REGLUGERÐ
um starfsháttu
örorkunefndar.
1. gr.
Örorkunefnd gefur álit um miskastig eða örorkustig eftir 4.
og 5. gr. skaðabótalaga. Í áliti nefndarinnar skal að jafnaði koma fram hvenær
nefndin telur að tjónþoli hafi ekki getað vænst frekari bata af afleiðingum
líkamstjóns, sbr. 2. og 3. gr. laganna.
2. gr.
Auk tjónþola og þess sem krafinn er um greiðslu vegna tjóns
geta dómstólar leitað álits nefndarinnar. Vátryggingafélag sem selt hefur
bótaskyldum aðila ábyrgðartryggingu getur einnig óskað eftir áliti nefndarinnar
um tjón sem vátryggingin tekur til.
3. gr.
Beiðni um álit skal vera skrifleg og rituð á eyðublað sem
nefndin lætur í té. Með beiðni skulu fylgja skýrslur um atvik að tjónsatburði
og afleiðingar hans. Einnig skulu fylgja ítarleg vottorð lækna sem stundað hafa
tjónþola vegna tjóns hans. Þá skulu og fylgja staðfest endurrit skattframtala
tjónþola síðustu tvö almanaksár fyrir tjónsatburð og skattframtala eftir að
tjón varð. Nefndin getur að auki lagt fyrir matsbeiðanda að leggja fram
viðbótargögn eftir því sem ástæða þykir til.
4. gr.
Álit nefndarinnar samkvæmt 1. gr. skal vera skriflegt. Þar
skal getið þeirra gagna sem liggja til grundvallar niðurstöðu. Niðurstöðu skal
fylgja stuttur rökstuðningur.
5. gr.
Örorkunefnd skal halda málaskrá og gerðabók.
Nefndin skal árlega senda dómsmálaráðherra stutta skýrslu
um starfsemi sína á liðnu almanaksári. Fyrsta skýrsla hennar skal þó taka til
starfsemi hennar á árunum 1993 og 1994.
6. gr.
Gjald fyrir álit samkvæmt 1. gr. er 35 000 krónur og
greiðist í ríkissjóð. Greiðslu skal fylgja beiðni um álit og er hún óendurkræf
þótt nefndin kunni að vísa máli frá sér. Að öðru leyti greiðist kostnaður af
starfi nefndarinnar úr ríkissjóði.
Fjárhæð gjalds samkvæmt 1. mgr. breytist árlega frá og með
1. janúar 1995 í hlutfalli við breytingar sem orðið hafa á lánskjaravísitölu
næstliðið ár.
7. gr.
Dómsmálaráðherra ræður nefndinni starfslið og getur einnig
falið sjálfstætt starfandi aðila að sjá um skrifstofuhald fyrir nefndina.
Nefndinni er heimilt án atbeina ráðuneytisins að kveðja
lækna og aðra sérfróða menn til starfa í þágu nefndarinnar, hvort heldur er við
meðferð einstaks máls eða um tiltekinn tíma. Örorkunefnd og starfsmönnum hennar
ber að gæta fyllstu þagmælsku um öll einkamál
sem þeir komast að í starfi eða tengslum við það.
8. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 10. gr.
skaðabótalaga, nr. 50 19. maí 1993, öðlast þegar gildi.
Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið, 16. ágúst 1993.
Þorsteinn
Pálsson.
Þorsteinn Geirsson.
Word útgáfa af reglugerð