REGLUGERÐ
um rafföng til
notkunar á sprengihættustöðum
með eða án
tiltekinnar varnartilhögunar.
1. gr.
Gildissvið.
1.1. Þessi reglugerð á við
rafföng hæf til notkunar á sprengihættustöðum, þar með talin rafföng til
notkunar neðanjarðar þar sem getur myndast eldfimt gas sem hætta kann að stafa
af.
1.2 Reglugerðin tekur einnig
til raffanga sem hafa varnartilhögun af einni eða fleiri af eftirtöldum gerðum:
1) olíufylling "o",
2) yfirþrýstingsumlykja "p",
3) sallafylling "q",
4) sprengitraust umlykja "d",
5) aukið öryggi "e",
6) sjálftrygg útfærsla "i".
7) innsteypt útfærsla "m".
1.3 Við uppsetningu og
notkun raffanga skal fylja ákvæðum reglugerðar um raforkuvirki nr. 264/1971 með
síðari breytingum.
2. gr
Skilgreiningar.
Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi orð merkingu sem hér
segir:
Raffang: Sérhver hluti af
raflögn eða öðrum rafbúnaði.
Rafföng í hópi I: Rafföng
til notkunar í námum, þar sem sprengifimt gas getur verið til staðar.
Rafföng í hópi II: Rafföng
til notkunar á öðrum stöðum en í námum, þar sem sprengifimt gas getur verið til
staðar.
Samhæfðir staðlar: Staðlar
sem samdir hafa verið með hliðsjón af grunnkröfum og samþykktir af
Staðlasamtökum Evrópu (CEN) eða Rafstaðlasamtökum Evrópu (CENELEC), í umboði EB
og EFTA.
Samræmisvottorð: Vottorð um
að raffang uppfylli ákvæði samhæfðra staðla
Samþykktaraðili: Þar til bær
aðili með heimild stjórnvalda til að gerðarprófa raffang og votta öryggi þess.
Skoðunarvottorð: Vottorð um
að prófun raffangs hafi leitt í ljós að það uppfylli öryggiskröfur.
Sprengihættusvæði: Rými þar
sem hættulegt magn eldfimra efna getur komið fyrir sem gas, gufa, þoka eða ryk
sem sameinast getur lofti þannig að sprengifim blanda myndist.
Tilnefndur aðili: Prófunar-,
vottunar- eða eftirlitsaðili sem er óháður aðilum að því er varðar viðkomandi
viðfangsefni og sem stjórnvöld hafa tilnefnt til að annast samræmismat.
Tækniákvæði: Skjal, þar sem
settar eru tæknilegar kröfur, sem vara, ferli eða þjónusta þurfa að uppfylla.
3. gr.
Markaðssetning.
3.1 Óheimilt er að banna af
öryggisástæðum vegna hættu á að kvikni í eldfimu gasi sölu, frjálsan flutning
eða notkun í tilætluðum tilgangi á raffangi sem getið er í 1. gr., ef:
1) samræmi við samhæfða staðla1* er vottað með
samræmisvottorði sem gefið er út með þeim skilyrðum sem kveðið er á um í 4. gr.
og staðfest með áfestu einkennismerki eins og kveðið er á um í 7. gr., eða
2) það víkur frá samhæfðum stöðlum vegna þess að engin
ákvæði voru í slíkum stöðlum um hönnun þess og framleiðslu, en staðfesting og
prófun hefur leitt í ljós að öryggi þess er að minnsta kosti jafngilt því sem
gert er ráð fyrir í viðkomandi stöðlum, og þetta er vottað með skoðunarvottorði
sem gefið er út samkvæmt þeim skilyrðum sem sett eru í 5. gr., og staðfest með
ásetningu einkennismerkis sem kveðið er á um í 7. gr.
3.2 Í reglugerð þessari
merkir "notkun í tilætluðum tilgangi" notkun raffangsins, eins og
kveðið er á um í samhæfðum framleiðslustöðlum og skráð í samræmisvottorð eða
skoðunarvottorð, á stöðum þar sem hætta er á að eldfimt gas myndi sprengifima
loftblöndu.
3.3 Ef skilyrði um
uppsetningu og notkun heyra ekki undir önnur ákvæði Evrópsks efnahagssvæðis
skulu þau áfram heyra undir íslensk lög og stjórnsýslufyrirmæli.
4. gr.
Samræmisvottorð.
4.1. Samræmisvottorðið sem
getið er um í 1. tölul. 1. mgr. 3. gr. skal gefið út af tilnefndum aðila sem
skal votta að viðkomandi gerð raffangs sé í samræmi við samhæfða staðla.
