REGLUGERÐ
um Sjóðshappdrætti Háskóla
Íslands.
1. gr.
Happdrætti Háskóla
Íslands rekur sérstakt happdrætti undir heitunum Sjóðshappdrætti i Háskóla
Íslands og "Happó".
2. gr.
Í happdrættinu eru gefnir
út sjálfstæðir útgáfuflokkar, hver um sig auðkenndur með bókstöfum, einum eða
fleiri. Bókstafirnir eru prentaðir á happdrættismiðana við hlið miðanúmers.
Engar kvaðir eru á fjölda miða sem út eru gefnir í hverjum útgáfuflokki.
3. gr.
Á miðum hvers
útgáfuflokks skal, auk auðkennisbókstafs útgáfuflokks, koma fram verð miðans,
dráttardagur og innlausnarfrestur vinninga. Miðanúmer skal óæði prentað á
miðann með vel læsilegum bókstöfum og tölvutækum strikamerkingum.
4. gr.
Nýr flokkur
happdrættismiða skal að jafnaði gefinn út á tveggja vikna fresti, en heimilt er
stjórn happdrættisins að breyta útgáfutíðni þannig að ein, tvær, þrjár eða
fjórar vikur liði á milli útgáfuflokka.
Sölu hvers flokks lýkur
að jafnaði á mánudegi en útdráttur fer fram næsta virkan dag.
5. gr.
Verð hvers
happdrættismiða skal vera 250 kr.
6. gr.
Miðar í happdrættinu
skulu vera til sölu hjá aðalskrifstofu Happdrættis Háskóla Íslands,
umboðsmönnum þess og eftir atvikum öðrum sölumönnum samkvæmt ákvörðun stjórnar
happdrættisins.
7. gr.
Miðar í hverjum
útgáfuflokki skulu prentaðir í samfellum, sem í eru 100, 200 eða 500 miðar, og
myndar hver samfella eitt miðabúnt. Gataröð verði milli einstakra miða þannig
að auðveldlega megi skilja miða í sundur þá er sala fer fram.
Miðar skulu að jafnaði
seldir úr sérstökum sölukössum, þannig að miðar í hverju miðabúnti seljist í
númeraröð - lægri númerin í hverju búnti fyrst.
8. gr.
Þegar miðar (búnt) eru
afhentir til sölu skulu númer miðanna skráð í aðaltölvu happdrættisins.
Þegar sölu í útgáfuflokki
lýkur skulu starfsmenn happdrættisins, umboðsmenn, og eftir atvikum aðrir
sölumenn, staðreyna og staðfesta hvaða miðar eru óseldir of þeim miðum, sem
seljendur fengu til sölu. Þessum upplýsingum skal komið tímanlega til
aðalskrifstofu happdrættisins þar sem þær verða skráðar í aðaltölvu þess áður
en útdráttur fer fram.
Takist ekki að fá
upplýsingar tímanlega frá einstökum seljendum um óselda miða skal litið svo á
að allir miðar sem þeir fengu til sölu hafi verið seldir. Útgefnum miðum í
tilteknum útgáfuflokki sem ekki höfðu selst þegar sölu var hætt, skal skilað
til aðalskrifstofu happdrættisins innan viku frá því er útdráttur fór fram.
Happdrættið skal
varðveita skrá um selda miða í hverjum útgáfuflokki, svo og óselda miða, og
skulu gögn þessi vera aðgengileg til eftirlits fyrir happdrættisráð. Gögnin
skulu varðveitt í a.m.k. tvö ár frá útdrætti.
9. gr.
Happdrætti Háskóla Íslands ber
ekki ábyrgð á villu í prentun miða, en endurgreiða ber handhafa slíks miða
andvirði hans, enda framvísi harm miðanum án ástæðulausrar tafar.
Komi í ljós eftir útdrátt að
vegna villu í prentun beri tveir eða fleiri miðar sama vinningsnúmer skiptist
vinningsfjárhæð jafnt á hvern miða.
Ógallaðir miðar verða ekki
endurgreiddir.
10. gr.
