri vatnsveitu. Álagningarstofn vatnsgjalds skal
vera afskrifað endurstofnverð húss og mannvirkis, margfaldað með markaðsstuðli
fasteigna í Reykjavík samkvæmt matsreglum Fasteignamats ríkisins, sbr. 3. grein
laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 90/1990. Stofn til álagningar vatnsgjalds
á lóðir og lendur skal vera fasteignamat þeirra.
Sveitarstjórn ákveður upphæð vatnsgjalds, að fenginni
tillögu stjórnar vatnsveitu. Vatnsgjald má nema allt að 0,3 hundraðshlutum af
álagningarstofni. Sveitarstjórn er heimilt að ákveða hámark og lágmark vatnsgjalds
miðað við rúmmál húseigna, enda verði álagningin aldrei hærri en sem nemur 0,3
hundraðshlutum af álagningarstofni.
Nú liggur matsverð fullfrágenginnar fasteignar eigi fyrir
við álagningu vatnsgjalds, en fasteign getur notið vatns frá vatnsveitu sveitarfélagsins,
sbr. 1. mgr., og er þá sveitarstjórn heimilt að ákveða upphæð vatnsgjaldsins
með hliðsjón af því hver verður líklegur álagningarstofn fullfrágenginnar
eignar.
Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar
fasteignaskatts og innheimtu þess hagað á sama hátt í samræmi við 4. grein laga
um tekjustofna sveitarfélaga nr. 90/1990.
10. gr.
Í fyrirtækjum og annars staðar þar sem vatn er notað til
annars en venjulegra heimilisþarfa, vegna atvinnu, sem í þeim er rekin, eða af
öðrum ástæðum, skal auk vatnsgjalds greiða sérstakt gjald, aukavatnsgjald.
Aukavatnsgjald, skal notandi að jafnaði greiða, samkvæmt notkun vatns mældri í
rúmmetrum. Sveitarstjórn ákveður, sbr. 3. grein, gjald þetta sem má fyrir hvern
rúmmetra nema allt að 15 kr. Heimilt er sveitarstjórn að hækka gjaldið
ársfjórðungslega en grunngjaldið miðast við vísitölu byggingarkostnaðar í
október 1991, 187 stig. Verði mælingu vatnsins eigi komið við ákveður
sveitarstjórn, að fengnum tillögum stjórnar vatnsveitu, aukavatnsgjaldið samkvæmt
áætlaðri notkun. Aukavatnsgjald skal innheimta eftirá en sveitarstjórn ákveður
hvenær gjalddagi er.
Í undantekningartilvikum þegar stofnkostnaður og/eða
reksturskostnaður vatnsveitu er óvenjulega hár, getur ráðherra veitt
sveitarstjórn heimild til að ákveða hærra aukavatnsgjald en segir í 1. mgr.
11. gr.
Þar til aðstöðu hefur verið komið upp hér á landi til að
löggilda vatnsmæla, er heimilt að nota mæla sem prófaðir hafa verið af
framleiðanda mælanna. Gerð mælis skal jafnframt hafa fengið viðurkenningu erlendrar
löggildingarstofu, sem Löggildingarstofa Íslands viðurkennir.
Sveitarstjórn/vatnsveitan lætur þeim, er greiða skulu
aukavatnsgjald, í té viðurkennda vatnsmæla.
Sveitarstjórn/vatnsveitan er eigandi mælisins og ákveður
stærð hans og gerð í samræmi við vatnsnotkun á hverjum stað. Sá er notar vatn
samkvæmt mæli skal greiða árlegt leigugjald fyrir mælinn. Sveitarstjórn ákveður
upphæð leigugjalds, sbr. 3. grein. Sveitarstjórn/vatnsveitan annast og kostar
eðlilegt viðhald vatnsmælis, en allar skemmdir af mannavöldum og frosti ber
fasteignareiganda að bæta.
Ef maður rífur innsigli vatnsmælis varðar það refsingu
samkvæmt almennum hegningarlögum.
Vatnslagnir innan húss eiga jafnan að vera þannig lagðar,
að hægt sé að nota einn mæli fyrir hvert innanhússkerfi. Verði vatnsmæli eigi
komið fyrir án breytinga á vatnslögn, er fasteignareiganda skylt að láta breyta
lögninni á eigin kostnað. Honum ber og að tilkynna sveitarstjórn/vatnsveitunni
tafarlaust bilanir á vatnsmæli, er hann kann að verða var við.
12. gr.
Til þess að standa straum af kostnaði vatnsveitu við
lagningu vatnsæðar, heimæðar, frá götuæð í stofnkrana húss og uppsetningu hans
skal fasteignareigandi greiða heimæðargjald. Sveitarstjórn ákveður upphæð
heimæðargjalds, sbr. 3. grein, og skal gjald fyrir eina heimæð taka mið af
rúmmáli húss (m3), utanmáli.