4.2 Tilnefndur aðili sem
gefur út samræmisvottorðið má afturkalla það ef hann telur að ekki hefði átt að
gefa það út eða þau skilyrði sem tilnefndi aðilinn hefur sett hafa ekki verið
uppfyllt. Enn fremur má hann afturkalla samræmisvottorðið ef framleiðandi setur
á markað rafföng sem ekki eru í samræmi við það gerðareintak sem
samræmisvottorðið var gefið út fyrir.
Tilnefndi aðilinn skal senda afrit af afturköllunarskjalinu
til eftirlitsstofnunar EFTA og aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins sem
skulu sjá um að senda það öðrum tilnefndum aðilum.
Ástæður fyrir afturköllun skulu nákvæmlega tilgreindar.
Tilkynning um afturköllunina skal birt í samræmi við 4. mgr. 4 gr.
Afturköllun eða synjun um útgáfu samræmisvottorðs skal
þegar í stað tilkynnt hlutaðeigandi aðila með tilvísun til þeirra úrræða sem
honum standa til boða samkvæmt gildandi lögum í aðildarríkjum Evrópska
efnahagssvæðisins og þess frests sem gefinn er til að beita þessum úrræðum.
4.3 Öll skjöl sem notuð eru
við vottun raffanga verða að geymast hjá útgefanda og skal, ef nauðsyn krefur,
afhenda eftirlitsstofnun EFTA og hinum aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins
vegna sérstakra athugana er varða öryggi. Farið skal með skjöl þessi sem
trúnaðarmál.
_______________________
* Í skilningi þessarar reglugerðar eru hinir samhæfðu
staðlar þeir sem taldir eru upp í viðauka I og breytt samkvæmt viðauka II.
4.4 Viðeigandi útdrættir úr
þessum samræmisvottorðum verða birtir í EES deild Stjórnartíðinda
Evrópubandalagsins.
5. gr.
Skoðunarvottorð.
5.1 Skoðunarvottorðið sem
getið er um í gr. 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. skal gefið út af tilnefndum aðila
eða samþykktri prófunarstofu, hér eftir nefndir samþykktaraðilar, sem skal
votta að gerð raffangsins hafi að minnsta kosti jafngilt öryggi til að bera og
raffang sem er í samræmi við hina samhæfðu staðla.
5.2 Áður en hlutaðeigandi
samþykktaraðili gefur út skoðunarvottorð skal, að frumkvæði hans, senda skjölin
sem notuð hafa verið við vottun raffangsins, það er tækniákvæði þess,
prófunarskýrslur samþykktaraðila og drög að skoðunarvottorði til
eftirlitsstofnunar EFTA og til hinna aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins
sem skulu sjá um að senda þau til þeirra aðila sem þau hafa samþykkt. Þessum
aðildarríkjum er heimilt, innan fjögurra mánaða frá því að þau fá
upplýsingarnar, að leggja fram mótmæli við samþykkt raffangsins.
5.3 Afrit af
skoðunarvottorðinu skal senda eftirlitsstofnun EFTA og aðildarríkjum Evrópska
efnahagssvæðisins innan mánaðar frá útgáfu þess. Aðildarríkin skulu sjá um að
senda það þeim aðilum sem þau hafa samþykkt. Samþykktaraðili sem hefur
sannreynt og prófað raffangið skal gera lokaskýrslu. Hún skal vera tiltæk
aðildarríkjunum.
5.4 Samþykktaraðili sem
gefur út skoðunarvottorðið má afturkalla það ef hann telur að ekki hefði átt að
gefa það út eða ef settum skilyrðum hefur ekki verið fullnægt. Enn fremur má
hann afturkalla vottorðið ef framleiðandinn setur á markað rafföng sem ekki eru
í samræmi við það gerðareintak sem skoðunarvottorðið var gefið út fyrir.
Samþykktaraðilinn skal senda afrit af afturköllunarskjalinu
til eftirlitsstofnunar EFTA og allra aðildarríkjanna sem sjá um að senda það
hinum samþykktu aðilum.
Ástæður fyrir afturköllun skulu nákvæmlega tilgreindar.
Tilkynning um afturköllunina skal birt í samræmi við 6. mgr.
Afturköllun eða synjun um útgáfu skoðunarvottorðs skal
þegar í stað tilkynnt hlutaðeigandi aðila með tilvísun til þeirra úrræða sem
honum standa til boða samkvæmt gildandi lögum í aðildarríkjum Evrópska
efnahagssvæðisins og þess frests sem gefinn er til að beita þessum úrræðum.
