|
|
REGLUGERÐASAFN
Velkomin í reglugerðasafnið
Hér er að finna heildarsafn gildandi reglugerða sem uppfært er reglulega. Við opnun safnsins 13. júní 2001 hafði það að geyma u.þ.b. 2200 reglugerðir að breytingum meðtöldum.
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda.
Safnið er uppfært reglulega. Þá er nýjum reglugerðum bætt í safnið, þeim sem falla úr gildi er haldið til haga og verður hægt að skoða þær sérstaklega. Breytingareglugerðum er raðað með þeim reglugerðum sem þær breyta, en efni þeirra er ekki fellt inn í stofnreglugerðina. Athugið að reglugerðir með breytingum er einungis hægt að skoða í sjónarhorninu: "Reglugerðir með breytingum".
Í safninu er gildandi reglugerðum raðað í kafla eftir efnisflokkum á sambærilegan hátt og lögum í lagasafni og í númeraröð.
Þá er hægt að leita í reglugerðum eftir númeri og nafni reglugerðar, eftir ráðuneyti, dagsetningu og útgáfuári. Einnig er unnt að framkvæma orðaleit í safninu.
Í reglugerðasafninu eru ekki birt önnur stjórnvaldsfyrirmæli en reglugerðir, nema í einstaka tilfellum þegar reglugerðum hefur verið breytt með auglýsingu eða viðauka.
Uppfært til 15. maí 2013.
Fyrirvari um birtingu reglugerða á netinu
|