REGLUGERÐ
um vörugjöld af
eldsneyti.
Almennt vörugjald
af bensíni.
1. gr.
Greiða skal í ríkissjóð 90% vörugjald af bensíni.
2. gr.
Af vörugjaldi skv. 1. gr. skulu 65% greidd við tollafgreiðslu
en 35% innan tveggja mánaða, talið frá komudegi flutningsfars.
Sérstakt
vörugjald af bensíni.
3. gr.
Auk vörugjalds skv. 1. gr. skal greiða sérstakt vörugjald -
bensíngjald - af bensíni. Af blýlausu bensíni, skal greiða gjald sem nemur
22,40 kr. af hverjum lítra. Af öðru bensíni skal greiða gjald sem nemur 23,80
kr. af hverjum lítra.
Eigi skal greiða bensíngjald af flugvélabensíni, enda
flokkist það í tollskrárnúmer 2710.0011 og sönnur séu færðar á að það hafi
verið notað eða verði notað á flugvélar.
4. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. skal heimilt að gera bensíngjald
upp miðað við sölu birgða. Frestur til greiðslu gjaldsins til innheimtumanns
ríkissjóðs skal þó aldrei vera lengri en svo að það sé greitt áður en einn
mánuður er liðinn frá lokum sölumánaðar.
5. gr.
Að því leyti sem eigi er kveðið á um gjaldskyldu,
álagningu, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, samræmingu gjalda, eftirlit,
innheimtu, vörslusviptingu, veð. uppboð, sektir, viðurlög, refsingar og aðra
framkvæmd varðandi gjöld skv. reglugerð þessari skulu gilda ákvæði tollalaga,
nr. 55/1987, með síðari breytingum, laga nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari
breytingum, og laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.,
eftir því sem við getur átt, svo og reglugerða og annarra fyrirmæla settra
samkvæmt þeim.
Gildistaka.
6. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr.
29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., gildir frá 1. júlí 1993 og
tekur til innflutnings á bensíni sem tekið er til tollafgreiðslu frá og með
þeim degi.
Ákvæði til
bráðabirgða.
Hver sá, sem á eða hefur til umráða gjaldskyldar birgðir af
bensíni hinn 1. júlí 1993 skal ótilkvaddur tilkynna það innheimtumanni fyrir
10. júlí 1993. Eigandi eða umráðamaður þess skal ótilkvaddur aðstoða við að
kanna birgðir óski innheimtumaður slíkrar aðstoðar.
Innheimtumaður getur krafist upplýsinga frá innflytjendum
bensíns og bensínsölum um sölu samkvæmt verslunarbókum til viðskiptamanna er
fram fór fyrir 1. júlí 1993.
Fjármálaráðuneytið,
29. júní 1993.
F. h. r.
Jón H.
Steingrímsson.
Snorri Olsen.
Word útgáfa af reglugerð