Af heildarsölu hvers
útgáfuflokks skal helmingi varið til vinninga. Heildarfjárhæð vinninga í
hverjum útgáfuflokki skiptist í þrjá hluta þannig að í hlut eins vinningshafa
kemur helmingur fjárhæðarinnar, tíu vinningshafar skipta með sér 30% og eitt
hundrað vinningshafar fá samtals 20%.
Stjórn happdrættisins er
heimilt að ákveða að 2,5% of heildarsölu hvers útgáfuflokks skulu lögð í
sérstakan sjóð sem leggst við hæsta vinning í öðrum útgáfuflokki samkvæmt
sérstakri ákvörðun stjórnarinnar. Ákvörðun um það í hvaða útgáfuflokki sjóður
þessi verði notaður skal auglýsa eigi síðar en þá er sala hefst í þeim
útgáfuflokki.
11. gr.
Útdráttur vinninga fer
fram á aðalskrifstofu Happdrættis Háskóla Íslands og skal tölva þess notuð við
útdráttinn.
Þegar útdráttur fer fram skal
liggja fyrir hversu margir miðar voru prentaðir í hlutaðeigandi útgáfuflokki,
hversu margir þeirra voru seldir og hvaða miðar höfðu ekki selst.
Vinningsnúmer skulu eingöngu
dregin úr númerum seldra miða.
Við útdrátt skal nota sömu gögn og
tæki og notuð eru við útdrátt í flokkahappdrætti Háskólans.
Eftirlit með útdrætti skal vera í
höndum happdrættisráðs sem færir niðurstöður útdráttar og aðrar upplýsingar um
framkvæmd hans í sérstaka gerðabók og staðfestir vinningaskrá.
Heimilt er að fresta birtingu á
niðurstöðu útdráttar í allt að tvo sólarhringa.
12. gr.
Að loknum drætti skal
happdrættið láta prenta skýrslu um vinninga, hvaða miðar hafi hlotið vinninga
og hve háa. Skal skýrslan send öllum umboðsmönnum happdrættisins og vera þar
til sýnis viðskiptamönnum.
13. gr.
Vinningsmiðum ber að
framvísa til happdrættisins. Þar til nafnritun á sér stað aftan á miðann er
litið á handhafa hans sem eiganda. Þegar nafnritun hefur átt sér stað skal
litið á þann er ritað hefur nafn sitt sem réttan eiganda og rétthafa til
vinnings. Hafi fleiri en einn skráð nafn sitt sem eiganda á bakhlið
vinningsmiða, þurfa þeir að kvitta fyrir vinningi eða gefa umboð til móttöku
hans.
14. gr.
Vinningar sem nema lægri
upphæð en 20.000 kr. skulu greiddir hjá sölumanni eða umboðsmanni eða á
aðalskrifstofu happdrættisins. Greiðsla skal hefjast ekki síðar en á fjórða
virkum degi eftir útdrátt.
Vinningar sem nema 20.000 kr. eða
hærri fjárhæð skulu greiddir frá aðalskrifstofu Happdrættis Háskóla Íslands
innan tveggja vikna frá því er vinningsmiða er framvísað.
Þegar vinningur nemur 20.000 kr.
eða hærri fjárhæð skal vinningshafi framvísa vinningsmiða sínum hjá sölumanni
eða umboðsmanni eða á aðalskrifstofu happdrættisins ásamt útfylltu þar til
gerðu útborgunareyðublaði. Skal vinningshafinn fá í hendur kvittað eintak
útborgunareyðublaðsins. Aðalskrifstofan greiðir vinning um leið og gengið hefur
verið úr skugga um að vinningsmiði sé gildur.
Vextir reiknast ekki á vinninga.
15. gr.
Vinnings skal vitja innan
eins árs frá því að útdráttur fór fram í hlutaðeigandi útgáfuflokki. Að þeim
fresti liðnum verður vinningurinn eign happdrættisins.
16. gr.
Reglugerð þessi, sem sett
er samkvæmt lögum um happdrætti Háskóla Íslands, nr. 1313. apríl 1973, sbr. lög
nr. 23 5. maí 1986, öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
20, ágúst 1991.
Þorsteinn Pálsson.
Þorsteinn Geirsson.
Word útgáfa af reglugerð