5.5 Öll skjöl sem notuð eru
við vottun raffanga skulu vera í vörslu útgefanda og, ef nauðsyn krefur, skulu
afhent eftirlitsstofnun EFTA og hinum aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins
vegna sérstakra athugana er varða öryggi. Farið skal með skjöl þessi sem
trúnaðarmál.
5.6 Viðeigandi útdrættir úr
þessum skoðunarvottorðum verða birtir í EES-deild Stjórnartíðinda
Evrópubandalagsins.
6. gr.
Afrit samræmis-
og skoðunarvottorða.
Afrit samræmisvottorða sbr. 3. mgr. 4. gr. og
skoðunarvottorða sbr. 5. mgr. 5 gr. skulu send handhafa vottorðsins ef hann
óskar þess. Honum skal frjálst að nota þau svo sem hann kýs.
7. gr.
Einkennismerki.
7.1 Einkennismerki sem
framleiðandi setur á rafföng táknar að búnaðurinn samræmist þeirri gerð sem
hlotið hefur samræmis- eða skoðunarvottorð og fengið almenna staðfestingu og
staðist prófanir eins og gert er ráð fyrir í samhæfðum stöðlum þegar um er að
ræða útgáfu samræmisvottorðs eða vísað er til þess í sjálfu skoðunarvottorðinu.
Fyrirmynd að einkennismerkinu er sýnd í lið 1 í viðauka
III. Merkið skal sett á þannig að það sé sýnilegt, læsilegt og þolið.
7.2 Gera skal viðeigandi
ráðstafanir til að tryggja að framleiðandinn setji því aðeins einkennismerki á
að hann hafi undir höndum viðeigandi samræmis- eða skoðunarvottorð. Einnig skal
gera allar viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að framleiðandinn
setji á búnað sem ekki hefur fengið samræmis- eða skoðunarvottorð merki eða
áletranir sem hætta er á að villast megi á fyrir umrætt einkennismerki.
7.3 Í samræmis- eða
skoðunarvottorði mega vera fyrirmæli um að raffangi skuli fylgja leiðbeiningar
sem útskýra sérstök notkunarskilyrði þess.
7.4 Hafi skoðunarvottorð
samkvæmt 5. gr. verið gefið út fyrir gerð raffangs sem ekki er í samræmi við
samhæfðu staðlana verður auk einkennismerkisins að vera á því merkingin sem
tilgreind er í lið 2 í viðauka III.
7.5 Fyrirmyndin að samræmisvottorðinu
er í viðauka IV.
8. gr.
Eftirlit.
Gera skal allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja
fullnægjandi eftirlit með framleiðslu raffanga sem heyra undir þessa reglugerð.
9.gr.
Bann við sölu.
Ef komist verður að þeirri niðurstöðu, á grundvelli
ítarlegrar rannsóknar, að raffang sé hættulegt, enda þótt það sé í samræmi við
gerð raffangs sem hlotið hefur samræmisvottorð eða skoðunarvottorð er heimilt
að banna tímabundið sölu þess eða gera hana háða sérstökum skilyrðum. Það skal
þegar í stað tilkynna þetta hinum aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og
eftirlitsstofnun EFTA og tilgreina ástæðurnar fyrir ákvörðuninni.
10. gr.
Skráning aðila.
Rafmagnseftirlit ríkisins hefur skrá yfir þá aðila, svo og
póstföng þeirra sem samþykktir hafa verið af aðildarríkjum hins Evrópska
efnahagssvæðis til að sannreyna og prófa rafföng og/eða gefa út samræmisvottorð
og skoðunarvottorð, sbr. 4. og 5.gr.
11. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um
Rafmagnseftirlit ríkisins nr. 60/1979 og með hliðsjón af ákvæði samnings um
Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í X. kafla II. viðauka, tilskipun
ráðsins 82/130/EBE frá 15. febrúar 1982 um samræmingu laga aðildarríkja EES um
rafföng til notkunar á sprengihættustöðum í námum þar sem eldfimt gas getur
myndast, tilskipun ráðsins 76/117/EBE frá 18. desember 1975 um samræmingu laga
aðildarríkja EES um rafföng til notkunar á sprengihættustöðum og tilskipun
ráðsins 79/196/EBE frá 6. febrúar 1979 um samræmingu laga aðildarríkja EES um
rafföng með tiltekna varnartilhögun til notkunar á sprengihættustöðum, með þeim
breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og
öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Iðnaðarráðuneytið,
28. febrúar 1994.