13. gr.
Endurgjald hafnarsjóðs til sveitarsjóðs/vatnsveitu vegna
vatnssölu til skipa, báta og annarra úr vatnsdreifikerfi hafnar skal miðast við
mælda notkun og ákveður sveitarstjórn gjald fyrir hvern rúmmetra í gjaldskrá.
Hafnarstjórn/sveitarstjórn ákveður verð fyrir hvern rúmmetra vatns, sem seldur
er til skipa og báta.
14. gr.
Selji sveitarfélag öðru sveitarfélagi vatn skal endurgjald
fyrir vatnið ákveðið með samkomulagi aðila eða mati dómkvaddra matsmanna náist
ekki samkomulag. Við mat skal þess gætt að endurgjaldið verði aldrei minna en
sannanlegur kostnaður sveitarstjórnar/ vatnsveitunnar af vatnsvinnslu og
dreifingu vegna vatnssölunnar, ásamt allt að 5% álagi af bundnu fjármagni.
15. gr.
Heimilt er sveitarstjórn að binda vatnssölu til fyrirtækja,
sem nota vatn í tengslum við framleiðslu sína, því skilyrði að gerður verði
sérstakur vatnssölusamningur, er taki m.a. mið af kostnaði
sveitarstjórnar/vatnsveitunnar af vatnsvinnslu og dreifingu vegna vatnssölunnar
ásamt allt að 25% álagi af bundnu fjármagni.
16. gr.
Sveitarstjórn skal setja gjaldskrá, að fengnum tillögum
stjórnar vatnsveitu, sbr. 3. grein, þar sem m.a. komi fram fjárhæð þeirra
gjalda, sem heimilt er að innheimta samkvæmt þessum kafla, svo og gjalddagar
þeirra. Sveitarstjórn er heimilt að binda gjöld þessi, önnur en vatnsgjald, við
breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar.
IV. KAFLI
Lagning
veitukerfis, viðhald o.fl.
17. gr.
Sveitarstjórn sér um alla uppbyggingu vatnsveitu
sveitarfélagsins, þ.e. virkjun vatnsbóla, lagningu vatnsæða auk byggingu
annarra mannvirkja, sem nauðsynleg kunna að vera til reksturs veitunnar, svo
sem dælustöðva og miðlunargeyma. Sveitarstjórn annast og kostar viðhald þessa.
18. gr.
Um veitukerfi vatnsveitu gilda ákvæði íslensks staðals,
eftir því sem við getur átt, en norrænir staðlar og ISO staðlar skulu vera
leiðbeinandi að öðru leyti. Ákvæði laga um skipulags-, byggingar- og
heilbrigðismál gilda einnig eftir því sem við á.
19. gr.
Þeir pípulagningameistarar einir mega hafa umsjón með og
bera ábyrgð á framkvæmdum við lagningu vatnsæða innanhúss og viðhald þeirra,
sem til þess hafa hlotið viðurkenningu byggingarnefndar, sbr. ákvæði 2.4.7. í
byggingarreglugerð, og fullnægja að öðru leyti skilyrðum sem sett eru í lögum og
reglugerðum. Lagning vatnsæða utanhúss skal vera í höndum sömu aðila eða
þeirra, sem að dómi sveitarstjórnar hafa sambærilega reynslu og þekkingu til
verksins.
20. gr.
Eigandi húss við veg eða opið svæði, þar sem götuæð liggur,
á rétt á að fá heimæð lagða frá götuæð í húseignina.
Sá, sem óskar eftir því að heimæð vatnsveitu verði lögð í
húseign eða breytingar gerðar á heimæð, vegna framkvæmda á hans vegum, skal
sækja um það til sveitarstjórnar/stjórnar vatnsveitu. Umsókn skal undirrituð af
eiganda eða fullgildum umboðsmanni hans.
Umsókn skulu fylgja teikningar af vatnslögnum innanhúss.
Teikningar þessar skulu fylgja almennum reglum um hönnun vatnslagna, sbr. 18.
grein, þessarar reglugerðar, og vera samþykktar af byggingaryfirvöldum
sveitarfélagsins. Lega heimæðar frá lóðarmörkum að stofnkrana skal koma fram á
afstöðumynd, sem fylgja skal framangreindum teikningum.
Húseigandi skal greiða gjald fyrir lagningu einnar
heimæðar, sbr. 12. grein. Þurfi að gera breytingar á heimæð vegna framkvæmda á
vegum húseiganda skal hann kosta þær.
Dælur eða önnur tæki, sem geta valdið óeðlilegri notkun
vatns, má ekki tengja við heimæð nema að fengnu leyfi sveitarstjórnar/stjórnar
vatnsveitu.
21. gr.