F.h.r.
Þorkell Helgason.
Sveinn Þorgrímsson.
VIÐAUKI I.
SAMHÆFÐIR
STAÐLAR.
Samhæfðu staðlarnir, sem búnaður verður að samræmast eftir
því hvaða varnartilhögun er beitt, eru þeir Evrópustaðlar sem taldir eru upp í
eftirfarandi töflu.
Vísa skal til vottorða sem gefin eru út samkvæmt þessari
reglugerð sem "vottorða af gerð C". Bókstafurinn C skal koma fremst í
raðnúmeri slíkra vottorða.
Evrópustaðlar
|
Númer
|
Titill
|
Útgáfa
|
Dagsetning
|
|
EN 50014
EN 50015
EN 50016
EN 50017
EN 50018
EN 50019
EN 50020
EN 50028
|
Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum:
almennar kröfur
Breyting 1
Breyting 2
Breytingar 3 og 4
Breyting 5
Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum:
olíufylling "o"
Breyting 1
Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum:
yfirþrýstingsumlykja "p"
Breyting 1
Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum:
sallafylling "q"
Breyting 1
Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum:
sprengitraust umlykja "d"
Breyting 1
Breyting 2
Breyting 3
Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum:
aukið öryggi "e"
Breyting 1
Breyting 2
Breyting 3
Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum:
sjálftrygg útfærsla "i"
Breyting 1
Breyting 2
Rafföng til notkunar á sprengihættustöðum:
innsteypt útfærsla "m"
|
1
1
1
1
1
1
1
1
|
Mars 1977
Júlí 1979
Júní 1982
Desember 1982
Febrúar 1986
Mars 1977
Júlí 1979
Mars 1977
Júlí 1979
Mars 1977
Júlí 1979
Mars 1977
Júlí 1979
Desember 1982
Nóvember 1985
Mars 1977
Júlí 1979
September 1983
Desember 1985
Mars 1977
Júlí 1979
Desember 1985
Febrúar 1987"
|
VIÐAUKI II.
Breytingar og viðbætur við Evrópustaðlana sem taldir eru
upp í viðauka I.
1. viðbætir.
RAFFÖNG Í HÓPI I TIL
NOTKUNAR Á SPRENGIHÆTTUSTÖÐUM
ALMENNAR KRÖFUR
Í stað textans í 6.3.1 í 3. breytingu (desember 1982) á
Evrópustaðli 50 014 komi:
"6.3.1 Rafföng í hópi I
Umlykjur úr plastefnum sem hafa yfirborð með ofanvarpi í
einhverja átt sem er meira en 100 cm2 eða sem bera málmhluta með
meiri rýmd til jarðar en 3 pF í versta tilviki, skulu þannig hannaðar að við
eðlilegar aðstæður við notkun, viðhald og hreinsun sé ekki hætta á íkveikju
vegna stöðurafmagns.
Þessari kröfu skal fullnægt:
- með viðeigandi vali á efni: einangrunarviðnám þess mælt
samkvæmt þeirri aðferð sem lýst er í 22.4.7.8 í þessum Evrópustaðli skal ekki
vera meira en:
- 1 G W við 23 ± 2°C og 50 ± 5% rakastig,
eða
- 100 G W við ystu mörk hita- og rakastigs sem gefið er upp sem þjónustusvið
fyrir raffangið; merkið "X" skal þá sett á eftir tilvísuninni
til vottorðsins eins og segir í 26.2.9;
- eða með stærð, lögun, fyrirkomulagi eða öðrum
varnaraðgerðum. Það að hættulegar stöðurafmagnshleðslur eigi sér ekki stað skal
sannreynt með raunverulegum íkveikjuprófunum á loft-metanblöndu með 8,5 ± 0,5%
metan.
Verði ekki öll hætta á íkveikju útilokuð í hönnuninni skal
gefa til kynna á viðvörunarspjaldi þær öryggisráðstafanir sem þarf að gera við
notkun."
2. viðbætir.
RAFFÖNG Í HÓPI I
FYRIR SPRENGIHÆTTUSTAÐI
SJÁLFTRYGG ÚTFÆRSLA
"i"
RAFKERFI MEÐ
SJÁLFTRYGGRI ÚTFÆRSLU
Athugasemd: Í námum þar sem getur myndast eldfimt gas er í
Sambandslýðveldinu Þýskalandi notað orðið "Anlage" í stað
"System".
1. Umfang.
1.1. Þessi viðauki inniheldur sérkröfur um uppbyggingu og
prófun rafkerfa með sjálftryggri útfærslu, þegar allt kerfið eða hlutar þess
eru ætlaðir til uppsetningar á sprengihættustöðum í námum þar sem myndast getur
eldfimt gas sem tryggja skulu að slík rafkerfi valdi ekki sprengingu í umhverfi
sínu.
1.2. Með þessum viðauka er bætt við Evrópustaðal EN 50 020
"Sjálftrygg útfærsla "i" (fyrsta útgáfa, mars 1977) þeim kröfum
sem eiga við uppbyggingu og prófun raffanga með sjálftryggri útfærslu og
tengdra raffanga.
1.3. Þessi viðauki kemur ekki í stað uppsetningarreglna
fyrir rafföng með sjálftryggri útfærslu, rafföng tengd þeim og rafkerfi með
sjálftryggri útfærslu.
2. Skilgreiningar.
2.1. Eftirfarandi skilgreiningar sem sérstaklega eiga við
rafkerfi með sjálftryggri útfærslu gilda í þessum viðauka. Þau eru viðbót við
þær skilgreiningar sem eru í Evrópustaðli EN 50 014 "Almennar kröfur"
og EN 50 020 "Sjálftrygg útfærsla "i".
2.2. Rafkerfi með sjálftryggri útfærslu.
Samstæða einstakra raffanga sem skilgreind er í skjalfestri
kerfislýsingu þar sem tengirásir eða hlutar þeirra sem ætlaðir eru til notkunar
á sprengihættustöðum eru rásir með sjálftryggri útfærslu og uppfylla kröfur
þessa viðauka.
2.3. Vottað rafkerfi með sjálftryggri útfærslu.
Rafkerfi samkvæmt 2.2 sem prófunarstöðin hefur gefið út
kerfisvottorð um og vottað að umrædd gerð rafkerfis sé í samræmi við þennan
viðauka.
Athugasemd 1: Ekki er
nauðsynlegt að einstök rafföng í rafkerfi með sjálftryggri útfærslu séu vottuð
sérstaklega en þau þurfa að vera auðþekkjanleg.
Athugasemd 2: Að svo miklu
leyti sem reglugerðir viðkomandi lands um uppsetningu gera það mögulegt má
setja upp án frekari vottorða rafkerfi sem eru í samræmi við 2.2, ef vitneskja
um rafrænar kennistærðir hluta í vottuðum rafföngum með sjálftryggri útfærslu,
vottuðum rafföngum tengdum þeim, rafföngum sem ekki eru vottuð en í samræmi við
1.3 í Evrópustaðli EN 50 014 ",Almennar kröfur" og vitneskja um
rafræna og eðlisfræðilega eiginleika íhlutanna og tengitauganna leyfir að dregin
sé sú ótvíræða ályktun að sjálftrygg útfærsla sé fyrir hendi.
2.4. Aukahlutir.
Rafföng sem eingöngu hafa íhluti til að tengja eða tengja
og rjúfa rásir með sjálftryggri útfærslu og sem ekki hafa áhrif á sjálftrygga
útfærslu kerfisins, svo sem tengidósir, greinikassar, klær og tenglar og líkir
hlutir, rofar o.s.frv.
3. Flokkun rafkerfa með sjálftryggri útfærslu.
3.1. Rafkerfi með sjálftryggri útfærslu eða hluta þeirra
skal flokka í annan af tveimur flokkum: "ia" eða "ib".
Kröfur í þessum viðauka eiga við báða flokkana nema annað sé tekið fram.
Athugasemd: Rafkerfi með
sjálftryggri útfærslu eða hlutar þeirra kunna að vera í öðrum flokkum en þau
rafföng með sjálftryggri útfærslu og rafföng tengd þeim sem eru í kerfinu eða
hlutum þess. Einnig geta mismunandi hlutar rafkerfis með sjálftryggri útfærslu
verið í mismunandi flokkum.
3.2. Flokkur "ia ".
Rafkerfi með sjálftryggri útfærslu eða hlutar þeirra eru í
flokki "ia" ef þau samræmast kröfum um rafföng með sjálftryggri
útfærslu í flokki "ia" (sjá 4.1 í Evrópustaðli EN 50 020
"Sjálftrygg útfærsla"), nema að líta ber á rafkerfi með sjálftryggri
útfærslu í heild sem eitt einstakt raffang.
3.3. Flokkur " ib ".
Rafkerfi með sjálftryggri útfærslu eða hlutar þeirra eru í
flokki "ib" ef þau samræmast kröfum um rafföng með sjálftryggri
útfærslu í flokki "ib" (sjá 4.1 í Evrópustaðli EN 50 020
"Sjálftrygg útfærsla"), nema að líta ber á rafkerfi með sjálftryggri
útfærslu í heild sem eitt einstakt raffang.