Við hönnun húsa skal gera ráð fyrir og staðsetja á
uppdrætti, sem lagður er fyrir byggingarnefnd, rými fyrir stofnkrana heimæðar í
samráði við byggingaryfirvöld sveitarfélags. Inntaksrými stofnkrana skal vera
upphitað, með niðurfalli í gólfi og aðgengilegt starfsmönnum vatnsveitunnar.
Við nýbyggingu húss leggur vatnsveitan hluta heimæðar frá
götuæð inn fyrir lóðarmörk og setur þar tengiloka, sem húseiganda er heimilt, í
samvinnu við vatnsveitu að nota, meðan á byggingu hússins stendur. Frá þessum
tengiloka ber húseiganda að leggja, á frostfríu dýpi, ídráttarrör að
inntaksstað heimæðar samkvæmt samþykktri afstöðumynd. Til að unnt verði að
ganga frá tengingu heimæðar við stofnkrana húss skal skilja eftir holu við báða
enda ídráttarrörs. Við ákvörðun heimæðargjalds, sbr. 12. grein, skal gera ráð
fyrir að ídráttarrör sé fyrir hendi.
Sé heimæð lögð inn í hús á þeim árstíma þegar frosthætta
getur verið fyrir hendi, að dómi sveitarstjórnar/stjórnar vatnsveitu, er
húseiganda skylt að koma hita á inntaksrými stofnkrana.
Ætíð er bannað að hylja vatnslagnir áður en gerð hefur
verið úttekt á þeim á vegum eftirlitsaðila sveitarstjórnar.
Varðveisla samþykktra uppdrátta af vatnslögnum skal vera á
hendi sveitarstjórnar eða þeirra aðila sem hún ákveður.
22. gr.
Réttur húseigenda til vatnsnota skuldbindur ekki
vatnsveituna til þess að tryggja, að þrýstingur í götuæðum sé ávallt nægilegur.
Ef þannig stendur á að götuæðar eða heimæðar, sem fyrir
eru, geta ekki séð atvinnufyrirtæki eða öðrum fyrir nægilegu vatni, getur
sveitarstjórn/stjórn vatnsveitu sett það sem skilyrði fyrir úrbótum, að
húseigandi/notandi greiði þann kostnað sem til fellur vegna nauðsynlegra
úrbóta.
Vatnsveitan skal, eftir því sem mögulegt er, sjá
húseigendum fyrir fullnægjandi vatnsmagni og þrýstingi inn á sjálfvirk
vatnsúðakerfi til slökkvistarfa. Ef þannig stendur á að götuæðar geta ekki séð
fyrir því vatnsmagni, sem nauðsynlegt telst vegna vatnsúðakerfis eða
sambærilegs búnaðar, og brunamálayfirvöld gera kröfu til að sé fyrir hendi,
getur sveitarstjórn krafist þess að húseigandi komi fyrir vatnsmiðlunargeymi í
húsinu eða öðrum viðeigandi búnaði.
Ef vatnsæðar hafa ekki verið lagðar í götu, þar sem óskað
er eftir vatnsnotkun, getur sveitarstjórn/stjórn vatnsveitu sett það sem
skilyrði fyrir lögn vatnsæðar, að húseigandi/ notandi taki þátt í kostnaði við
lögnina.
23. gr.
Húseigandi á allar vatnslagnir innanhúss, fyrir innan
stofnkrana, og er skylt að halda þeim vel við svo og vatnstækjum hússins.
Sveitarstjórn/stjórn vatnsveitu er þó heimilt að setja upp nauðsynlegan búnað
við stofnkrana, svo sem síu, tengibút vegna uppsetningar rennslismælis, og
einstreymisloka.
Verði notandi uppvís að óhóflegri vatnsnotkun eða vanræki
viðhald á vatnslögnum og vatnstækjum innanhúss getur sveitarstjórn/stjórn
vatnsveitu krafist þess að úr því verði bætt. Verði eigandi ekki við kröfu um
úrbætur getur sveitarstjórn/stjórn vatnsveitu stöðvað sölu á vatni, sbr. 29.
grein.
Sveitarstjórn/stjórn vatnsveitu getur krafist þess, að
fyrirtæki, er mikið vatn nota, afli sér sparneytnari véla eða setji upp geyma
til söfnunar vatns að næturlagi.
24. gr.
Starfsmenn vatnsveitu skulu, í samráði við húseigendur,
hafa aðgang að öllum vatnslögnum innanhúss til eftirlits. Húseigendum ber að
gefa þeim upplýsingar um vatnslagnir og vatnsnotkun eftir því sem unnt er. Enn
fremur skulu starfsmenn vatnsveitunnar hafa frjálsan aðgang að heimæð
vatnsveitu á lóð, vegna framkvæmda við viðhald og eftirlit. Hið sama gildir um
lönd þar sem aðalæðar liggja.