4. Tengitaugar í rafkerfi með sjálftryggri útfærslu.
4.1. Rafrænar stærðir og alla eiginleika tengitauga sem
ætlaðar eru fyrir rafkerfi með sjálftryggri útfærslu skal, að svo miklu leyti
sem sjálftrygg útfærsla er háð þeim, tilgreina í vottunarskjölum fyrir umrætt
rafkerfi.
4.2. Ef fjölþættur strengur inniheldur tengingar sem eru
hluti af fleiri en einu kerfi með sjálftryggri útfærslu skal strengurinn
fullnægja eftirtöldum kröfum:
4.2.1. Geislalæg þykkt einangrunar skal hæfa þvermáli
leiðarans. Sé um polýeþýlen að ræða, skal geislalæg lágmarksþykkt vera 0,2 mm.
4.2.2. Áður en fjölþættur strengur er fluttur úr verksmiðju
framleiðandans skal gera á honum þær einangrunarprófanir sem tilgreindar eru
annaðhvort í 4.2.2.1 eða 4.2.2.2. Árangur þessara prófana skal vottaður með
prófunarvottorði sem gefið er út af
framleiðanda strengsins.
4.2.2.1. Áður en hann er settur í strenginn skal hver
þáttur prófaður með spennu með raungildi (rms) 3 000 V + (2 000 sinnum
geislalæg þykkt einangrunarinnar í mm) V. Eftir samsetningu er strengurinn:
- í fyrsta lagi prófaður með spennu með raungildi (rms) 500
V milli allra brynvarna eða hlífa strengsins rafrænt samtengdra og knippis
allra kjarna strengsins rafrænt samtengdra,
- í öðru lagi prófaður með spennu að raungildi (rms) 1 000
V milli knippis af öðrum helmingi kjarna strengsins og knippis af hinum
helmingi þeirra.
4.2.2.2. Eða strengurinn er eftir samsetningu:
- í fyrsta lagi prófaður með spennu að raungildi (rms) 1
000 V milli allra brynvarna eða hlífa strengsins rafrænt tengdra og knippis af
öllum kjörnum strengsins rafrænt tengdum og,
- í öðru lagi prófaður með spennu að raungildi 2 000 V
milli hvers kjarna strengsins fyrir sig og knippis af öllum hinum kjörnunum
rafrænt tengdum.
4.2.3. Prófanirnar sem mælt er fyrir um í 4.2.2 skal gera
með riðspennu sem einkanlega hefur sínuslaga bylgjuform og tíðni milli 48 Hz og
62 Hz og tekin er frá spenni sem hefur viðeigandi afl þegar tekið er tillit til
rýmdar strengsins. Þegar gerðar eru einangrunarprófanir á samsettum strengjum
skal auka spennuna stöðugt upp að hinu tiltekna gildi á ekki skemmri tíma en 10
sek. og halda henni síðan í minnst 60 sek.
Framleiðandi strengsins gerir prófanirnar.
4.3. Ekki skal taka tillit til neinna bilana milli kjarna í
fjölþættum streng ef annarri af tveim eftirtöldum kröfum er fullnægt:
4.3.1. Strengurinn er í samræmi við 4.2 og hver einstök rás
með sjálftryggri útfærslu er umlukt leiðandi hlíf sem hylur minnst 60% hennar.
Athugasemd: Ef tengja á
hlífina við jörð eða umlykju er það tekið fram í reglum um uppsetningu.
4.3.2. Strengurinn er, í samræmi við 4.2, vel varinn gegn
skemmdum og hver rás með sjálftryggri útfærslu innan strengsins hefur, við
eðlilega notkun, toppspennu sem er 60 volt eða lægri.
4.4. Þegar fjölþættur strengur er í samræmi við 4.2 en ekki
4.3 og í honum eru aðeins rásir með sjálftryggri útfærslu sem eru hlutar af
einu sjálftryggu rafkerfi, skal taka tillit til bilana milli allt að fjögurra
kjarna í strengnum auk þess að beita annaðhvort 3.2 eða 3.3.
4.5. Þegar fjölþættur strengur er í samræmi við 4.2 en ekki
4.3 og í honum eru rásir með sjálftryggri útfærslu sem eru hlutar af mismunandi
sjálftryggum rafkerfum, skal hver rás með sjálftryggri útfærslu í strengnum
hafa öryggisstuðul sem er minnst fjórum sinnum hærri en það sem krafist er í
3.2 eða 3.3.
4.6. Þegar fjölþættur strengur er ekki í samræmi við 4.2 og
4.3 skal taka tillit til allra bilana milli kjarna í strengnum til viðbótar því
að beita 3.2 eða 3.3.
4.7. Í vottunarskjölum fyrir rafkerfi með sjálftryggri
útfærslu skal tilgreina notkunarskilyrði sem leiða af því að liðum 4.3 til 4.6.
er beitt.
5. Aukahlutir notaðir í rafkerfum með sjálftryggri
útfærslu.
Þeir aukahlutir sem taldir eru upp í vottunarskjölunum sem
hlutar af rafkerfum með sjálftryggri útfærslu skulu vera í samræmi við:
- atriði 6 og 7 í Evrópustaðli EN 50 014 "Almennar
kröfur",
- atriði 5 og 10.3 í Evrópustaðli EN 50 020
"Sjálftrygg útfærsla "i".
Þeir skulu að minnsta kosti vera merktir með nafni
framleiðanda eða skráðu vörumerki hans.
Athugasemd: Notkun óskráðra
aukahluta er háð reglum um uppsetningu.
6. Gerðarprófanir.
Rafkerfi með sjálftryggri útfærslu skulu gerðarprófuð í
samræmi við gerðarprófunarkröfur í atriði 9 í Evrópustaðli EN 50 020
"Sjálftrygg útfærsla "i" en taka skal tillit til atriðis 4 í
þessum viðauka.
7. Merking rafkerfa með
sjálftryggri útfærslu.
Handhafi vottorðs um vottað rafkerfi með sjálftryggri
útfærslu skal setja merki um það á minnst eitt af þeim rafföngum sem komið er
fyrir á mikilvægum stöðum. Merkingin skal innihalda lágmarksmerkingu samkvæmt
26.5 í Evrópustaðli EN 50 014 "Almennar kröfur"og bókstafina
"SYST".
VIÐAUKI III.
RAFFÖNG TIL
NOTKUNAR Á SPRENGIHÆTTUSTÖÐUM.
1. EINKENNISMERKI EVRÓPUBANDALAGSINS SEM GILDIR Á HINU
EVRÓPSKA EFNAHAGSSVÆÐI

2. MERKING RAFFANGA Í HÓPI I SEM HAFA SKOÐUNARVOTTORÐ
Ef raffang í hópi I, af gerð sem ekki er í samræmi við
samhæfðu staðlana, hefur fengið skoðunarvottorð, eins og gert er ráð fyrir í 5.
gr., skal bæta við einkennismerki að minnsta kosti því sem hér fer á eftir:
1. Merkið "S" sem táknar að raffangið henti fyrir
gasmengaðar námur og hafi skoðunarvottorð. Merkið skal koma strax aftan við
einkennismerkið eins og sýnt er hér að neðan.
2. Síðustu tvær tölurnar í útgáfuári skoðunarvottorðsins.
3. Raðnúmer skoðunarvottorðsins fyrir það ár.
4. Nafn eða merki aðilans sem samþykktur hefur verið til að
gefa út vottorðin.
5. Nafn framleiðandans eða skráð vörumerki hans.
6. Gerðarauðkenni framleiðandans.
7. Raðnúmer framleiðandans.
8. Telji prófunarstofan nauðsynlegt að setja sérstök
skilyrði fyrir öruggri notkun skal setja merkið
"c " á eftir tilvísuninni til skoðunarvottorðsins.
9. Allar merkingar sem krafist er í byggingarstöðlum fyrir
raffangið.
10. Allar viðbótarmerkingar sem aðilinn sem samþykktur
hefur verið til að gefa út vottorðin telur nauðsynlegar.

VIÐAUKI IV
|

|
Svæði fyrir nafn og póstfang, síma- og fjarrita- eða
myndritanúmer þess aðila sem samþykktur er til að gefa út vottorðin.
|
RAFFÖNG EÐA RAFKERFI FYRIR NÁMUR ÞAR SEM ELDFIMT GAS GETUR
MYNDAST
1. SAMRÆMISVOTTORÐ.
2. Nafn eða merki aðilans sem samþykktur er til að gefa út
vottorðin - tveir síðustu tölustafir í ártalinu þegar vottorðið er gefið út -
raðnúmer vottorðsins - ef við á merkið "X".
3. Þetta vottorð er gefið út fyrir eftirtalið:
- auðkenni hins vottaða raffangs eða rafkerfis,
- vottuð gerð/vottaðar gerðir.