Við lagningu heimæðar og viðhald hennar, skulu starfsmenn
vatnsveitunnar halda raski í lágmarki og ganga snyrtilega um. Sé nauðsynlegt
vegna bilunar eða endurnýjunar á heimæð að grafa upp heimæðina er starfsmönnum
vatnsveitu það heimilt, en færa skulu þeir lóð, að verki loknu, til fyrra horfs
eins og unnt er. Starfsmönnum vatnsveitu er heimilt vegna endurnýjunar heimæðar
að leggja hana á öðrum stað frá götu í hús, telji þeir það heppilegra til að
forðast skemmdir. Enn fremur er starfsmönnum heimilt, að höfðu samráði við
húseiganda, að fara með heimæð inn í hús á öðrum stað, ef ekki er unnt að nota
þann stað sem fyrir er, nema valda miklu og/eða óbætanlegu tjóni. Hafi
húseigandi gróðursett trjáplöntur, steypt veggi eða stæði yfir heimæð ellegar
lagt yfir hana snjóbræðslukerfi ber sveitarstjórn ekki ábyrgð á því tjóni sem
kann að verða vegna nauðsynlegra aðgerða vatnsveitu, nema tjónið verði rakið til
gáleysis starfsmanna vatnsveitu.
Eigandi fasteignar á ekki kröfu á sérstakri greiðslu fyrir
óþægindi vegna lagningar og viðhalds heimæðar.
25. gr.
Sveitarstjórn/stjórn vatnsveitu skal koma fyrir brunahönum
í samráði við slökkviliðsstjóra og annast iðhald þeirra og eftirlit.
Óheimilt er öðrum en slökkviliði við slökkvistörf og
starfsmönnum vatnsveitunnar við störf þeirra, að opna brunahana, nema með
sérstöku leyfi sveitarstjórnar/stjórnar vatnsveitu.
26. gr.
Ef eldsvoða ber að höndum hafa slökkvilið, lögregla og
starfsmenn vatnsveitu heimild til þess að gera hverjar þær ráðstafanir, sem
nauðsynlegar mega teljast, hvort heldur á vatnsæðum í eigu
sveitarstjórnar/vatnsveitu eða einkaeign.
V. KAFLI
Um lokun fyrir
vatn, innheimtu gjalda
og viðurlög gegn
brotum.
27. gr.
Ef nauðsyn krefur, vegna viðgerða á dælustöðvum,
vatnsgeymum, vatnsæðum og öðrum lögnum veitukerfis vatnsveitunnar eða af öðrum
ástæðum, getur vatnsveitan fyrirskipað takmörkun á vatnsnotkun, takmarkað
vatnsrennsli eða lokað fyrir vatn, eftir því sem þörf krefur hverju sinni, enda
tilkynni vatnsveitan fyrirfram um slíkar takmarkanir, ef unnt er.
28. gr.
Fullt vatnsgjald ber að greiða, þótt lokun fari fram
samkvæmt 27. grein, og vatnsveitan ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni, er
leiða kann af rekstrartruflunum, er verða vegna vinnu við veitukerfi
vatnsveitunnar, rafmagnstruflana eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum.
29. gr.
Vatnsgjald og heimæðargjald ásamt áföllnum vöxtum og
kostnaði eru tryggð með lögveðsrétti í fasteigninni næstu tvö ár eftir
gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Ef
hús brennur eftir að vatnsgjald eða heimæðargjald fellur í gjalddaga er sami
forgangsréttur í brunabótafjárhæð eignarinnar.
Heimilt er að loka fyrir heimæðar hjá þeim, sem vanrækja
greiðslu aukavatnsgjalds og gjald fyrir mælaleigu, að undangenginni skriflegri
aðvörun. Aukavatnsgjald og gjald fyrir mælaleigu má taka fjárnámi.
Heimilt er að stöðva vatnssölu til allra þeirra, er
vanrækja viðhald vatnslagna innanhúss, eru staðnir að sóun vatns eða brjóta
gegn ákvæðum reglugerðar þessarar.
30. gr.
Brot á reglugerð þessari varðar sektum, sem renna skulu í
sveitarsjóð, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Mál varðandi brot á
reglugerð þessari skal farið með að hætti opinberra mála.
VI. KAFLI
Gildistökuákvæði.
31. gr.
Reglugerð fyrir vatnsveitur sveitarfélaga skal gilda fyrir
allt landið.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli laga nr. 81/1991
um vatnsveitur sveitarfélaga, staðfestist hér með til að öðlast gildi 1. janúar
1993. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð fyrir vatnsveitur
sveitarfélaga, nr. 620/1991, sbr. reglugerð nr. 90/1992.
Félagsmálaráðuneytið,
23. nóvember 1992.
Jóhanna
Sigurðardóttir.
Þórhildur Líndal.
Word útgáfa af reglugerð