4. a) Framleitt af: nafn og póstfang framleiðanda.
b) Lagt fram til vottunar af: nafn og póstfang umsækjanda.
5. Raffangið eða rafkerfið og öll leyfileg afbrigði þess
eru tilgreind í viðauka við þetta vottorð og lýst í skjölum sem þar er vísað
til.
6. Nafn eða merki, aðili samþykktur í samræmi við 10. gr.
reglugerðar þessarar:
- vottar að þetta raffang hefur reynst vera í samræmi við
eftirtalda samhæfða evrópska staðla:
(Teljið upp alla evrópska staðla sem um er að ræða og
útgáfuár þeirra og þá landsstaðla sem um er að ræða. Nefnið, ef við á, þann
viðauka sem um er að ræða í tilskipun ráðsins sem áður er nefnd.)
og hefur staðist gerðarstaðfestingu og prófunarkröfur
þessara staðla.
- vottar að um þessar staðfestingar og prófanir hefur verið
gerð prófunarskýrsla sem er trúnaðarmál.
(Gefið upp númer prófunarskýrslu ef við á.)
7. Kóði raffangsins er: EEx, merki fyrir gerðir) varna(r)
I.
8. Þetta vottorð má aðeins afrita í heild sinni og óbreytt.
Síða. /.....
Talan vinstra megin við skástrikið táknar blaðsíðunúmerið,
talan hægra megin táknar fjölda blaðsíðna í vottorðinu að viðauka meðtöldum.
9. Samræmisvottorð - endurtakið atriði 2 hér að ofan.
10. Með því að merkja þau rafföng er hann lætur í té vottar
framleiðandinn á eigin ábyrgð að þau séu í samræmi við þá skriflegu lýsingu sem
getið er í viðaukanum við þetta vottorð og hafi staðist venjulegar
staðfestingar og prófanir sem krafist er í samræmdu evrópsku stöðlunum sem
getið er um í atriði 6 hér að ofan.
11. Heimilt er að þau rafföng sem látin eru í té beri einkennismerki
bandalagsins sem skilgreint er í viðauka III við þessa reglugerð. Þetta merki
er sýnt á fyrstu blaðsíðu þessa vottorðs; það skal sett á rafföngin þannig að
það sé sýnilegt, læsilegt og þolið.
12. Sé merkið "c " sett á eftir númeri
vottorðsins gefur það til kynna að um raffangið gildi þau sérstöku skilyrði
fyrir öruggri notkun sem tilgreind eru í viðauka við þetta vottorð.
13. Staður og dagsetning (ár, mánuður og dagur) útgáfu
vottorðsins.
14. Forstöðumaður vottunaraðila (undirskrift).
Viðbætir við
viðauka IV
A1. - Auðkenni hinna vottuðu raffanga eða rafkerfa.
- Vottuð(vottaðar) gerð(gerðir).
A2. Lýsing vottaðra raffanga eða rafkerfa.
........................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................
A3. Skjalfest lýsing.
........................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................
A4. Sérstakar kennistærðir fyrir gerðir) varna(r) sem um
er að ræða (1).
........................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................
A5. Merking hinna vottuðu raffanga.
Merkingin skal vera sýnileg, læsileg og þolin; á henni
skal koma fram eftirtalið:
1. Vísun til 26 í Evrópustaðli EN 50 014 "Almennar
kröfur" og, ef við á, hinna sérstöku Evrópustaðla fyrir þá varnargerð sem
um er að ræða. Ef vottorðið nær yfir meira en eina vottaða gerð skal hver gerð
tiltekin að fullu. Milli gerða í upptalningu skal skjóta inn "eða".
2. Sú merking sem venjulega er krafist í byggingastöðlum
fyrir það raffang sem um er að ræða.
Vísun til 26.2.11 í Evrópustaðli EN 50 014 "Almennar
kröfur".
A6. Almennar staðfestingar og prófanir.
Gefið til kynna hvaða staðfestingar og prófanir skal gera á
hverju raffangi fyrir afhendingu samkvæmt kröfum Evrópustaðals EN 50 014
"Almennar kröfur" og hinna sérstöku Evrópustaðla fyrir þá gerð varnar
sem um er að ræða. Vísað skal til þessara krafna.
Ef þetta á ekki við, ritið "Engar".
A7. Sérstök skilyrði fyrir öruggri notkun
Gefið skilyrðin til kynna ef merkið "c " er sett
á eftir númeri vottorðsins. Ef það á ekki við, ritið "Engin".
Word útgáfa af reglugerð